Áhrif umhverfisþátta á heilsu og bjargráð

Nú er hægt að nálgast upptöku af fundi fræðslunefndar KÍ um innivist, rakaskemmdir og heilsu sem fór fram á Teams miðvikudaginn 10. maí. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innivist og Una Emilsdóttir sérnámslæknir fjölluðu um áhrif slæmrar innivistar á heilsu fólks og hvaða bjargráð eru til.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, ræddi einnig hlutverk Kennarasambandsins þegar kemur að starfsálagi vegna húsnæðismála skóla og stiklaði á stóru um stöðuna.
Hér er hægt að nálgast upptöku af fundinum.
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, sem er sérfræðingur í innivist hjá EFLU, fór yfir innivist og þá umhverfisþætti sem hafa áhrif á heilsu ásamt því að ræða nokkur veigamikil bjargráð.
Að loknu áhrifamiklu erindi hennar tók Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði, við og fjallaði um áhrif rakaskemmda í byggingum á heilsu manna, fór nánar út í einkenni og birtingarmyndir og bjargráð, áður en opnað var fyrir fyrirspurnir fundargesta.
Fundurinn var vel sóttur og viðtökur góðar. Hér er hægt að horfa á erindi fyrirlesara.