Ályktun kennara í MR
Fréttir|18. mars 2015
Fundur Félags kennara Menntaskólans í Reykjavík hvetur til að ný samninganefnd FF verði kosin hið fyrsta. Nefndin haldi áfram viðræðum við samninganefnd ríkisins um kjarasamning sem tryggi mikilvægi og fjölbreytileika vel launaðs kennarastarfs og sérstöðu hvers skóla. Meginmarkmið nýs samnings skal vera að auka kaupmátt dagvinnulauna allra kennara við ríkisrekna framhaldsskóla án aukins vinnuframlags. Fundurinn telur eðlilegt að samningaviðræðurnar grundvallist á lýðræðislegum vilja félagsmanna þar sem stuðlað verði að einingu stéttarinnar og hagsmuna allra félagsmanna gætt í hvívetna.
Samþykkt á félagsfundi þriðjudaginn 17. mars 2015.