Alls bjóða 38 manns sig fram hjá FG

Atkvæðagreiðsla í stjórnarkjöri og í samninga-, skólamála- og kjörnefnd Félags grunnskólakennara hefst á morgun, þriðjudag. Hér að neðan er að finna lista yfir alla frambjóðendur.
Tæplega fjörutíu félagsmenn í Félagi grunnskólakennara gefa kost á sér til trúnaðarstarfa fyrir félagið. Kjörtímabilið er frá 2022 til 2026 og fara valdaskipti fram á aðalfundi félagsins sem er áformað að halda í október.
Hér að neðan má lesa nöfn frambjóðenda i hverja stjórn og nefnd fyrir sig. Kynningarefni er að finna sérstakri síðu hér á vefnum. Félagsmenn í FG eru hvattir til að kynna sér frambjóðendur og þeirra áherslur – og taka þátt í lýðræðislegum kosningum um hverjir leiða félagið næstu fjögur árin.
Atkvæðagreiðslan hefst klukkan 14 á morgun, þriðjudag og stendur í slétta viku.
Frambjóðendur til stjórnar í stafrófsröð
- Anna Guðrún Jóhannesdóttir, kennari í Glerárskóla
- Birna Gunnlaugsdóttir, umsjónarkennari í Breiðholtsskóla
- Eva Káradóttir, kennari í Grunnskólanum í Hveragerði
- Geirlaug Ottósdóttir, kennari í Álftamýrarskóla
- Hreiðar Oddsson, kennari í Álfhólsskóla
- Íris Árný Magnúsdóttir, sérkennari í Vallaskóla
- Jens Guðjón Einarsson, kennari í Stóru-Vogaskóla
- Jón Ingi Gíslason, formaður Kennarafélags Reykjavíkur
- Kolbrún Guðmundsdóttir, kennari í Sunnulækjarskóla
- Kristín Björnsdóttir, umsjónarkennari í Sunnulækjarskóla
- Lára Guðrún Agnarsdóttir, kennari í Austurbæjarskóla
- Lilja Margrét Möller, umsjónarkennari í Austurbæjarskóla
- Sigurður Freyr Sigurðarson (Bibbi), umsjónarkennari í Hlíðarskóla
- Svava Þ. Hjaltalín, kennari í Giljaskóla
- Örlygur Þór Helgason, sérkennari í Kvíslarskóla
Kosnir verða sex aðalmenn og fimm varamenn
Frambjóðendur í samninganefnd FG eru í stafrófsröð
- Eðvarð Hilmarsson, umsjónarkennari í Fellaskóla
- Eygló Karlsdóttir, kennari í Grundaskóla
- Eva Káradóttir, kennari í Grunnskólanum í Hveragerði
- Guðrún Sólveig Ágústsdóttir, umsjónarkennari í Fellaskóla
- Hreiðar Oddsson, kennari í Álfhólsskóla
- Kristján Arnar Ingason, umsjónarkennari í Fellaskóla
- Sigfús Aðalsteinsson, umsjónarkennari í Giljaskóla
- Þóra Kristinsdóttir, umsjónarkennari í Vesturbæjarskóla
- Örlygur Þór Helgason, sérkennari í Kvíslarskóla
Kosnir verða fimm aðalmenn og fimm varamenn
Frambjóðendur til skólamálanefndar í stafrófsfröð
- Árný Jóna Stefánsdóttir, umsjónarkennari í Kópavogsskóla
- Dagný Rósa Úlfarsdóttir, umsjónarkennari í Höfðaskóla
- Guðbjörg Íris Atladóttir, umsjónarkennari í Rimaskóla
- Guðrún Hannesdóttir, kennari í Austurbæjarskóla
- Jón Hjörtur Sigurðarson, kennari í Flóaskóla
- Kristín Björnsdóttir, umsjónarkennari í Sunnulækjarskóla
- Lára Guðrún Agnarsdóttir, kennari í Austurbæjarskóla
- Pollý Rósa Brynjólfsdóttir, sérkennari í Brekkuskóla
- Svava Þ. Hjaltalín, kennari í Giljaskóla
- Úlfhildur H. Guðbjartsdóttir, kennari í Kvíslarskóla
- Þorbjörg Guðumdsdóttir, kennari í Akurskóla
- Þorbjörg Ólafsdóttir, umsjónarkennari í Síðuskóla
- Þórey Björk Hjaltadóttir, umsjónarkennari í Ölduselsskóla
Kosnir verða sex aðalmenn og sex varamenn. Atkvæðamagn ræður hvaða sæti hver frambjóðandi fær.
Frambjóðendur til kjörnefndar í stafrófsröð
- Elín Guðfinna Thorarensen, umsjónarkennari í Ölduselsskóla
- Erla Rán Kjartansdóttir, umsjónarkennari í Brekkuskóla
- Inga Lóa Hannesdóttir, umsjónarkennari í Kirkjubæjarskóla
- Páll Erlingsson, umsjónarkennari í Grunnskóla Grindavíkur
- Þórey Björk Hjaltadóttir, umsjónarkennari í Ölduselsskóla
Kosnir verða þrír aðalmenn. Venjan er að kjósa þrjá varamenn en þeir verða tveir að svo stöddu.
Fréttin var uppfærð 26. maí en þá dró Alda Guðrún Áskelsdóttir framboð sitt til stjórnar og samninganefndar til baka.