Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu 2015

Fréttir|5. mars 2015

HIMA 2015 - Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu 2015 - verður haldin dagana 6.-17. júní. Umsóknarfrestur rennur út 15. mars næstkomandi.

Þetta 12 daga námskeið býður upp á kennslu í kammermúsík, einkatíma, masterklassa, hljómsveitarþjálfun og tónleikaröð með ungum upprennandi einleikurum og verðlaunahöfum alþjóðlegra keppna. Kennt er á fiðlu, víólu, selló og píanó og fer námskeiðið fram í Listaháskóla Íslands, Tónlistarskólanum í Reykjavík og í Hörpu.

Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu starfrækir nú í fyrsta sinn yngri deild, fyrir nemendur yngri en 14 ára. Lilja Hjaltadóttir fiðlukennari og aðstoðarskólastjóri Allegro suzuki tónlistarskólans mun leiða deildina en með henni kennir Örnólfur Kristjánsson á selló. Við bjóðum þau velkomin og hlökkum til að hitta nýja nemendur í sumar.

Listrænn stjórnandi Menuhin keppninnar og annálaður píanóleikari, Gordon Back, leikur með tveimur verðlaunahöfum Menuhin keppninnar 2014 á opnunartónleikum HIMA. Hann mun einnig kenna samleik og halda masterklassa um samleikslistina auk þess að segja frá því hvernig best er að undirbúa sig fyrir keppni og hverju dómnefndir leita helst eftir.

Ungur einleikari þetta árið er Rennosuke Fukuda frá Japan og verður í kastljósinu sem sigurvegari í yngri deild Menuhin keppninnar 2014. Hann mun leika einleik á opnunartónleikum og síðar með hljómsveit Akademíunnar á lokatónleikum HIMA á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Hann mun einnig taka þátt í masterklössum og kammermúsík.

HIMA er í samstarfi við Barratt Due Institute í Osló annað árið í röð. Í fyrra var Stephan Barratt Due sjálfur einn af leiðbeinendum námskeiðsins en í ár mun Alf Kraggerud, aðstoðarskólastjóri og listrænn stjórnandi Valdres námskeiðsins, leiðbeina fiðlunemendum. Fimm nemendum frá Barratt Due Institute er boðin þátttaka í Akademíunni í júní og í staðinn taka fimm nemendur frá okkur þátt í Valdres Sommersymfoni viku síðar. Samvinnan við okkar norsku vini er ómetanleg og á framtíðina fyrir sér.

Lin Wei, listrænn stjórnandi HIMA og dóttir hins nafntogaða prófessors Lin Yao Ji, www.linyaoji.com, mun halda fyrirlestur um kennsluaðferðir föður síns sem blandaði saman rússneska fiðluskólanum, heimspeki Konfúsíusar og lífeðlisfræði.

Nánari upplýsingar um leiðbeinendur, umsóknarform og hvernig sækja má um sumarnámskeið HIMA 2015 er að finna á heimasíðu okkar www.musicacademy.is.