Allir eru góðir í einhverju, enginn er góður í öllu

Fréttir|1. desember 2019

Leikskólarnir Skógarland og Tjarnarland á Egilsstöðum voru sameinaðir árið 2012 og fékk sameinaður leikskóli nafnið Tjarnarskógur. 187 börn eru nú í leikskólanum sem er starfræktur í tveimur húsum eða starfsstöðvum, Skógarlandi og Tjarnarlandi. Deildirnar eru níu. Á Skógarlandi eru sex deildir með börnum á aldrinum eins til fjögurra ára en á Tjarnarlandi eru tvær deildir með fjögurra og fimm ára börnum.

Leikskólarnir Skógarland og Tjarnarland á Egilsstöðum voru sameinaðir árið 2012 og fékk sameinaður leikskóli nafnið Tjarnarskógur. 187 börn eru nú í leikskólanum sem er starfræktur í tveimur húsum eða starfsstöðvum, Skógarlandi og Tjarnarlandi. Deildirnar eru níu. Á Skógarlandi eru sex deildir með börnum á aldrinum eins til fjögurra ára en á Tjarnarlandi eru tvær deildir með fjögurra og fimm ára börnum.

„Þegar leikskólarnir voru sameinaðir þurftu þeir að sameinast um eitthvað ákveðið,“ segir Borghildur Sigurðardóttir sérkennslustjóri, „og eftir fagfund með leikskólakennurum haustið 2012 kom í ljós að fjölgreindakenning Howards Gardners var það sem við gátum orðið sammála um að vinna með. Skólaárið 2012/2013 fór svolítið í að útfæra það hvernig við ætluðum að vinna með fjölgreindirnar. Skipt var niður í hópa og hópur leikskólakennara útfærði hvernig vinnan færi af stað. Fyrstu árin vorum við síðan að fóta okkur varðandi hvernig við vildum hafa þetta.“

„Hugsunin hjá okkur var að greindirnar þróa alhliða þroska barna,“ segir Lembi Seia Sangla aðstoðarleikskólastjóri.

Tvær greindir í einu

Unnið er í fjórum lotum yfir árið og lögð áhersla á tvær greindir í einu, í um einn og hálfan mánuð. Síðan líður alltaf smá tími þar til næstu tvær greindir eru teknar fyrir.
„Við kennum börnunum á yngri deildum á haustin hvernig á að vera í leikskóla, en þau þurfa að átta sig á umhverfinu og sjálfum sér,“ segir Seia. „Síðan er þetta útfært miðað við hvern aldur,“ segir hún en á haustin er alltaf byrjað á samskipta- og sjálfsstyrkingargreind.

„Ástæðan fyrir því að við ákváðum að leggja áherslu á þessar tvær greindir á haustin er að þá eru börnin jafnvel að byrja á nýrri deild og kynnast eða sameinast á nýjum deildum og þá fara þau mikið í vinaleiki,“ segir Borghildur. „Og greindirnar tengjast samverustundunum,“ segir Seia.

Kubbavika tekur svo við og þá er leikskólinn að sögn Sigríðar Herdísar Pálsdóttur leikskólastjóra svolítið undirlagður af kubbum og fá byggingar úr kubbum að standa í svolítinn tíma þá vikuna.

„Mál- og stærðfræðigreind eru svo næstu tvær greindir en við tökum ekki neinar greindir fyrir í desember af því að þá er svo margt annað í gangi,“ segir Sigríður. „Þá erum við bara að hugsa um jólin, föndra og hafa það kósí.“

Tónlistar- og rýmisgreind eru svo teknar fyrir í febrúar og mars og að þeim loknum er dansvika.

Að lokum eru það hreyfi- og umhverfisgreind í apríl og maí og þá er farið með börnin í gönguferðir. Gönguferðirnar eru einnig nýttar í að tína rusl til að gera þau meðvitaðri um umhverfið. Engar greindir eru teknar fyrir yfir sumarmánuðina.

Gerðar eru ferilmöppur fyrir hvert barn í leikskólanum og segir Borghildur að þær séu meðal annars hugsaðar til að tengja við greindirnar en yfir árið er ýmsum verkefnum barnanna og ljósmyndum sem kennarar taka og sem tengjast greindunum safnað saman og sett í möppurnar. Foreldrar geta þannig fylgst með því hvernig unnið er með greindirnar. Að leikskólagöngu lokinni fá svo börnin ferilmöppurnar með sér heim.

Málörvun skipar stóran sess í starfi leikskólans. Sérstaklega er hugað að börnum með annað tungumál. „Við höfum stundum lagt áherslu á myndir varðandi erlendu börnin, sem og yngstu börnin sem eru komin stutt á veg,“ segir Borghildur. „Þau sjá þess vegna skipulag dagsins myndrænt. Við höfum líka lagt áherslu á tákn með tali, sérstaklega út frá tvítyngdu börnunum. Tvítyngd börn fá sérkennslutíma í íslensku þegar þau eru orðin þriggja ára og ef við teljum þörf á því.“

Auka fjölbreytnina

Þegar þær eru spurðar um helstu kosti við að nota þessa kenningu segir Borghildur að sér finnist fjölgreindirnar auka fjölbreytnina í leikskólastarfinu. Seia bætir því við að starfsfólk útfæri greindavinnu eftir aldri barna þannig að þau séu ekki að gera það sama ár frá ári og að sér finnist vera kostur að greindirnar fléttast mikið saman. Hún tekur sem dæmi að þó hún sé að vinna með tónlistargreind þá geti hún bætt þar við rýmisgreind og sjálfsstyrkingargreind.

„Ég finn að kennararnir vilja halda áfram að nota greindirnar,“ segir Sigríður. „Þeim finnst þægilegt að nota þær af því að þeir eru orðnir nokkuð öruggir í þessu. Við teljum samt að við getum dýpkað þetta enn betur. Nú er þessi hring­ur orðinn fastur í sessi og kennarnir búnir að taka saman hugmyndabanka um hvernig á að vinna út frá hverri greind þannig að þetta er orðið mjög aðgengilegt. Mér finnst helsti kosturinn vera að þetta rammar vel inn starfið.“

„Þegar maður vinnur með greindirnar,“ segir Borghildur, „og einblínir á þær þá áttar maður sig á að eitthvað barn stendur kannski vel hvað varðar mál- og stærðfræðigreind en er svo illa samhæft og slakt í hreyfingum. Þá sér maður betur hvað þarf að efla. Sum börn eru góð í hreyfingum og þá fá þau að blómstra þegar við leggjum áherslu á hreyfigreindina. Það er ekki alltaf verið að einblína á það sama heldur fá börnin að styrkja sig í því sem þau eru góð í en þau upplifa líka annað sem þau eru ekki góð í og það er í lagi; þau þurfa ekki að vera góð í öllu. Það er svo mikilvægt að það sé mikil fjölbreytni í leikskólastarfi.“

„Það sem okkur finnst gott við fjölgreindakenninguna er að hún einblínir ekki á einhverja eina hæfni,“ segir Sigríður. „Allir eru góðir í einhverju og enginn er góður í öllu.“

Dýpka á vinnuna enn frekar

Sigríður, Borghildur og Seia eru spurðar hverjir séu helstu gallarnir við að vinna með greindirnar og segir Borghildur að í leikskólanum starfi færra fagfólk en æskilegt væri, þó Tjarnarskógur sé betur settur hvað þetta varðar en margir aðrir leikskólar. „Starfsfólk þarf að lesa sér til um greindirnar og kynna sér þær og margir ómenntaðir starfsmenn í leikskólanum hafa ekki sama áhuga á greindunum og þeir sem eru kennaramenntaðir. Þeir stoppa kannski stutt við í leikskólastarfi og hafa ekki þann tíma sem þarf til að dýpka sig nógu mikið í þessu. Ég held að það sé vel þekkt.“

Sum börn eru góð í hreyfingum og þá fá þau að blómstra þegar við leggjum áherslu á hreyfigreindina.

„Nýtt starfsfólk þarf að fá tilsögn til að geta tekið þátt í skipulögðu starfi,“ segir Seia og bætir Borghildur við að slíkt sé oft ekki hægt vegna tímaleysis.

Þegar þær eru spurðar hvernig starfsfólk fái þjálfun í greindunum segir Sigríður að því sé svolítið kastað út í djúpu laugina. „Við erum með hugmyndabankann sem ég nefndi áðan,“ segir Sigríður, „þar sem eru til dæmis allar upplýsingar varðandi hvað hægt er að vinna með hverri greind og hvernig unnið er með greindirnar og er kennurum bent á að kynna sér þetta. Svo er oft best að sjá þetta í framkvæmd og deildarstjórarnir hafa verið ágætir í að leiðbeina fólki. Starfsfólk þarf að vera meðvitað um það þegar skipt er um greindir og þarf að skipuleggja sig fram í tímann. Það er merkt inn á skóladagatalið hvenær lögð er áhersla á hverja greind og inn á viðburðadagatal fyrir hvern mánuð.“

Sigríður segir að það hafi verið tekið upp á starfsdegi hvort kennarar vildu halda áfram að leggja áherslu á fjölgreindakenninguna. Þar var ákveðið að halda áfram þeirri vinnu og dýpka hana enn frekar.

Búinn var til teymishópur innan skólans til að koma með hugmyndir.

Sigríður, Seia og Borghildur eru allar sammála um að vel hafi tekist að innleiða greindakenninguna. Sigríður kom reyndar ekki að þeirri vinnu í upphafi þar sem hún byrjaði ekki fyrr en 2014 en deildarstjórar ásamt kennurum fylgja þeirri vinnu mjög vel.

„Við teljum að það nýtist vel að vinna eftir fjölgreindakenningu Howard Gardners í leikskólum,“ segir Sigríður.

„Mikilvægt er þó að halda áfram að dýpka sig í kenningunni og fræða og upplýsa starfsfólk um tilgang og markmið hennar. Jákvætt er að horfa á ólíka þætti og hæfileika nemenda og kennara og hvernig hægt er að nýta þá í starfi leikskólans.“

 

Viðtalið birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2019.