Álag vegna fjarkennslu skal greitt á hættustundu

Fréttir|1. júní 2022

Félagsdómur felldi í gær dóm í tvíþættu máli Félags grunnskólakennara gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fallist var á kröfu FG um fjarkennsluálag en kröfu um yfirvinnugreiðslu vegna tilfærslu á vinnutíma kennara innan sömu vinnuviku, á hættustundu, var hafnað.

Kennarar, sem kenndu nemendum í fjarkennslu í nóvember og desember 2020, eiga rétt á að fá greitt 50% álag fyrir hverja kennslustund sem þeir inntu af hendi jafnvel þótt kennslan hafi farið fram á hættustundu, eða þegar hæsta stig almannavarna hefur verið virkjað. Þetta er niðurstaða dóms Félagsdóms sem féll í gær.

Félag grunnskólakennara var stefnandi í málinu gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sem var fulltrúi tveggja sveitarfélaga. Í málinu voru reifuð tvö ólík mál.

Annars vegar var það krafa FG um að kjarasamningi FG væri fylgt og greitt 50 prósent álag . Meðal röksemda stefnda, Sambandsins, var að líta mætti á breytta kennsluhætti sem hluta af borgaralegri skyldu á tímum hæsta neyðarstigs – og var vísað til bráðabirgðaákvæðis við lög um almannavarnir. Dómurinn fellst ekki á þetta og og ber atvinnurekanda að greiða fyrir vinnuna samkvæmt ákvæðum kjarasamnings.

 

Breyttar starfsskyldur

Hins vegar var deilt um hvort heimilt væri að færa vinnutíma kennara til innan vikulegs vinnutíma án þess að greiða yfirvinnu. FG fór fram á að kennari, sem alla jafna vann fjóra daga í viku en var gert að vinna fimm daga á tímum hæsta neyðarstigs, fengi greidda yfirvinnu fyrir vinnu á „fimmta deginum“. Vinnustundir kennarans voru í heild þær sömu og áður.

Félagsdómur metur það svo að gerð hafi verið tímabundin breyting á starfsskyldum kennarans án þess þó að starfsskyldur hafi verið auknar. Telur dómurinn breyttar starfsskyldur fá stoð í bráðabirgðaákvæði við lög um almannavarnir og „...skiptir grundvallarmáli að í þessu tilviki var vinnutími kennarans ekki aukinn og fjölgaði vinnustundum ekki frá því sem áður hafði verið ákveðið,“ segir í dómsorðinu. Því sé ekki, að mati dómsins, hægt að líta svo á kennarinn hafi innt af hendi vinnu umfram vinnuskyldu þannig að réttur skapist til greiðslu yfirvinnu.

Sambandi íslenskra sveitarfélaga er gert að greiða Félagi grunnskólakennara 300 þúsund krónur í málskostnað. Karl Óttar Pétursson, lögmaður FG, flutti málið.