Alls höfðu 25% kosið á hádegi

Fréttir|5. nóvember 2021

Félagsmenn KÍ hvattir til að taka þátt í formannskjöri KÍ sem nú stendur yfir.

Alls höfðu 25 prósent félagsmanna Kennarasambandsins greitt atkvæði í formannskjöri á hádegi í dag. Atkvæðagreiðsla hefur staðið yfir frá síðasta þriðjudegi og lýkur klukkan 14 á mánudag. 

Atkvæðagreiðslan er einföld og fer fram á Mínum síðum KÍ. 

Fjögur í framboði

Frambjóðendur eru fjórir; Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla, Heimir Eyvindsson, dönskukennari og deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði, og Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla. 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is  Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.

  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um Formann KÍ 2021 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann KÍ.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.