Ályktun frá Kennarafélagi FNV
Á félagsfundi Kennarafélags FNV þann 18. mars 2015 var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða:
Skorað er á stjórn Félags framhaldsskólakennara að endurskoða frá grunni fyrirhugaðar breytingar á skilgreiningu vinnutíma framhaldsskólakennara. Ákvæðið um að fullt starf sé 24 stunda kennsla á viku er sá fasti grundvöllur sem kjarasamningar okkar hafa hvílt á og eðlilegt að svo verði áfram. Hugmyndir um breytingar á þessum grunni, sem kynntar hafa verið sem nýtt vinnumat fyrir framhaldsskólakennara, eru óljósar og margir kennarar þar af leiðandi í óviðunandi óvissu um störf sín og kjör komi það til framkvæmda.
Þar sem félagsmenn í FF hafa nú þegar hafnað hugmyndum um nýtt vinnumat tvisvar í almennri atkvæðagreiðslu er ljóst að nauðsynlegt er fyrir stjórn félagsins að hlusta eftir röddum allra félagsmanna og byggja viðræður við samningsaðila okkar á öðrum grunni en hingað til. Meðal þess sem leggja þarf áherslu á er að kjör allra kennara verði ljós fyrirfram, að vinna allra kennara verði metin að verðleikum óháð greinum, að ekki þurfi að semja um kaup og kjör frá önn til annar, að greiða megi álag fyrir kennslu stórra hópa án þess að kennarar fámennari hópa taki á sig kjaraskerðingu vegna þess. Síðast en ekki síst að framhaldsskólakennarar geti fengið raunverulega hækkun á laun sín en ekki fleiri krónur fyrir meiri vinnu eða tilfærslur á krónum milli ólíkra hópa kennara.
Við vonumst til þess að hlustað verði eftir allri uppbyggilegri gagnrýni sem fram hefur komið á fyrri hugmyndir um nýtt vinnumat og að ekki verði reynt að leggja það fyrir aftur að óbreyttu. Með nýjum kjarasamningi þarf að skapa sátt meðal félagsmanna, óháð faggreinum, stærð skóla eða landshlutum, og veita öllum traustan starfsgrundvöll og bætt kjör til framtíðar.