Aldrei réttlætanlegt að gera minni kröfur um sóttvarnir barna en annarra

Fréttir|1. nóvember 2020

Stjórn FG hefur sent frá sér ályktun þar sem farið er fram á að ráðherrar menntamála og heilbrigðismála endurskoði undanþágur frá sóttvarnarreglum í skólum og þær verði byggðar á sömu forsendum og gilda annars staðar í þjóðfélaginu.

Stjórn Félags grunnskólakennara sendi frá sér ályktun í kvöld þar sem segir meðal annars að aldrei sér réttlætanlegt að gera minni kröfur til sóttvarna barna en annarra þjóðfélagsþegna enda eigi þvert á móti að verja þann hóp framar öllum öðrum. 

Ályktunin hljóðar svo

Stjórn Félags grunnskólakennara tekur undir með menntamálaráðherra að „stærsta samfélagsverkefnið“ í faraldrinum sem nú gengur yfir sé að „tryggja menntun" barna.

Liður í því markmiði var að innleiða almennar sóttvarnarreglur í grunnskólanum. Þannig átti með samstilltu átaki í stuttan tíma að ná niður samfélagssmiti sem sett hefur þúsundir í sóttkví í grunnskólanum.

Sú vinna sem nú er verið að kynna í formi reglugerðar grefur alvarlega undan þessu markmiði. Þar má nefna að fjórir árgangar grunnskólans eru teknir undan sóttvarnarreglum um tveggja metra fjarlægðarbil og leyfi gefið fyrir allt að fimmtíu í hóp. 

Stjórn Félags grunnskólakennara fer fram á að menntamálaráðherra og heilbrigðisráðherra endurskoði undanþágur frá sóttvarnarreglum í grunnskólum þannig að sóttvarnarreglur í grunnskólum verði byggðar á sömu forsendum og annars staðar í þjóðfélaginu.

Það getur aldrei verið réttlætanlegt að gera minni kröfur til sóttvarna barna en annarra þjóðfélagsþegna, þvert á móti ber okkur að verja þau framar öllum öðrum.