Ályktun FL um ákvörðun um staðnám á leikskólastiginu fram að páskum

Fréttir|24. mars 2021

Stjórn Félags leikskólakennara ályktar um takmarkanir á skólastarfi vegna COVID-19.

Stjórn Félags leikskólakennara kom saman til fundar seinni partinn í dag og sendi í kjölfarið frá sér eftirfarandi ályktun um takmarkanir á skólastarfi vegna COVID-19.

Stjórn Félags leikskólakennara lýsir áhyggjum sínum af því að halda leikskólum landsins opnum fram að páskum. Þessi veira hefur sýnt að hún er óútreiknanleg varðandi það hvar hún slær niður og verið er að taka óþarfa áhættu með því að halda leikskólum opnum þennan stutta tíma fram að páskafríi.