Allt vex sem fær athygli

Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar og frambjóðandi til varaformanns Kennarasambands Íslands, skrifar.
Við kennarar búum við þau forréttindi að vera í starfi þar sem möguleikarnir eru endalausir varðandi spennandi, áhugaverðar og fræðandi leiðir í kennslu. Við getum leyft okkur, og eigum, að koma með nýjungar inn í okkar starf. Þetta eru verðmæti sem við skulum halda í á öllum skólastigum og skólagerðum. Þegar samstarfsaðilar okkar, nemendurnir með sitt frjóa ímyndunarafl eru tilbúnir í verkefnin með okkur verður lærdómsferlið jákvætt og ánægjulegt fyrir alla aðila.
Ég veit að hver einasti kennari sem starfar innan skólanna þekkir til þeirra ótal áskorana sem eru í okkar starfsumhverfi. Mig langar þó núna að beina athyginni að nokkrum verkefnum og námsleiðum sem kennarar hafa þróað til að gera námið betra, áhugaverðara og svo það mæti þörfum nemenda sem allra best. Það er mikilvægt að hafa í huga að allt vex sem fær athygli því mögulega gleymist stundum í erli dagsins allt það frábæra starf sem fer fram út um allar koppagrundir. Þessi verkefni eða námsleiðir sem ég nefni hér eru bara örlítið brot af öllu því frábæra starfi sem er í gangi. Án efa er hægt að koma með dæmi úr hverjum einasta skóla landsins en hvorki leyfir tíminn né lengd pistils að koma öllum hugmyndum á framfæri.
- Í heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi eru hænur sem búa í garði skólans, þær fá matarafganga barnanna og börnin fá eggin á móti. Verkefnið stuðlar að aukinni sjálfbærni og spornar gegn matarsóun. Börnin hugsa um dýrin á virkum dögum með stuðningi sinna kennara og fjölskyldur barnanna taka svo við verkefninu um helgar.
- Í leikskólanum Akraseli á Akranesi tekur elsta deild skólans þátt í sólblómaverkefni SOS barnaþorpanna. Akrasel styrkir eitt ákveðið barn í SOS Barnaþorpi um tæp 50.000 á ári. Efni frá Barnaþorpunum er notað til fræðslu þar sem börnin fræðast um þau börn sem þar búa. Saga þessara barna er sögð ásamt því að lönd þeirra eru kynnt, matarmenning o.fl. Börnin í skólanum fræðast þannig um önnur lönd og aðra menningarheima og læra að bera virðingu fyrir öðrum, hvar sem þeir búa.
- Leikskólinn Aðalþing í Kópavogi fékk Íslensku menntaverðlaunin 2021, en skólinn var tilnefndur fyrir framsækið, skapandi skólastarf og lýðræðislega starfshætti. Skólastarfið tekur mið af ítalskri aðferðafræði sem kennd er við borgina Reggio Emilia á Norður-Ítalíu, en hún byggist meðal annars á lykilorðunum: Ígrundun – lýðræði – náttúra – upplýsingatækni. Þetta eru hugtök sem unnið er með á markvissan og skapandi hátt og í skólanum er litið á börn sem hæfileikaríka einstaklinga.
- Í Ingunnarskóla, Selásskóla og Vesturbæjarskóla í Reykjavík hófst samstarf 2019 um innleiðingu og þróun sköpunarsmiðju. Sköpunarsmiðjur byggja á þeirri hugmynd að ýta þurfi undir sköpun og margvíslega hæfni með stuðningi stafrænnar tækni, til að efla færni og þróa þekkingu sem dugar til að finna leiðir í flóknum tækniheimi nútímans. Aukið flæði milli námsgreina, skýr sýn á grunnþætti menntunar og lykilhæfni ásamt sterkari tengingu verkefna við daglegt líf nemenda eru til þess fallin að vekja áhuga nemenda og stuðla að krefjandi verkefnum og námi. Þar má nefna tækniþekkingu, sköpunargleði, hönnunarhugsun, nýsköpun, hugvit og samvinnu sem efla færni nemenda og víðsýni. Verkefnið styðst við hugsmíðahyggju þar sem hugað er að styrkleikum nemenda og bakgrunni í því skyni að styðja sem best við nám þeirra, líðan og námsumhverfi. Litið er á börn sem þekkingarsmiði sem smíða sína persónulegu þekkingu út frá eigin reynslu.
- Í unglingadeild Sunnulækjarskóla á Selfossi taka allir árgangar þátt í fyrirliðaverkefni einu sinni yfir veturinn, í viku í senn. Ákveðinn hópur úr hverjum bekk fær hlutverk fyrirliða og fer ýmist út í frímínútur og tekur þátt í leik með yngri nemendum, er til aðstoðar í matsalnum eða gengur um svæðin og sér til þess að umgengni sé góð. Verkefnið er hugsað til þess að efla nemendur í að taka ábyrgð, vera fyrirmyndir og taka virkan þátt í að móta góðan skólabrag.
- Í Menntaskólanum á Tröllaskaga er boðið upp á náttúruvísindi, listljósmyndun og útivist meðal skilgreindra sérhæfðra brauta. Í vali er t.d. hægt að velja skíðaíþróttir í samstarfi við Skíðasamband Íslands og rafíþróttir.
- Í Flensborg í Hafnarfirði er fjölbreytta áfanga að finna s.s. þjóðfræði, hversdagsmenning og lífshættir, rafefnafræði, sýrur og basar, afbrotafræði og jóga og jóga nidra.
- Í Menntaskólanum á Akureyri er boðið upp á nám í ferðamálafræði þar sem nemendur kynna sér evrópskar borgir sem þeir fá úthlutað. Þeir kynna sér borgirnar það vel að þeir geta leiðbeint samnemendum sínum í vinnuferð í borgunum. Nemendur fara einnig til nokkurra þeirra borga sem valdar eru og safna heimildum sem síðar verða notaðar til að gera kynningarmyndband um borgina og kynningarefni um borgir erlendis fyrir grunnskólanemendur.
- Tónlistarskóli Grindavíkurbæjar hlaut hvatningarverðlaunin 2021 fyrir þróun sína á Eftirfylgniaðferð í kennslu með notkun Showbie kerfis. Aðferðin þróaðist úr speglaðri kennslu og er notuð með hefðbundinni einkakennslu á hljóðfæri. Kennari útskýrir fyrir nemandanum heimavinnuna á hljóðfærið, söng eða fræðigreinar og tekur það upp á spjaldtölvu um leið. Upptakan verður síðan aðgengileg fyrir nemandann eftir kennslustundina. Upptakan er einstaklingsmiðuð að þörfum og stöðu nemanda hverju sinni og hjálpar við heimanám því foreldrar/forráðamenn eða þeir sem aðstoða við heimanámið eru sjaldnast sérfræðingar í hljóðfærinu eða hljóðfæraleik. Þessi aðferð miðar að því að styðja nemendur við æfingar heima, jafnt á hljóðfæri sem og í fræðigreinum. Vinnan, þróunin, innleiðingin og notkunin ber vott um framsækið kennslustarf þar sem kennsluaðferðir eru færðar til nútímans.
- Í lokin má nefna Utís eða Upplýsingatækni í skólastarfi. Utís hópurinn er lærdómsfélag brautryðjenda í kennsluháttum en hópurinn ásamt Ingva Hrannari Ómarssyni hlutu hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2020 fyrir framúrskarandi stuðning við starfsþróun íslenskra kennara með miðlun framsækinna hugmynda um skapandi skólastarf, nýsköpun og upplýsingatækni þar sem nemandinn er í brennidepli.
Ég hef á mínum starfsferli fylgst með hvað vel er gert í skólastarfi, hef áhuga á að gera enn betur og vekja athygli á því magnaða starfi sem fer fram í skólum landsins.
Þessi örfáu verkefni eða námsbrautir sýna okkur hve flóran er fjölbreytt innan skólanna. Hve kennarar á öllum skólastigum leggja mikla vinnu og metnað í að hafa námsefni sem fjölbreyttast svo nemendur geti nýtt sínar sterku hliðar og um leið notið sín í náminu sem virkir þátttakendur. Þau sýna einnig hve kennarar bera mikla umhyggju fyrir nemendum sínum og starfa af fagmennsku. Beinum sjónum okkar að því hve frábærir kennarar eru í sínu starfi með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.