Allsherjarverkfall kvenna og kvára á morgun

Fréttir|23. október 2023

Konur og kvár eru hvött til að leggja niður störf á morgun, þriðjudaginn 24. október. Viðburðir verða haldnir hringinn um landið og auk þess mun RÚV sýna beint frá útifundinum á Arnarhóli

Allsherjarverkfall kvenna hefst á miðnætti og stendur í sólarhring. 

Samstöðufundir verða haldnir mjög víða um land á morgun, þriðjudaginn 24. október, þegar konur og kvár, sem það geta, eru hvött til að taka daglangt hlé frá störfum. Er þar átt við launuð störf sem ólaunuð. Heilsdagsverkfall fór síðast fram árið 1985. 

Stærsti viðburður dagsins verður útifundur á Arnarhóli sem hefst klukkan 14. Konur og kvár sem búa utan höfuðborgarsvæðsins þurfa þó ekki að örvænta því boðað hefur verið til samstöðufunda víða um landið og er sífellt að bætast á þann lista. Hægt er að finna upplýsingar um dagskrá vef Kvennaverkfallsins. Meðal staða þar sem efnt verður til viðburða eru Akureyri, Neskaupstaður, Blönduós, Dalvík, Djúpivogur, Drangsnes, Höfn, Húsavík, Hvammstangi, Ísafjörður, Patreksfjörður, Raufarhöfn, Sauðárkrókur, Stykkishólmur, Suðurnes, Vestmannaeyjar og Vík. 

Þá mun RÚV senda beint út frá fundinum á Arnarhóli. 

Sýnum sama hugrekki og ömmur okkar, mæður, systur og frænkur gerðu 1975. Tökum þátt. Mætum á samstöðufundi. Sýnum að við erum ómissandi fyrir samfélagið okkar, segir Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ.

Barátta 48 ár

Krafan á morgun er einföld; þess er krafist að kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi verði útrýmt og að störf kvenna og kvára verði metin að verðleikum. Efnt var til fyrsta kvennafrídagsins árið 1975 eða fyrir 48 árum. Verkfallið nú er það sjötta í röðinni.

„Kvennaverkfallið 2023 er hvorki verkfall í skilningi vinnulöggjafarinnar né frídagur launafólks. Kvennaverkfallið er baráttudagur fyrir jafnrétti á vinnumarkaði og tekur launafólk þátt á eigin forsendum og samkvæmt eigin ákvörðun. Konur og kvár eru í ólíkri stöðu á vinnumarkaði og við hvetjum öll sem geta til þess að taka þátt,“ segir á vef Kvennaverkfallsins.  

 

Meginkröfurnar eru að laun kvennastétta verði metin að verðleikum og kynbundnum launamun og kynbundnu ofbeldi verði útrýmt," segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.

Hver standa að baka verkfallinu?

Aflið, Alþýðusamband Íslands, Bandalag kvenna í Reykjavík, BHM – Bandalag háskólamanna, BSRB, Druslugangan, Druslubækur og Doðrantar, Delta Kappa Gamma, félag kvenna í fræðslustörfum, Femínísk fjármál, Femínistafélag HÍ, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag um Fjöruverðlaunin, Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna, IceFemin, Kennarasamband Íslands, Knúz.is, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing ÖBÍ, Kvennaráðgjöfin, Kvennasögusafn Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Rótin, Samtök um kvennaathvarf, SSF – Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja, Samtökin '78, Soroptimistasamband Íslands, Stígamót, UN Women Ísland, Ungar athafnakonur, WIFT – Konur í kvikmyndum og sjónvarpi, W.O.M.E.N. in Iceland – Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Q - félag hinsegin stúdenta.

Kvennafrídagurinn 24. október 1975. Einn stærsti útifundur Íslandssögunnar!