Alhliða inngilding og andrasismi þar á meðal

Fréttir|17. apríl 2025

Landskrifstofa eTwinning sendi á dögunum fjóra kennara á norræna eTwinning ráðstefnu um andrasmisma í skólastarfi. Þau Selma og Hólmfríður frá Stapaskóla og Sigurður Halldór og Þorvaldur frá Vallaskóla segja frá ferðinni og framhaldinu.

Í núverandi Erasmus+ áætlun er lögð mikil áhersla á inngildingu og fjölbreytileika sem eru þar af leiðandi mikilvægir þættir í starfi eTwinning.

Síðustu misseri hefur hugtakið verið mikið á milli tannanna á fólki en það er ekki víst að allir viti hvað það þýðir. Inngilding er nefnilega ekki bara eitthvað eitt, heldur fjöldi ólíkra aðgerða sem við þurfum að vinna sem einstaklingar til að skapa öruggt rými fyrir þau sem við vinnum með (og okkur sjálf!). Margt fólk tengir inngildingu einungis við aðgengismál en hugsa þarf um inngildingu í mun víðtækara samhengi. Hægt er að líta á inngildingu sem virka forvarnaraðgerð gegn hvers konar fordómum og mismunun.

Það er mikilvægt fyrir þátttakendur í Erasmus+ og stoðverkefnum eins og eTwinning að sækja sér fræðslu til að kynna sér betur hvernig hægt sé að stuðla að meira inngildandi skóla- og æskulýðsstarfi. Slík fræðsla hjálpar kennurum og starfsfólki skóla að átta sig á fjölbreyttum aðstæðum og hindrunum sem nemendur þeirra upplifa.

Hér fyrir neðan er frásögn frá nokkrum kennurum sem landsskrifstofa eTwinning á Íslandi sendi á norræna eTwinning ráðstefnu í apríl 2024 um andrasisma í skólastarfi. Andrasismi er sú virka gjörð að vinna gegn rasisma, og er ólík því að vera einfaldlega á móti rasisma í orði kveðnu án þess að í raun aðhafast nokkuð.

Við gefum Selmu Ruth Iqbal og Hólmfríði Rún Guðmundsdóttur frá Stapaskóla og Sigurði Halldóri Jessyni og Þorvaldi H. Gunnarssyni frá Vallaskóla orðið, en þau koma með nokkur gagnleg dæmi um inngildandi skólastarf og verkefni í greininni.

„Þegar við heyrðum um ráðstefnu eTwinning um andrasisma í skólaumhverfinu í Finnlandi vissum við að hér væri um að ræða mikilvæga ráðstefnu um efni sem er okkur hjartans mál.

Við sáum tækifæri til að öðlast frekari verkfæri til að takast á við fordóma, sem því miður eiga sér stað innan veggja grunnskólanna, ásamt því að efla tengslanet okkar við kennara víða um Evrópu.
Við fórum fjögur frá Íslandi á ráðstefnuna, Selma og Hólmfríður frá Stapaskóla og Sigurður Halldór og Þorvaldur frá Vallaskóla.

Við lögðum af stað snemma morguns þann 23. apríl og þegar við lentum í Finnlandi tók á móti okkur hvít jörð. Ekki alveg veðrið sem við vorum að búast við á þessum árstíma og Finnarnir virtust jafn hissa og við á þessu veðurfari. Við tókum öll saman leigubíl á hótelið og nýttum daginn í að jafna okkur á flugþreytunni og skoða okkur um á nýjum slóðum.

Ráðstefnan var á ráðstefnuhótelinu Hotel Hanaholmen í Espoo, Finnlandi, dagana 24.-26. apríl. Hótelið stendur í fallegu umhverfi við hafið og er aðeins í 10 mínútna fjarlægð frá Helsinki.

Á fyrsta degi var hópnum skipt í lið og farið var í skemmtilegan ratleik í kringum hótelið til að þjappa hópnum saman

Besti framhaldsskólakennari Danmerkur deildi reynslu sinni

Markmið ráðstefnunnar var að gefa kennurum verkfæri til þess að verða andrasískir og mikil áhersla lögð á umræður og samvinnu þátttakenda. Erindið sem stóð upp úr á ráðstefnunni var frá Kader Maikal sem er framhaldsskólakennari í Danmörku. Kader talar sjö tungumál og hefur verið valinn besti framhaldsskólakennarinn í Danmörku.

Í erindi sínu sagði hann frá beinum og óbeinum fordómum sem hann verður reglulega fyrir í Danmörku en hann á rætur að rekja til Djibouti. Það var átakanlegt að heyra um fordómana sem hann upplifir en á sama tíma aðdáunarvert að heyra hvernig hann tekst á við þá.

Í erindi sínu fjallaði Kader um ýmsar aðferðir sem hann notar í starfi sínu sem kennari til að vinna gegn fordómum. Hann leggur mikla áherslu á að kennarar þekki bakgrunn nemenda sinna og sýni þeim áhuga.

Hann byrjar hvert skólaár á því að fá nemendur til að kynna sig með nafni fyrir bekknum til þess að læra strax að bera nöfn nemenda sinna rétt fram. Þessi einfalda athöfn er gríðarlega mikilvæg, enda eru nöfn hluti af sjálfsmynd okkar. Þegar nemendur útskrifast, þá lesa kennarar upp nöfn nemenda svo að þau séu borin fram rétt og skólastjóri afhendir prófskírteini.

Við upphaf skólaárs leggur Kader til að kennarar láti nemendur skrifa niður eitthvað eitt sem þau elska og eitt sem þau hata. Þannig eru þeir strax komnir með ákveðið verkfæri til að þekkja nemendur sína betur.

Það var átakanlegt að heyra um fordómana sem hann upplifir en á sama tíma aðdáunarvert að heyra hvernig hann tekst á við þá

Kader raðar nemendum sínum handahófskennt í sæti en rannsóknir hafa sýnt að það að sitja með einhverjum í 15 mínútur vekur upp samkennd, en þó er mikilvægt að fá nemendur einnig til að eiga samskipti.

Kader fjallaði einnig um mikilvægi þess að fræða nemendur um fordóma og kenna þeim ákveðin hugtök til að átta sig á rasisma, eins og til dæmis rasismi, mismunun og andrasismi. Þessi fræðsla skiptir alveg jafn miklu máli þó að nemendahópurinn sé ekki fjölbreyttur. Jafnframt er mikilvægt að gera ekki ráð fyrir því að nemendur í minnihlutahópum vilji taka ábyrgð í verkefnum sem tengjast rasisma eða vinnu gegn rasisma.

Kader segir afar mikilvægt að skólar séu með aðgerðaáætlun gegn rasisma en þannig er hægt að tryggja að markvisst sé unnið gegn fordómum í skólanum og að nemendur sem upplifa fordóma fái stuðning í skólanum. Ef nemandi er með fordóma í skólanum er mikilvægt að fá foreldra á fund og finna með þeim leiðir til að koma í veg fyrir þá.

Sjálfsmynd í formi ljóða og lista

Á ráðstefnunni kynntumst við fullt af frábærum kennurum, enda var mikil áhersla lögð á hópavinnu og umræður. Hólmfríður og Selma hafa ekki tekið þátt í eTwinning verkefni áður, en á ráðstefnunni var farið yfir tækifærin sem felast í eTwinning verkefnum og kennurum sýnt hvernig hægt er að stofna verkefni og öll voru hvött til að koma með hugmynd að verkefni.

Selma kom með hugmynd að eTwinning verkefni sem byggir á verkefni sem hún hefur unnið með nemendum í Stapaskóla. Verkefnið heitir Ink of Unity – Celebrating our true colors og byggir á Humanae verki listakonunnar Angelicu Dass.

Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á raunverulega húðliti fólks frekar en „svartan“, „hvítan“, „rauðan“ og „gulan“ sem tengt er við kynþætti og að brjóta upp staðalímyndir um húðliti ákveðinna þjóða. Í verkefninu vinna nemendur sjálfsmyndir í anda Angelicu Dass.

Við útfærðum svo verkefnið okkar eftir samtal við kollega okkar í Svíþjóð sem var með hugmynd að eTwinning verkefni um bókaljóð (e. found poem). Hún var áhugasöm um okkar verkefni og við hennar, svo að við sameinuðum verkefni okkar í eitt og nemendur semja því einnig bókaljóð sem tengist sjálfsmynd þeirra. Í lokin verður afrakstur vinnunnar settur saman í bók, bæði myndir nemenda og ljóðin þeirra.

Hólmfríður, Selma og Brianne frá Svíþjóð í miðbæ Helsinki þegar ráðstefnuhópurinn fór saman út að borða

Við byrjuðum á verkefninu núna í haust, erum komnar í samstarf við skóla í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Lúxemborg, Þýskalandi og Danmörku og erum mjög spenntar fyrir fyrsta eTwinning verkefninu okkar.

Við sjáum strax hvað ávinningurinn af svona verkefnum er mikill, við náðum að útfæra okkar hugmynd á enn betri hátt í samvinnu við kennara frá öðrum löndum og við erum sífellt að læra af hvert öðru, hvert með sinn bakgrunn og þekkingu og sjáum hlutina frá ólíkum sjónarhornum, sem er frábært.

Við teljum ávinning fyrir nemendur líka mikinn í svona samstarfi, þeir öðlast tækifæri til að kynnast krökkum frá öðrum löndum, bæta enskukunnáttu sína og það að vinna samvinnuverkefni með öðrum þvert á landamæri víkkar sjóndeildarhring þeirra.

Við erum strax komnar með hugmyndir að fleiri verkefnum og hlökkum til að taka þátt í fleiri eTwinning verkefnum í framtíðinni.

Sameining í forgrunni

Sigurður Halldór stofnaði líka til samstarfs við öflugan hóp fólks frá Belgíu, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð.

Verkefnið sem hann mun taka þátt í ber nafnið Mission possible og verður unnið með nemendum á aldrinum 9-11 ára. Reiknað með að verkefnið teygi sig yfir skólaárið 2024-2025 með möguleika á framhaldi skólaárið þar á eftir.

Mission possible snýst um að nemendur læri um sjálfa sig, um þátttökulöndin og það sem sameinar okkur öll. Eitt af markmiðum verkefnisins er að þjálfa nemendur okkar í samskiptum og umburðarlyndi fyrir skoðunum hvers annars. Lokaafrakstur verkefnisins verður box sem sent verður milli landa og mun innihalda hluti sem einkenna hvert land að mati nemenda.

Spennandi skólaár er framundan og gaman verður að takast á við eTwinning verkefni af stærri gráðu en áður.“