Almennt sömu takmarkanir og í samfélaginu

Nemendur fæddir 2006 eða síðar verða undanþegnir grímuskyldu en gildandi sóttvarnaráðstafanir hafa verið framlengdar til 27. ágúst.
Skólastarf verður með sömu takmarkanir og almennt gilda í samfélaginu en ríkisstjórnin framlengdi í dag núgildanir sóttvarnaaðgerðir um tvær vikur. Aðgerðirnar gilda til 27. ágúst sem þýðir að áfram mega ekki fleiri en 200 koma saman, eins metra regla gildir og grímuskylda er innanhús ef ekki er hægt að halda fjarlægðartakmarkanir.
Tilkynnt var að undanteking verði gerð í skólum þegar kemur að grímuskyldu. Nemendur fæddir 2006 og síðar þurfa ekki að bera grímu. Nemendur fæddir fyrr mega taka grímuna niður í skólastofunni.
Þá kom fram í máli Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, að fundað verði með skólasamfélaginu í þeim tilgangi að útfæra regluverkið nánar – í samráði við skólafólk.