Alvarleg staða drengja í skólanum

Fréttir|7. júní 2024

Yfirvöld kynntu í gær nýja skýrslu sem byggir á víðtækri greiningu á íslenska menntakerfinu og sýnir alvarlega stöðu drengja innan þess, sem þarf að bregðast við.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynntu niðurstöður skýrslunnar á blaðamannafundi á Hótel Reykjavík Natura í gær ásamt Þórdísi Jónu Sigurðardóttur, forstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Tryggva Hjaltasyni, skýrsluhöfundi. Hér er hægt að horfa á upptöku af fundinum. 

„Við þurfum að tryggja að strákarnir okkar sjái sér hag í því að sækja sér menntun. Öllu máli skiptir að þeir finni áhuga sínum farveg og skólarnir mæti þörfum þeirra. Menntakerfið er helsta verkfærið okkar til að tryggja jöfn tækifæri. Ég og ráðuneyti mitt munum leggja okkar að mörkum til að aðgerðirnar sem hér eru kynntar verði að veruleika,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, á fundinum.

Víðtæk greining og tillögur að úrbótum

Í lok árs 2022 setti Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, á fót vinnu við að kortleggja áskorun drengja í íslensku menntakerfi og mögulegar lausnir, líkt og fram kemur á vef Stjórnarráðsins. Í kjölfarið hófst víðtæk úttekt á kerfinu; Tekin voru yfir hundrað viðtöl við sérfræðinga, hagaðila, kennara, foreldra og drengi og viðamikil greining fór fram á nýjum og fyrirliggjandi tölfræðigögnum. Í kjölfarið vann Tryggvi Hjaltason skýrslu um stöðuna þar sem farið er yfir helstu áhrifaþætti og lagðar fram tillögur til úrbóta. Hér er hægt að kynna sér skýrsluna.

Þrjár lykilniðurstöður komu í ljós er varða áskoranir drengja:

  • Menntakerfið á oft erfitt með að veita drengjum stuðning og umhverfi sem mætir þeirra þörfum og stuðlar að bættri líðan, virkni og árangri.
  • Drengjum leiðist fremur í námi og þeir þurfa skýrari tilgang og fjölbreyttari áskoranir til að efla virkni og námsárangur.
  • Drengir þurfa meiri tungumálastuðning.

Skýrslan er mikilvægt innlegg í vinnu menntayfirvalda og nýrrar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu í að jafna tækifæri allra barna til náms og koma til móts við þarfir drengja í menntakerfinu, segir á vef Stjórnarráðsins. Til að bæta stöðu drengja eru lagðar til átta lausnir með samtals 27 aðgerðum. Hver aðgerð byggir á ráðgjöf og reynslu kennara og sérfræðinga, árangri af vel heppnuðum úrræðum og mælingum á farsæld drengja.

 

Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskólamála, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Tryggvi Hjaltason, skýrsluhöfundur. Mynd fengin af vef Stjórnarráðsins.

Hefur trú á að breytingarnar skili árangri

Tilurð vinnunnar voru vaxandi fjöldi mælinga sem gefa til kynna að námsárangur drengja fari hrakandi, sýna aukið brottfall meðal þeirra og fleiri áskoranir. Um 47% drengja getur ekki lesið sér til gagns við útskrift úr 10. bekk, samkvæmt PISA mælingum 2022, og þriðjungur nær ekki grunnviðmiðum í stærðfræði og náttúruvísindum. Einungis þriðjungur nýnema í háskóla eru drengir, eitt mesta brottfall drengja úr framhaldsskólum í Evrópu er á Íslandi, stór hluti þeirra upplifir lítinn tilgang með námi sínu og að fá ekki áskoranir miðað við færni. Þá eru drengir þrefalt líklegri en stúlkur til að vera með einkunnir undir 6,5 í framhaldsskóla.

„Mikilvægt er að rétta hlut drengja í menntakerfinu og skapa námsumhverfi sem vekur áhuga þeirra og forvitni. Ég hef trú á því að þær viðamiklu breytingar á menntakerfinu sem nú standa yfir með nýrri menntastefnu stjórnvalda, nýrri stofnun á sviði menntamála og nýjum frumvörpum um eflingu skólaþjónustu og námsgögn, mæti þörfum drengja og bæti árangur þeirra. Nú hefst vinna við að innleiða þessar tillögur inn í aðgerðir stjórnvalda í áframaldandi góðu samstarfi við hina fjölbreyttu aðila sem koma að menntamálum á Íslandi,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, á fundinum.