Almenn gleði ríkjandi á fyrsta golfmóti KÍ

Fréttir|21. júlí 2026
B717aeda 0456 46Bb Addc 6Ce749d4e364

Félagar í KÍ létu votviðri ekki aftra sér á fyrsta golfmóti sambandsins sem fór fram í gær. Glæsileg tilþrif og gott keppnisskap einkenndi mótið.

Um þrjátíu kylfingar öttu kappi á fysta golfmóti Kennarasambandsins sem fór fram á golfvelli Hvergerðinga í Gufudal í gær. Völlurinn var eilítið blautur við upphaf mótsins snemma í gærmorgun en heldur dró úr þegar á mótið leið. 

Leiknar voru 18 holur og krýndir voru sigurvegarar karla og kvenna út frá punktaniðurstöðu. Auður Valdimarsdóttir, Dalskóla, sigraði í kvennaflokki á 39 punktum. Í öðru sæti varð Halldóra Ingunn Magnúsdóttir, Lindaskóla, með sama punktafjölda en með lakari niðurstöðu á níu síðari holunum. Þriðja varð Stefanía Eiríksdóttir, Selásskóla, með 33 punkta.

Í karlaflokki bar Egill Sigfússon, Seljaskóla, sigur úr býtum með 38 punkta. Hann vann einnig nándarverðlaun þar sem kúla frá honum staðnæmdist 90 sentimetra frá holu 9. brautar. Annar varð Gunnar Geir Gunnlaugsson, Barnaskóla Eyrarbakka og Stokkseyrar, með 36 punkta. Bronsið féll í skaut Ellerts Daneilíussonar, Borgarholtsskóla, sem náði 35 punktum.

Almenn gleði ríkti í mótinu og allir sammála um að yrði það fyrsta af mörgum, enda keyptur farandbikar sem Auður og Egill munu örugglega reyna að verja næsta sumar.

„Utan keppninnar er auðvitað hin mesta skemmtun þegar kennarar koma saman og vert að skora á þá í hópi félagsfólks sem gleðjast í golfi að vera með næst!" sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, að loknu mótinu. 


Sigurvegarar í kvennaflokki; Auður Valdimarsdóttir,
Halldóra Ingunn Magnúsdóttir og Stefanía Eiríksdóttir.


Sigurvegarar í karlaflokki; Egill Sigfússon,
Gunnar Geir Gunnlaugsson og Ellert Danelíusson. 

Svipmyndir frá Golfmóti KÍ í Gufudal 2026