Alþjóðadagur kennara: Virðum kennara að verðleikum – styrkjum stöðu þeirra

Fréttir|3. október 2016

Yfirskrift Alþjóðasamtaka kennara á alþjóðadeginum þann 5. október er: „Virðum kennara að verðleikum – styrkjum stöðu þeirra“ . 

Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður FSL.

Eins og allir vita verður Skólamálaþing KÍ haldið í tilefni Alþjóðadagsins og er dr. David Frost, prófessor við Cambridge-háskóla, aðalfyrirlesari þingsins. Hann hefur um langt árabil unnið að því að styðja við kennara sem breytingaafl í skólamálum og að þeir skapi og miðli faglegri þekkingu. En hvað þarf til að skólastjórnendur og kennarar valdeflist til að verða þetta breytingaafl.

Valdefling felur í sér að kennarar sjálfir standi í brúnni og hafi faglega forystu í mennta- og skólamálum. Í greinasafninu „Flip the system“ sem dr. David Frost á aðild að er talað um að það verði að vera til staðar traust, virðing, skýr sýn, samvinna, stuðningur og tími til þess að hlúa að þessum þáttum.

Lítum nánar á vopnabúrið sem er byggt á niðurstöðum Flip the system og útfært með andanum sem ritið blæs í brjóst.
 

Traust

Manneskjan þrífst ekki án trausts. Barn sem ekki treystir og er ekki treyst nær ekki að nýta möguleika sína til þroska. Það sama á við um okkur fullorðna fólkið í einkalífi og starfi. Kennari eða skólastjóri sem ekki treystir samstarfsfólki sínu og yfirmönnum og er ekki treyst af þeim á litla von um farsælan feril. Fyrir nokkru var endursýndur gamall þáttur í sjónvarpinu þar sem talað var við Gylfa Þ. Gíslason, þáverandi menntamálaráðherra. Aðspurður um hvað hefði veitt honum mesta ánægju í starfi sem ráðherra svaraði hann að samvinna við áhugasama, framsýna og metnaðarfulla kennara hafi verið mest gefandi. Þetta viðtal sýndi traust ráðherra til kennara og einnig hvernig hann hlustaði og þáði þekkingu þeirra og ráð.
Þetta ætti að eiga við um öll samskipti í skólakerfinu; gagnkvæmt traust milli kennara, milli kennara og stjórnenda, milli nemenda og kennara, og milli skólasamfélagsins og yfirvalda.
 

Virðing

Stolt er eitthvað sem þú getur búið yfir en virðingu verðurðu að ávinna þér. Við verðum að gera miklar faglegar kröfur til okkar sjálfra og samstarfsfólks okkar. Um leið verðum við að standa vörð um virðingu okkar og heiður stéttarinnar. Þetta gerum við ekki nema að hafa metnað fyrir faginu og stéttinni. Skilaboðin sem við sendum út í samfélagið um störf okkar verða að bera fagmennsku okkar og starfsgleði vitni. Við sjálf veljum þá ímynd sem við viljum halda á lofti. 

 

Skýr sýn

Menntun er svo miklu meira og merkilegra en það að mæla útkomu úr stöðluðum prófum og komast að því hver skoraði hærra en annar. Menntun á að gera heiminn betri. Til þess að það takist þá verðum við að vita hvers vegna við veljum þá leið sem við förum og hvert hún liggur. Hvernig við komumst þangað verður að byggjast á sérfræðiþekkingu þeirri sem kennarar hafa aflað sér með menntun og reynslu. Ef þú stendur ekki fyrir neinu þá fellur þú fyrir öllu.


Samvinna

Samvinna er grundvöllur árangursríks skólastarfs. Eigi skólinn að starfa sem lærdómssamfélag þá verða allir, stjórnendur, kennarar, starfsfólk og nemendur, að vinna saman sem samvirk heild. Skólinn er ekki eyland og samvinna milli skóla, sveitarfélaga og landa er auðveld á tímum góðra samgangna og internets. Erasmus-verkefnin eru gott dæmi um hvernig samstarf landa á milli auðgar og víkkar sjóndeildarhringinn og hefur áhrif á stefnu og strauma til framtíðar.


Stuðningur

Skólafólk er uppfullt af góðum hugmyndum. Allt frá því hvernig á að bæta líðan barna að stefnu stjórnvalda. En það þarf að koma góðum hugmyndum í samræðu og framkvæmd. Ekkert gerist ef hugmynd er ekki fundinn farvegur. Það verður að fanga góðar hugmyndir, styðja við þær og koma þeim áfram.

Ef gagnkvæmt traust, virðing ríkir og tilgangurinn er ljós þá ætti að vera leið fyrir góðar hugmyndar að þróast og verða að veruleika. Stjórnvöld sem treysta kennurum til þess að vera faglegt forystuafl skilja frekar eftir sig minnisvarða um jákvæða framþróun í skólastarfi en hin sem senda valdboð ofan frá og niður eru boðberar stöðnunar.

Þá vantar ekkert vopn til valdeflingar kennara nema eitt.... tíma.

Það er afar misjafnt á milli skólastiga og skólagerða hvernig gert er ráð fyrir þeim störfum sem þarf að sinna utan viðveru/kennslu með börnum/nemendum. Ef ekki er tími og svigrúm til þess að ígrunda starfið, bera saman bækur, hafa samráð, sinna undirbúningi og starfsþróun þá þýðir ekkert að gala fagurt um traust, heiður, fagmennsku, stefnu og stuðning. Það einfaldlega gengur ekki upp og þarf ekki frekari orðlengingar. Hér eru verk að vinna sem við þurfum öll að standa saman um.

Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags stjórnenda leikskóla.