Áhyggjur af mikilli fjölgun leiðbeinenda í grunnskólum landsins

Markvissasta leiðin til að ekki þurfi að ráða leiðbeindur til starfa er að gera laun félagsmanna FG samkeppnishæf við laun á almennum vinnumarkaði. Það væri í samræmi við loforð stjórnvalda við setningu laga um breytingar á lífeyrisréttindum, þar sem lýst var fyrirætlun um jöfnun launa á milli vinnumarkaða.
Sjöundi aðalfundur Félags grunnskólakennara sem fór fram dagana 17. og 18. maí 2018, lýsir yfir áhyggjum af mikilli fjölgun leiðbeinenda í grunnskólum landsins. Í dag eru starfandi á fimmta hundrað leiðbeinendur í skólum landsins og ljóst er að fjölmargir nemendur fá ekki kennslu frá sérfræðingi með leyfisbréf á grunnskólastigi.
Þessi mikli fjöldi leiðbeinenda skapar sífellt meira álag á starfandi kennara sem þurfa að nota hluta tíma síns í að aðstoða leiðbeinendur. Aðalfundur FG telur mikilvægt að bregðast við þessu því ekki er hægt að ætlast til að kennarinn bæti því álagi á sig án greiðslu fyrir þetta viðbótarverkefni.