Ályktun félagsmanna KÍ í Borgarbyggð

Fréttir|15. nóvember 2024
Samstöðufundur á Hótel Vesturlandi í Borgarbyggð 13. nóvember. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í pontu. Mynd: Mjöll Matthíasdóttir.

Félagsmenn KÍ í Borgarbyggð skora á sveitastjórn byggðarlagsins að beita sér fyrir lausn í kjaradeilu Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og íslenska ríkisins.

Félagsfólk KÍ í Borgarbyggð sendi sveitastjórn ályktun í gær þar sem skorað er á stjórnina að beita sér í kjaradeilu kennara. Ályktunin var send í kjölfar fjölmenns samstöðufundar sem haldinn var á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi, 13. nóvember.

Ályktun félagsmanna KÍ í Borgarbyggð 14. nóvember 2024

Félagsmenn Kennarasambands Íslands í Borgarbyggð skora á sveitastjórn að beita sér fyrir lausn í kjaradeilu Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og íslenska ríkisins. 

Árið 2016 var gert samkomulag milli opinberra launagreiðenda og bandalaga stéttarfélaga um breytingar á skipan lífeyrismála. Árið 2017 höfðu lífeyrisréttindi launþega á almennum og opinberum vinnumarkaði verið jöfnuð. Samkomulagið kveður einnig á um að jafna eigi laun á milli markaða á sex til tíu árum. Samstarf um hvernig standa eigi að jöfnun launa hefur enn ekki borið árangur. Því hafa aðildarfélög Kennarasambandsins sammælst um það markmið að kjarasamningar allra aðildarfélaga feli í sér skuldbindingu viðsemjenda um hvernig verður staðið við samkomulagið um jöfnun launa á næstu árum. 

Kennarar krefjast sambærilegra launa og aðrir háskólamenntaðir sérfræðingar á atvinnumarkaði. Ómálefnalegur launamunur milli markaða hefur alvarlegar afleiðingar á íslenskt skólakerfi og það vantar kennara. Það er tímabært að bregðast við stöðunni með því að jafna launin og fjárfesta þannig í skólakerfinu og framtíðinni um leið. 

Mikil samstaða er um verkefnið innan okkar raða og við gerum þá kröfu að í lýðræðis samfélagi sé staðið við gerða samninga. Mikilvægt er að sveitastjórnir, sem bera t.d. ábyrgð á að framfylgja lögum um skóla á Íslandi, liðki fyrir viðræðum með því að leggja áherslu á að fjárfesta í kennurum.  

Samstöðufundur félagsmanna Kennarasambands Íslands, þann 13. nóvember 2024 á Hótel Vesturlandi, skorar á sveitarstjóra og sveitastjórn Borgarbyggðar að beita sér fyrir því að staðið verði við gerða samninga svo tryggt verði að laun félagsfólks Kennarasambandsins standist samanburð við laun sérfræðinga á almennum markaði. 

Fjárfestum í kennurum. Fjárfestum í framtíðinni.