Alison Milner og Haldis Holst tala á ráðstefnu KÍ

Heiðursgestir á ráðstefnu KÍ verða þær Haldis Holst og Alison Milner en báðar eru þær virtar á vettvangi menntamála á heimsvísu. Ráðstefnan, sem ber heitið Skóli nútíðar – vegvísir til framtíðar, fer fram í Hörpu á þriðjudag. Skráning stendur yfir.
Skóli nútíðar – vegvísir framtíðar er yfirskrift ráðstefnu KÍ sem fer fram í Silfurbergi, Hörpu, þriðjudaginn 9. apríl. Ráðstefnan verður í formi fyrirlestra að morgni, pallborð um hádegisbil og eftir hádegi geta gestir tekið þátt í umræðutorgum í fjórum sölum.
Heiðursgestir á ráðstefnunni verða þær Haldis Holst, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka kennara (Education International) og Alison Louise Milner, lektor við Álaborgarháskóla.
Meginefni ráðstefnunnar verður byggt á niðurstöðum viðamikillar viðhorfs- og þjónustukönnunar sem Kennarasambandið lagði fyrir félagsmenn í febrúar síðastliðnum. Formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson, mun kynna meginniðurstöður könnunarinnar á ráðstefnunni.
Formenn aðildarfélaga KÍ munu sitja í pallborði og ræða niðurstöður könnunarinnar og áskoranir sem þar felast.

Haldis Holst hefur verið virk í starfi Norska kennarasambandsins um árabil. Hún hefur kennt í grunn- og framhaldsskóla auk þess að vera trúnaðarmaður. Nú er hún aðstoðarframkvæmdastjóri Education International þar sem hún vinnur að málaflokkum sem tengjast mannréttindum, jafnrétti og verkalýðsfélögum víða um heim.
Fjölbreytt umræða á torgum
Efir hádegi verður efnt til umræðutorga á fjórum stöðum í Hörpu; tvö verður að finna í Silfurbergi og önnur tvö í Björtuloftum og Rímu.
Þannig verður boðið upp á fjórar "málstofur" í einu og þetta verður gert tvisvar sinnum með kaffihléi á milli.
Fagvitund, stjórnun, menning, líðan, álag, nýliðun, dreifbýli, umfang og erlent samstarf eru meðal málefna sem verða rædd.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, segir ráðstefnuna verða mikilvægan þátt í stefnumörkun KÍ til framtíðar og þar skipti öllu að raddir skólafólks fái að heyrast.
„Kennarasambandið horfir til ráðstefnunnar sem stórs þáttar í stefnumörkun okkar, bæði hjá heildarsamtökunum en einnig hjá hverju aðildarfélagi. Við höfum undanfarin ár greint stöðugt meiri áherslu félagsfólks á skólamálaþátt starfsins sem og kröfur um bætt starfsumhverfi í takt við væntingar til starfa. Ráðstefnan er skref á þeirri leið, í kjölfar hennar munu lykilatriðin rata inn í stefnumótun þá er snýr að störfum félagsfólks KÍ," skrifaði Magnús Þór í pistli fyrir skemmstu.

Alison Louise Milner er aðstoðarprófessor við Háskólann í Álaborg. Hún á að baki langan fræðaferil á vettvangi menntavísinda. Hún hefur rannsakað fagmennsku kennara, menntastefnur, menntakerfi og stéttarfélög kennara. Hún mun fjalla um hvernig best verður haldið á kennurum í starfi þannig að þeir búi við starfsánægju og haldi starfið vel út.
Viltu koma á ráðstefnuna?
Félagsfólk KÍ er hvatt til að koma á ráðstefnuna ef það hefur tök á. Aðgangseyrir er 2500 fyrir félaga í KÍ en 5000 fyrir aðra. Ráðstefnan stendur frá 9:30 til 16:00 en þess má geta að boðið verður upp á léttar veitingar og spjall í lokin.