Alls hafa 35 skrifað Vikupósta FF í vetur

Fréttir|4. júní 2014

Alls hafa 35 framhaldsskólakennarar, námsráðgjafar og skólastjórnendur skrifað Vikupósta FF fyrir félagið á skólaárinu sem er að líða. Greinarhöfundar hafa tjáð sig um hin margvíslegustu mál og margir póstanna hafa vakið mikla athygli og ratað á síður og vefi útbreiddustu fjölmiðla landsins. Þá hafa félagsmenn verið duglegir að lesa póstana og deila þeim á samfélagsmiðlum.

Á meðan á kjaradeilu framhaldsskólakennara stóð í vetur fylgdust margir með póstunum enda voru þeir góður vettvangur til að vekja athygli á málefnum félagsmanna. Vikupósturinn hefur þannig beint sjónum að málefnum stéttar sem vinnur lykilstörf í samfélaginu.

Hamingjumarkmið fyrir sumarið eru efni síðasta Vikupósts þessa skólaárs. „Það er misjafnt hvað stuðlar að aukinni hamingju fyrir hvern og einn,“ skrifar Anna Jóna Guðmundsdóttir, kennari í FB og stjórnendaþjálfi, og mælir með því að fólk setji sér markmið, eitthvað sem gleður og veitir lífsfyllingu, setji þau niður fyrir sig og festi síðan á ísskápinn.