Allir eiga að geta orðið það sem þeir vilja

Fréttir|24. janúar 2023

#Kvennastarf hvetur fólk, sér í lagi yngri kynslóðir, til þess að láta ekki samfélagsleg kynhlutverk aftra sér. Öll eiga að geta orðið það sem þau vilja. Svo hljóða skilaboð átaksverkefnisins #kvennastarf sem hlaut Íslensku menntaverðlaunin á liðnu hausti.

Mýtan um að eðlilegt sé að starfsgreinar flokkist í kvennastörf og karlastörf er úrelt. Kynferði á ekki að hafa áhrif á námsval eða starfsvettvang. Öll eiga að geta starfað við það sem þau langar til.

Þetta eru skilaboð átaksverkefnisins #kvennastarf sem snýst um að vekja athygli á fjölbreyttum störfum í iðn-, tækni- og verkgreinum og benda ungu kynslóðinni á að öllum kynjum eru allar leiðir færar í námi og starfi.

Verkefnið hlaut Íslensku menntaverðlaunin í ár fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar með því að stuðla að auknu jafnrétti til náms.

Skólavarðan ræddi við Ólaf Svein Jóhannesson, deildarstjóra markaðs- og kynningardeildar Tækniskólans, um átakið, tilurð þess og tilgang.

„Það verður að viðurkennast að þetta var alveg óvart í upphafi. Upphaflega, þegar við vorum að setja saman einhvers konar kynningarátak á lítilli skrifstofu í Tækniskólanum, var markmiðið að reyna að fá fleiri nemendur til að sækja um í Tækniskólann og í iðngreinar eftir grunnskóla,“ segir Ólafur Sveinn. En iðn- og verkmenntaskólar á Íslandi stefna á að fjölga fagmenntuðu fólki og markmiðið er að 20% grunnskólanema velji starfsmenntun fyrir árið 2025 og 30% árið 2030.

„Í dag er hlutfallið um 14% á landsvísu. Árið 2017, þegar við vorum að fara af stað með átakið, var hlutfallið undir 10%,“ segir Ólafur og heldur áfram: „Þegar við fórum að rýna í tölurnar blasti við ákveðið gap á þessum markaði. Bara ein kona í bifvélavirkjun, tvær í rafvirkjun og svo framvegis. Þá fórum við að lista upp að gamni hvað við gætum kallað „karllægar“ iðngreinar og þær voru ansi margar – og hlutfall kvenna lágt.“
Ljóst var að ef konum myndi fjölga í iðngreinum, jafnvel þótt það yrði ekki stórtæk aukning, yrði markmið iðn- og verkmenntaskólanna um að fjölga fagmenntuðu fólki mun framkvæmanlegra, segir Ólafur Sveinn.

Afl í sýnileikanum

Úr varð að fara af stað með herferðina ­#kvennastarf til að hvetja ungt fólk, sér í lagi stelpur, til að skoða alla möguleika í vali á námi og framtíðarstarfi og horfa opnum augum á hvar áhugasvið þeirra liggur.

Einn liður í því var að gera konurnar sem þegar ruddu brautina sýnilegar. Gera þær að fyrirmynd í námi og starfi og sýnilegri ungu kynslóðinni til að sanna að allir geta starfað við það sem þau langar til.

„Ef við hugsum til dæmis um ákveðnar iðngreinar, svo sem sjómennsku, sjáum við helst fyrir okkur karlmenn að störfum. Til að fá fleiri ungar konur til að sækja um í þetta nám verðum við auðvitað að sýna þeim að það séu raunverulega konur að vinna við þessi störf, hvort sem það er bifvélavirkjun, rafvirkjun, skipstjórnun og svo framvegis,“ segir Ólafur Sveinn.

Með #kvennastarf er ætlunin að sýna fram á að kynjahallinn sem er í iðn- og verkgreinum er óþarfur. Ef ungt fólk af öllum kynjum sér tækifæri í starfsmenntun verður auðveldara að fjölga nemendum í þessum greinum og fleira fagmenntað fólk verður til í íslensku atvinnulífi.

„Rannsóknir sýna fram á mikilvægi þess að einstaklingar, á hvaða starfsvettvangi sem er, geti speglað sig í þeim persónum sem eru í forsvari fyrir þann vettvang,“ bætir hann við. Erfitt geti verið að koma inn á vinnumarkað og tilheyra minnihlutahópi og slíkt getur haft fælandi áhrif.

„Það er okkar upplifun, til dæmis af því að hafa fengið grunnskólanemendur í heimsókn hér í Tækniskólann, að viðhorfið breytist mjög fljótt. Þegar við göngum til dæmis í gegnum húsgagnasmíðadeildina heyrist: „Já, eru stelpur þarna? Eru þær að gera þetta?““.
Þó fór átakið ekki vel í alla innan geirans í fyrstu. „Ég get alveg sagt það núna að það voru ekki allir sem við kynntum þetta átak fyrir hrifnir af því á sínum tíma. Við vorum meira að segja beðin um að gera þetta ekki og beðin um að draga til baka heitið á átakinu, því það væri stuðandi. En núna, fimm árum síðar, er staðan og viðhorfið allt annað,“ segir Ólafur Sveinn.

Árangurinn bersýnilegur

„Eftir að við birtum efnið okkar; myndirnar, myndböndin, vefsíðuna og Facebook-síðuna, var eins og konur hefðu fengið vettvang fyrir umræðuna. Þær sögðu margar frá sínum störfum á starfsvettvangi þar sem þær voru einar, eða ein af afar fáum. Til dæmis eina konan í slökkviliði eða ein af fáum olíuflutningabílstjórum. Svo vatt þetta upp á sig og allt í einu voru vísindakonur í háskólanum farnar að nýta vettvanginn og birta myllumerkið með orðunum „að vera vísindamaður er líka #kvennastarf“, eða „að vera bankastjóri er líka #kvennastarf“. Þetta vatt þannig upp á sig og varpaði ljósi á fyrirmyndir bæði innan og utan hinna hefðbundnu „karllægu“ iðngreina og myndaði þessi snjóboltaáhrif sem voru svo áhrifarík.“
Og átakið er að skila sér: „Við erum að fá fleiri konur inn. Það er markmiðið; fleiri fyrirmyndir fyrir yngra fólk til að spegla sig í.“

#Kvennastarf hvetur fólk, sér í lagi yngri kynslóðir, til þess að láta ekki samfélagsleg kynhlutverk aftra sér. Öll eiga að geta orðið það sem þau vilja.

Ólafur Sveinn segir farsæld verkefnisins þeim konum sem tóku þátt í átakinu og starfinu að þakka. „Okkar þáttur var meira falinn í því að skapa vettvang fyrir þessar konur til að stíga fram og vera sýnilegar á sínu sviði.“

En hvað er svo lokamarkmiðið? „Skólameistari Tækniskólans, Hildur Ingvarsdóttir, orðaði það ágætlega og ég leyfi mér að vitna í hana,“ segir Ólafur. „Þegar átakinu var hleypt af stokkunum voru viðbrögðin meira sjokk: „Vá, ertu að meina það? Er engin kona að læra pípulagnir?“ Í dag erum við meira að hampa þeim konum sem eru í náminu og eru að standa sig vel. Markmiðið er svo að þetta verði bara hluti af norminu. Að það verði ekki eftirtektar­vert þegar það mætir þér kona á bifvélaverkstæðinu.“

„Rannsóknir hafa sýnt að blandaðir vinnustaðir, með öllum kynjum, eru betri vinnustaðir. Það eru þeir vinnustaðir sem flestir sækjast í að vinna hjá. Vinnustaðir þar sem þú getur speglað þig í samstarfsfólkinu þínu, bætir hann við að lokum.“

Hvað felst í átakinu #kvennastarf?

Birtar hafa verið ljósmyndir sem sýna stúlkur í námi eða störfum í iðngreinum sem lengi hafa verið „karlagreinar“.

Gefin hafa verið út myndbönd um nám og störf kvenna í ýmsum faggreinum, til dæmis vélstjórn, pípulögnum og flugi. Myndböndin segja sögu kvenkyns frumkvöðla í karllægum iðngreinum.

Þá var opnuð vefsíðan kvennastarf.is en þar er að finna gagnlegar upplýsingar um málefnið, tengingar við samfélagsmiðla og tölfræðiupplýsingar.

Konur, sérstaklega í verk- og iðngreinum, hafa verið hvattar til að taka þátt og virkja myllumerkið #kvennastarf með því að setja myndir úr námi og starfi eða öðru sem tengdist átakinu, inn á samfélagsmiðla á borð við Twitter, Instagram og Facebook.

 

Að baki #kvennastarf standa

Átaksverkefnið #kvennastarf er samstarfsverkefni allra iðn- og verkmenntaskóla í landinu sem Tækniskólinn fer fyrir.

  • Borgarholtsskóli
  • Fjölbrautaskólinn við Ármúla
  • Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
  • Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
  • Fjölbrautaskóli Suðurlands
  • Fjölbrautaskóli Suðurnesja
  • Fjölbrautaskóli Vesturlands
  • Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
  • Menntaskólinn í Kópavogi
  • Menntaskólinn Ísafirði
  • Samtök iðnaðarins
  • Tækniskólinn – skóli atvinnulífsins
  • Verk- og tækninám – nema hvað!
  • Verkmenntaskólinn á Akureyri
  • Verkmenntaskóli Austurlands

 

Greinin var birt í Skólavörðunni, 2. tbl. 2022.