Alþjóðadagur læsis

Í tilefni af Alþjóða degi læsis bauð Félag sérkennara á Íslandi öllum áhugasömum upp á rafrænan viðburð. Ásdís Hallgrímsdóttir kennari með Dipl Ed gráðu í menntunarfræðum með áherslu á menntun tvítyngdra barna og Dipl Ed gráðu í uppeldis og menntunarfræði fræddi okkur um Læsisfimmuna.
Í tilefni af Alþjóða degi læsis bauð Félag sérkennara á Íslandi öllum áhugasömum upp á rafrænan viðburð.
Ásdís Hallgrímsdóttir kennari með Dipl Ed gráðu í menntunarfræðum með áherslu á menntun tvítyngdra barna og Dipl Ed gráðu í uppeldis og menntunarfræði fræddi okkur um Læsisfimmuna.
Ásdís hefur kennt í grunnskólum bæði almenna kennslu og sérkennslu í 40 ár. Hún hefur aflað sér þekkingar á fjölbreyttum, raunprófuðum lestrarkennsluaðferðum og kynnt þær í skólum víða um land.
Læsisfimman eða Daily 5 eins og það heitir á frummálinu er kennsluskipulag þróað af systrunum Gail Boushey og Joan Moser. Kennsluskipulagið er hannað til að koma til móts við fjölbreyttan nemendahóp og einstaklingsþarfir innan hans. Hentar fyrir alla aldurshópa og nánast hvaða námsefni sem er. Aðferðin er byggð á skipulagi þar sem áhersla er lögð á sjálfstæði, sjálfsaga, úthald og læsi.
Við tókum upp erindi Ásdísar og er hægt að horfa á það hér. Hér er einnig að finna skjákynningu Ásdísar.
Það var fjölmenni á viðburðinum og vill stjórn FÍS þakka öllum þeim sem gáfu sér tíma til að hlusta. Ásdísi þökkum við kærlega fyrir frábært erindi. Við vonum að kennarar geti nýtt sér þekkingu og reynslu Ásdísar.
