Allir sem vettlingi geta valdið – ályktun FL

Fréttir|24. apríl 2024

Stjórn Félags leikskólakennara tekur ekki undir yfirlýsingar stjórnmálafólks þar sem boðaðar eru skyndilausnir sem engu skila. Þess í stað er brýnt að staðið verði við gefin loforð um jöfnun launa milli markaða. Þetta kemur fram í nýrri ályktun stjórnar FL.

Stjórn Félags leikskólakennara (FL) hefur sent frá sér ályktun vegna frétta af vettlingagjörningi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Fulltrúarnir röðuðu upp 1600 vettlingum sem að þeirra sögn táknar fjölda barna sem bíða eftir leikskólavist. 

Stjórn FL bendir á að engin vinna sé á gangi er kemur að því að taka 5 ára börn inn í grunnskóla. Stjórn FL leggst gegn þeim hugmyndum, og segir það sýn félagsins að það fyrirkomulag sé börnum ekki fyrir bestu. 

Þá hvetur stjórnin til þess að sveitarfélögin uppfylli að fullu samkomulag um jöfnun launa milli markaða, sem var undirritað fyrir löngu. „Sé það gert verður um að ræða raunhæfa leið til að gera það sem skiptir öllu máli – sem er að fjölga kennurum á leikskólastiginu," segir í niðurlagi ályktunarinnar. 

 

Ályktunin hljóðar svo í heild: 

Allir sem vettlingi geta valdið

Í ljósi frétta um vettlingagjörning Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkurborgar vill stjórn Félags leikskólakennara taka fram að það er engin formleg vinna í tengslum við kjarasamninga í gangi varðandi skipulagningu skólastarfs í leikskólum og því síður vinna í gangi að skoða að taka 5 ára börn í grunnskóla. Stjórn Félags leikskólakennara leggst gegn hugmyndum sem einhvers konar lausn á vanda leikskólastigsins að taka börn 5 ára í grunnskóla og er það sýn félagsins að það sé ekki börnum fyrir bestu.

Stjórn Félags leikskólakennara leggur til að í stað innihaldslausra skyndilausna og gjörninga sem engu skila að sveitarfélögin uppfylli að fullu undirritað samkomulag og loforð um jöfnun launa á milli markaða. Sé það gert verður um að ræða raunhæfa leið til að  gera það sem skiptir öllu máli – sem er að fjölga kennurum á leikskólastiginu.

24. apríl 2024

Stjórn Félags leikskólakennara