Alls höfðu 21,63% greitt atkvæði á hádegi
Fréttir|12. apríl 2021

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning FF og FS stendur nú yfir.
Þátttaka í atkvæðagreiðslu félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum um nýjan kjarasamning mældist 21,63 prósent á hádegi í dag.
Atkvæðagreiðslan hófst á hádegi síðastliðinn föstudag og stendur til hádegis næstkomandi fimmtudags, 15. apríl.
Skrifað var undir hinn nýja kjarasamning 31. mars síðastliðinn.
Hægt að horfa á kynningarfund um kjarasamninginn á Youtube sem fór fram á Teams síðastliðinn miðvikudag. Þá er að finna ýmsar upplýsingar varðandi samninginn og launareiknivél í Rauða Eplinu sem var sent félagsmönnum í liðinni viku.