Ályktun frá kennarafélagi FAS
Höfn í Hornafirði, 3. mars 2015
Stjórn Félags Framhaldsskólakennara
Ályktun frá Kennarafélagi FAS
Á félagsfundi í Kennarafélagi FAS, 3. mars 2015 var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Við teljum að það vinnumatskerfi sem lagt var fram til samþykkis komi almennt illa út fyrir kennara í fámennum skólum. Þar eru nemendahópar smáir og er því ekki völ á stórum hópum nema í undantekningartilfellum. Í nýju vinnumati þarf að taka tillit til þessara aðstæðna eða bregðast við með einhverjum hætti. Annars er hætta á að hæfir og reynslumiklir kennarar hverfi úr stéttinni til annarra starfa. Við teljum þetta einnig veikja stöðu framhaldsskóla á landsbyggðinni og höfum áhyggjur að þeir þurfi að skerða þjónustu sína enn frekar. Í nýrri námskrá er lögð áhersla á fjölbreytni og einstaklingsmiðað nám. Í vinnumati sem kosið var um teljum við að ekki nóg gert til hægt sé að sinna því.
Við bendum á að í fámennum skólum eins og FAS þurfa kennarar oft að kenna aðrar greinar en sínar sérgreinar. Þetta kallar augljóslega á stóraukna vinnu við undirbúning kennslu.
Þá teljum við að ungir kennarar komi sérstaklega illa út í því vinnumatskerfi sem lagt var fram í kosningunni. Ungur kennari með litla starfsreynslu og fámenna nemendahópa ríður ekki feitum hesti frá kennarastarfinu eins og kerfið leit út fyrir okkur. Þetta er fólkið sem við viljum fá inn í stéttina okkar og þess vegna finnst okkur að nýtt vinnumat eigi að taka sérstaklega tillit til þessa hóps. Jafnvel að innifela kennsluafslátt til að koma til móts við það aukna álag sem við þekkjum öll að fylgir því að byrja í nýju starfi og festa sig í sessi í skólanum. Taka þarf tillit til þessara þátta og ýmissa annarra í nýju vinnumati.
Við lýsum jafnframt yfir vonbrigðum með hvernig viðmið við vinnumat þróaðist frá því að sýna raunverulega vinnu kennara yfir í hagstæð viðmið fyrir ríkisvaldið. Þá ríkir mikil óvissa hvað tekur við hjá þeim kennurum sem lenda undir heilli stöðu og stöðu þeirra gagnvart skólastjórnendum. Taka þarf tillit til þessara þátta og ýmissa annarra í nýju vinnumati.
Með baráttu kveðju og von um betri tíð og blóm í haga.
Kennarafélag FAS