Áherslusvið Sprotasjóðs 2025 kynnt

Fréttir|9. október 2024

Áherslusvið Sprotasjóðs fyrir árið 2025 eru leikur, læsi og gervigreind. Opið verður fyrir umsóknir frá desember 2024 til 30. janúar 2025.

Sprotasjóður styrkir verkefni sem stuðla að þróun og nýjungum í skólastarfi  í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Áherslusvið sjóðsins fyrir árið 2025 eru þrjú:

  • Leikurinn sem leið til náms
  • Gervigreind
  • Grunnþáttur menntunar - Læsi

Opnað er fyrir umsóknir í sjóðinn í desember 2024 og umsóknarfrestur er til klukkan 15:00, fimmtudaginn 30. janúar 2025.

Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar geta sótt um styrk í Sprotasjóð fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.

Skilyrði úthlutunar

Sjá matskvarða Sprotasjóðs. Samkvæmt 6. grein reglugerðar um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla skal mat á umsóknum einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:

  • gildi og mikilvægi verkefnis með tilliti til hlutverks Sprotasjóðs,
  • verkefni feli í sér þróunarstarf innan skóla, samstarf milli skóla eða skólastiga,
  • verkefnið falli að þeim áherslum eða áherslusviðum er fram koma í auglýsingu,
  • líkum á því að umsækjanda/umsækjendum takist að ná þeim markmiðum er verkefnið miðar að,
  • starfsferli og faglegum eða fræðilegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda m.t.t. þeirra krafna sem verkefnið gerir til þeirra.

Hvað er ekki styrkt?

Ekki eru veittir styrkir til kjarnastarfsemi eða reglubundins reksturs. Að jafnaði er vinna starfsmanna í verkefni ekki styrkt nema ljóst þyki af lýsingu að sú vinna falli utan starfssviðs og sé viðbót við starfsskyldu en ekki hluti af henni. Sé verkefnið hluti af vinnu starfsmanns er kostaður sem af því hlýst skráður sem mótframlag.

Að jafnaði eru ekki veittir styrkir til tækjakaupa eða uppbyggingu aðstöðu nema að takmörkuðu leiti ef verkefni eru háð því og ljóst þyki að sá kostnaður falli ekki undir kjarnastarfsemi eða reglubundinn reksturs. Almennt á námsgagnagerð betur heima í Þróunarsjóði námsgagna.