Alls hlutu 42 verkefni styrk úr Sprotasjóði

Fréttir|6. apríl 2021

Sprotasjóður úthlutaði á dögunum rúmum 54 milljónum króna til 42 verkefna.

Alls hlutu 42 verkefni í leik-, grunn- og framhaldsskólum styrk úr Sprotasjóði að þessu sinni. Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni voru annars vegar lærdómssamfélög skóla og hins vegar drengir og lestur. 

Heildarumsóknir til sjóðsins skiptust eftirfarandi á milli skólastiga: 66 umsóknir komu frá grunnskólastiginu, 10 umsóknir frá leikskólastiginu, 16 umsóknir frá framhaldsskólastiginu og 13 umsóknir þvert á skólastig. Heildarupphæð styrkja var rúmar 54 milljónir en umsóknirnar voru 105 talsins og heildarupphæð þeirra 305 milljónir króna. 

 

Eftirfarandi umsækjendur hlutu styrki að þessu sinni:

Leikskólinn Iðavöllum

Patreksskóli

Leikskólinn Rauðhóll

Skarðshlíðarskóli

Akurskóli

Stekkjaskóli

Árbæjarskóli

Vatnsendaskóli

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Víkurskóli

Borgaskóli

Vogaskóli

Breiðholtsskóli

Þelamerkurskóli

Engjaskóli

Ölduselsskóli

Flataskóli

Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Gerðaskóli

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Glerárskóli

Tækniskólinn

Grundaskóli

Dalvíkurskóli

Grunnskóli Fjallabyggðar

Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnavatnssýslu

Grunnskóli Vestamannaeyja

Fræðsluþjónusta Skagafjarðar

Grunnskólinn á Ísafirði

Grunnskóli Borgarfjarðar

Helgafellsskóli

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Hörðuvallaskóli

Grunnskólinn austan Vatna

Kirkjubæjarskóli á Síðu

Grunnskólinn á Þórshöfn

Laugalækjarskóli

Skólaskrifstofa Grindavíkurbæjar.