Allir eru að vanda sig

Fréttir|8. maí 2020

Ásta Kristín Svavarsdóttir, leikskólastjóri í leikskólanum Sæborg, deilir reynslu sinni úr leikskólanum síðustu vikur.

„Þetta verður til þess að maður hugsar líka almennt um byggingu leikskóla í sambandi við fermetrafjölda á barn og við erum að sjá það að börnin eru að njóta sín margfalt betur í rýminu þegar þau eru svona fá,“ segir Ásta Kristín Svavarsdóttir leikskólastjóri.

Leikskólar héldu úti starfsemi á tímum COVID-19 en það þurfti að endurskipuleggja allt starf og fækka í hópum þannig að starfið var með breyttu sniði. Ásta Kristín kemur inn á að börn sem ekki fór mikið fyrir áður nutu sín miklu betur.

„Það sem mér finnst svo frábært, það er hvernig allir eru að taka á þessu. Þjóðfélagið í heild, starfsmenn, foreldrar og börnin. Þetta hefur einkennst af miklu jafnaðargeði og verkefnum sem við verðum að leysa og allir eru að vanda sig og annars hefði ekki tekist svona vel til,“ segir Ásta Kristín að lokum. Viðtalið við Ástu Kristínu er frumsýnt í dag.

 


 

Myndbönd KÍ

Við mælum líka með áhorfi á myndböndin sem hafa verið birt. Þau segja mikilvæga sögu um skólastarfið undanfarna mánuði, í ástandi sem fáa eða nokkurn óraði fyrir. 

Eftir helgi verður sjötta myndbandið birt og þar lýsir Jón Páll Haraldsson skólastjóri hvernig starfið í grunnskólanum tók breytingum á tímum COVID-19.