Ályktanir ársfundar Skólastjórafélags Íslands

Fréttir|13. október 2015

Eftirtaldar ályktanir voru samþykktar á ársfundi Skólastjórafélags Íslands sem haldinn var í Reykjanesbæ laugardaginn 10. október.

Ályktun um kjaramál
Ársfundur Skólastjórafélags Íslands haldinn í Reykjanesbæ laugardaginn 10. október 2015 lýsir þungum áhyggjum vegna framkominna upplýsinga frá einstökum félagsmönnum um að vænta megi uppsagna frá þeim vegna þess skilningsleysis sem er hjá viðsemjendum félagsins. Á sama tíma og samninganefnd skólastjórafélagsins mætir algjöru skilningleysi sitja skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar uppi með aukin verkefni vegna annara samninga sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gert við önnur stéttafélög s.s. Félag grunnskólakennara. 

Nú virðist helsta leið skólastjórnenda til að bæta kjör sín vera að segja upp stöðu sinni og snúa aftur í kennslu. Við þetta tapast óhjákvæmilega mikilvæg reynsla sem erfitt verður að bæta.
Fundurinn krefst þess að Samband íslenskra sveitarfélaga ljúki nú þegar kjarasamningi við Skólastjórafélag Íslands svo komið verði í veg fyrir fjöldaflótta úr stéttinni.

Hvatning til fjármálaráðherra og ríkisstjórnar Íslands
Ársfundur Skólastjórafélags Íslands haldinn í Reykjanesbæ laugardaginn 10. október 2015 hvetur fjármálaráðherrra og ríkisstjórn Íslands til að heimila samninganefnd sinni að gera mannsæmandi kjarasamninga við lögreglumenn strax í stað þess að mæta eðlilegum kröfum þeirra með sinnuleysi og aðgerðum þeirra með hótunum um lögsókn.

Mótmæli launaþróunar ellilífeyris og örorkubætur
Ársfundur Skólastjórafélags Íslands haldinn í Reykjanesbæ laugardaginn 10. október 2015 mótmælir því harðlega að ellilífeyrir og örorkubætur skuli ekki fylgja launaþróun í landinu. Það er fullkomlega óásættanlegt að aldraðir einstaklingar sem byggt hafa upp velferðarsamfélag okkar séu ekki metnir að verðleikum. Skömm ríkisstjórnar Íslands er mikil og forgangsröðun röng.

Ályktun um skólamál
Ársfundur Skólastjórafélags Íslands haldinn í Reykjanesbæ laugardaginn 10 október harmar að menntayfirvöld hafi ekki nýtt undanliðið ár til að byggja upp sameiginlegan skilning á námsmatsþætti Aðalnámskrár grunnskóla, þá einkum til að stuðla að samhæfingu námsmats við lok grunnskóla. Enn bólar ekkert á leiðbeiningum um lokamatið, sem ráðuneyti menntamála tilkynnti árið 2013 að væru væntanlegar. Í takti við það er fundinum kunnugt um fjölmargar spurningar sem sendar hafa verið til menntayfirvalda á undanförnum dögum og vikum, atriði sem hefðu þurft að vera ljós við upphaf skólaárs. Fyrirséð er að óvenjumikið ósamræmi verði á milli þeirra leiða sem skólar landsins fara til að ákvarða lokaeinkunnir nemenda við útskrift í vor.
Fundurinn leggst ekki gegn nýjum hugmyndum um námsmat eins og þær koma fram í aðalnámskrá grunnskóla.
Þá telur fundurinn ekki þörf á að taka upp sérstök inntökupróf í framhaldsskóla á komandi árum, enda verði byggður upp sameiginlegur skilningur á námsmati á nýjum grunni.

Niðurstöður meistaraverkefnis Jóhanns Geirdals
Ársfundur Skólastjórafélags Íslands haldinn í Reykjanesbæ laugardaginn 10. október 2015 skorar á stjórn SÍ að beita sér með Jóhanni Geirdal gagnvart Menntamálastofnun til að fá upplýsingar um þjóðfélagsstöðu/bakgrunn nemenda birtar samhliða PISA einkunnum.
Fundurinn hvetur Jóhann ennfremur til að birta greinar í blöðum og tímaritum sem geta hrundið umræðu af stað í samfélaginu um mikilvægi þess að setja tölur frá PISA rannsóknum í réttara samhengi en áður.