Alvöruþrungin samstöðuathöfn á Akureyri
Rúmlega fjörutíu kennarar við Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskóla Akureyrar ásamt nokkrum grunnskólakennurum tóku þátt í gjörningi tónlistarkennara fyrir framan menningarhúsið Hof á Akureyri í gær.
Kennarar, sem áttu þess kost, gerðu hlé á kennslu skömmu fyrir klukkan 14 og gegnu fylktu liði undir fána KÍ til liðs við félaga sína í FT. Framinn var gjörningur sem fól í sér að Maístjarnan var sungin hljóðlaust yfir gítartösku sem hafði verið njörvuð við jörðu. Yfir töskunni stendur kross með áletruninni: Tónlistarkennsla -- Vika IIII.
Að sögn skipuleggjenda var stundin alvöruþrungin en hátíðleg. Mikil samstaða ríkti í hópi viðstaddra. Að athöfn lokinni buðu tónlistarkenanrar stuðningsfólki sínu í kaffi inni í Hofi og voru mál kjarabaráttunnar rædd.
Síðdegis í gær fóru tónlistarkennarar, nemendur og foreldrar syngjandi og með kröfuspjöld inn á bæjarstjórnarfund í Ráðhúsi Akureyrar og kröfðust þess að bæjaryfirvöld legðu sitt af mörkum svo samningar gætu náðst og þessu langa verkfalli myndi ljúka.