Alþjóðaólympíukeppnin í líffræði 2024

Fréttir|8. janúar 2025

Alþjóðaólympíukeppnin í líffræði fór fram 07. til 14. júlí. Keppnin í ár var sú 35. í röðinni og var haldin í Astana, Kazakhstan. Í ár þótti keppnin bera af hvað skipulag, framkvæmd og utanumhald. Um keppendur (Mynd 1) má sömuleiðis segja að upplifun þeirra og aðbúnaður hafi verið jafn góður í ár og hann var slæmur í fyrra. Gestgjafarnir í ár voru greinilega staðráðnir í að hneykslið frá 2023 mætti ekki endurtaka sig, enda voru keppendur almennt hæstánægðir með viðburðinn og aðbúnaðinn. Kazökhsku gestgjafarnir stóðu sig glimrandi vel og eiga mikið hrós skilið, enda leystu þeir hratt og örugglega úr flóknustu vandamálum. Ísland vann því miður ekki til verðlauna að þessu sinni og báru Norðurlöndin almennt mun rýrari hlut frá borði en venjulega, þótti keppnin töluvert þyngri en undanfarin ár. Undantekning frá þessu er Finnland sem sópaði að venju til sín verðlaunum, sem þarf engum að koma á óvart, enda ljóst að vel vel úthugsað og fjármagnað menntakerfi skilar árangri. Undirbúningur fyrir Landskeppni framhaldsskólanna í líffræði 2025 er nú í fullum gangi, en fyrsta umferð fer fram um miðjan febrúar. Áður en það gerist er ráðgert að halda kynningarfund um Ólympíukeppnina fyrir framhaldsskólanema seinni hluta janúar, en hvort tveggja verður auglýst strax að loknu jólafríi. Að venju verður fjórum hlutskörpustu keppendunum boðið að keppa fyrir Íslands hönd í Ólympíukeppninni, sem verður haldin í Quezon, Filippseyjum, 20. til 27. júlí nk. Loks viljum við þakka Menntamálaráðuneytinu og Háskóla Íslands fyrir öflugan stuðning við landsliðið í líffræði og hinum STEM greinunum, en eins og undanfarin ár veitti MRN styrk til að standa straum af ferða- og þátttökukostnaði og HÍ lagði til aðstöðu til þjálfunar og lesturs, auk matarmiða i Hámu svo ekki þyrfti liðið að svelta meðan þjálfun fór fram. Þessi stuðningur hefur verið ómetanlegur hvað varðar þátttöku Íslands í keppninni og verður seint þakkað nógu mikið.