Alþjóðadegi menntunar fagnað

Fréttir|24. janúar 2025

Í dag, föstudaginn 24. janúar, er Alþjóðadegi menntunar fagnað í sjöunda sinn. Markmið dagsins er að vekja athygli á réttinum til menntunar fyrir alla.

Sameinuðu þjóðirnar (Sþ) hófu þessa hefð, að fagna Alþjóðlegum degi menntunar um heim allan 24. janúar, fyrir sjö árum með það fyrir augum að vekja athygli á hlutverki og mikilvægi menntunar fyrir alla. Ólíðandi sé að rétturinn til menntunar sé ekki virtur, en um 244 milljón barna og ungmenna um allan heim njóta hans ekki og 770 milljónir fullorðna eru ólæs, samkvæmt tölum Sþ.

Áhrif gervigreindar í skólastarfi

Í ár er þemað gervigreind og hlutverk hennar í skólastarfi og yfirskrift UNESCO, Menningarmálastofnunar Sþ, er Að varðveita hlutverk og atbeini mannsins í sjálfvirkum heimi, (e. Preserving human agency in a world of automation). Stofnunin hvetur til þess að þjóðir og menntakerfi heims íhugi mátt og hlutverk menntunar í því að gera einstaklingum og samfélögum kleift að nýta, skilja og hafa áhrif á tækniframfarir og -þróun. 

„Mörkin á milli mannlegs ásetnings og sjálfvirkrar vélknúinna aðgerða verða óljósari eftir því sem tölvu- og gervigreindardrifin kerfi verða flóknari. Það vekur upp mikilvægar spurningar um hvernig megi varðveita, endurskilgreina og helst, upphefja hlutverk mannsins og sjálfræði hans í síbreytilegum og ætæknilegri heimi.“

Menntun lykillinn að öryggi

Helstu menntasamtök heims og samtök barna halda upp á daginn. Evrópusambandið (ESB) er þar á meðal. Sambandið segir menntun eitt öflugasta tækið til að vinna á fátækt, auka jafnrétti kynjanna, örva hagvöxt og ekki síst, hvetja til friðar í heimi þar sem obeldi, mismunun og fordómar fara vaxandi og um tveir milljarðar manna búa á átakasvæðum.

Ýmis samtök barna vekja einnig athygli á deginum, svo sem Barnaheill, eða Save the children, sem nýtir daginn til þess að beita sér fyrir aðgengi að gæðamenntun fyrir öll börn, sér í lagi menntun ungra barna. „Í sumum ríkjum heimsins hafði allt að 1 af hverjum 5 börnum hætt í skóla vegna fátæktar, barnahjónabanda og barnavinnu í lok árs 2021. Á erfiðum tímum líta börn á menntun sem lykilinn að öryggi, heilsu, hamingju og framtíð sinni og tími frá skóla hefur gríðarleg áhrif á heilsu, öryggi og lífsákvarðanir barna til framtíðar. Því er svo mikilvægt að gera allt til þess að tryggja börnum samfellda menntun,“ segir á vef samtakanna.

 


 

Raungreinakennarar óskast í Evrópu

Samtök kennarafélaga um allan heim fagna einnig deginum, þar á meðal samtökin EI (Alþjóðasamtök kennara), ETUCE (Evrópusamtök kennara) og NLS (Samtök kennara og skólastjórnenda á Norðurlöndum), sem Kennarasambandið á aðild að.

Í tilefni dagsins gefa Alþjóðasamtök kennara út skýrslu um stöðu kennara á heimsvísu. Tekin voru saman gögn frá rúmlega 200 kennarafélögum í yfir 120 löndum. Skýrslan sýnir alvarlegan kennaraskort á heimsvísu, sér í lagi í Afríku, Asíu og Norður Ameríku. Samkvæmt skýrslunni er skorturinn í Evrópu alvarlegastur þegar kemur að greinum á borð við stærðfræði og raungreinar. Þá eiga öll ríkin við alvarlegan sérkennaraskort að etja.

Samtökin hvetja yfirvöld heims til að bregðast við stöðunni og fjárfesta í opinberri menntun og kennurum, það sé eina leiðin til að vinda ofan af þróuninni og takast á við vandamálið fyrir fullt og allt. Þá minna samtökin á vegvísi Sþ um menntaúrbætur og umbyltingu kennarastéttarinnar, en þar er að finna heildstæðan lista um aðgerðir sem stjórnvöld geta nýtt til að styrkja og bæta stöðuna í menntamálum. Alþjóðasamtök kennara segja mikilvægi kennarafélaga gríðarlegt í baráttunni fyrir gæðamenntun fyrir alla, sér í lagi hvað varðar að tryggja traust og virðingu fyrir kennurum. 

  • Hér er hægt að taka þátt í vefnámskeiði sem samtökin bjóða upp á í tilefni dagsins. 

Fjármögnun menntamála á Norðurlöndunum

Í dag birta Samtök kennara og skólastjórnenda á Norðurlöndum (NLS) skýrslu um fjármögnun menntamála á Norðurlöndunum. Vonin er sú að með skýru yfirliti yfir hvernig menntakerfi Norðurlandanna eru fjármögnuð verði auðveldara að sýna fram á mikilvægi og þörfina á fjárfestingu í menntun, en samkvæmt skýrslunni eiga öll ríki Norðurlandanna erfitt með að tryggja nægilegt fjármagn til menntamála.

Í niðurlagi skýrslunnar segir að mikilvægt sé að hvert Norðurland útbúi og innleiði alhliða menntakerfi fyrir alla borgara ásamt menntunar og umönunnarkerfi ungra barna (e. ECEC, eða early childhood education and care), sem gerir öllum börnum kleift að fá jöfn tækifæri í lífinu, óháð bakgrunni og öðrum breytum. Slíkt kerfi krefjist aukinnar ábyrgðar stjórnvalda hvað varðar að fjárfesta í menntun.