Alltaf til staðar – hlekkur á Skólamálaþing

Fréttir|5. október 2021

Rafrænt Skólamálaþing fer fram á kennaradeginum. Kári Stefánsson og María Ellingsen flytja ávörp.

Alltaf til staðar er yfirskrift Alþjóðadags kennara, sem haldinn er hátíðlegur um veröld alla, 5. október. Það eru Alþjóðasamtök kennara (Education International) sem velja yfirskriftina og er henni meðal annars ætlað að vísa í frábæra framgöngu kennara á tímum heimsfaraldurs. 

Þetta er hlekkur á málþingið

 

Skólamálaráð hefur undangengin ár efnt til Skólamálaþings í tengslum við kennaradaginn. Að þessu sinni verður þingið sent út á netinu. 

Dagskráin er ekki af verri endanum og þá verður Skólamálaþingið fréttnæmt því tilkynnt verður um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna. 

Dagskrá þingsins: 

  • 16.00    Þátttakendur boðnir velkomnir – Anna María Gunnarsdóttir
  • 16:05    Ávarp – Kári Stefánsson
  • 16.20    Hvað er svona merkilegt við það - að vera kennari – María Ellingsen
  • 16:35    Tilnefningar til menntaverðlauna – Gerður Kristný
  • 16:55    Kveðjuorð – Ragnar Þór Pétursson

Hlekkur á streymið verður sendur félagsmönnum á næstu dögum. Þá vill Kennarasambandið hvetja kennara, stjórnendur og starfsfólk skólanna til að gera sér dagamun á kennaradeginum – og nota tækifærið til að vekja athygli á störfum kennara. 

Kennaradagur síðan 1994

Alþjóðadagur kennara, eða kennaradagurinn, er jafnan haldinn hátíðlegur 5. október ár hvert. Stofnað var til kennaradagsins að frumkvæði UNESCO og Alþjóðasamtaka kennara (Education International) árið 1994, eða fyrir aldarfjórðungi. Markmið kennaradagsins hefur frá fyrstu tíð verið að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar gegna í heiminum – en um leið er dagurinn kjörinn til að efla samtakamátt kennara og huga vel að hvernig menntun barna og ungmenna verður best háttað í framtíðinni.

Vefsíða Education International

Horfa á Skólamálaþing í streymi