Áherslur í menntamálum

Fréttir|23. maí 2018

Kennarasamband Íslands lagði nokkrar spurningar fyrir stjórnmálaflokkana sem bjóða fram til sveitarstjórna og eru svör þeirra birt hér fyrir neðan. Flokkarnir völdu frambjóðanda úr sínum röðum sem tengist skólastarfi á e-n hátt. Með þessu vill Kennarasambandið leggja sitt af mörkum til að uppýsa kjósendur um helstu áherslur flokkanna í menntamálum.

Sveitarstjórnarkosningar fara fram á laugardag. KÍ spurði flokkana um áherslur í skóla- og menntamálum.

Kennarasamband Íslands lagði nokkrar spurningar fyrir stjórnmálaflokkana sem bjóða fram til sveitarstjórna og eru svör þeirra birt hér fyrir neðan. Flokkarnir völdu frambjóðanda úr sínum röðum sem tengist skólastarfi á e-n hátt. Með þessu vill Kennarasambandið leggja sitt af mörkum til að uppýsa kjósendur um helstu áherslur flokkanna í menntamálum.

Alþýðufylkingin

Tamila Gámez Garcell, frambjóðandi í Reykjavík

1. Af hverju gafstu kost á þér? Ég gaf kost á mér vegna þess að ég get ekki setið kyrr og látið óréttlæti viðgangast. Vegna þess að ég tel þurfa að gera margt og breyta mörgu í þágu samfélagsins sem borgarstjórn virðist hafa gleymt. Því vil ég breyta. Borgarstjórn á að þjóna hagsmunum fólksins sem býr í borginni. 

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur? Mín helstu stefnumál í borginni eru menntamál, samgöngur og þjónusta við fólk í borginni. Og að standa með mannréttindum þeirra sem minna hafa. Grunnur að mannréttindum er að hafa öruggt þak yfir höfuðið, að börn fái ókeypis máltíð og þurfti ekki að borga fyrir að geta menntað sig, að þegar þú veikist sértu ekki tveim launaseðlum frá því að lenda á götunni o.s.frv. - fátækt er aðalógnin við mannréttindi, og lausnin á henni er félagsleg.

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins? Innan míns flokks já, en því miður hafa þessar hugmyndir ekki skilað sér til almennings. Okkar flokkur er oft misreiknaður og málstaður okkar fær ekki nóga athygli.

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum? Menntamál og grundvöllur þeirra eru ofarlega í mínum huga. Í höndum borgarstjórnarfólks er hvort við breytum neikvæðri ímynd kennarastéttarinnar eða samþykkjum aðgerðaleysi þangað til engan menntaðan kennara er að finna lengur.
Það þarf að veita skólum aukið fjármagn ef við viljum að skóli án ágreiningar gangi og til að geta veitt börnum kennslu sem mætir þeirra þörfum og hæfni.
Eins eru margir þættir sem við getum gert betur, eins og að byggja leikskóla við félagsheimilið, fá faglærða kennara aftur til starfa, auka móðurmáls- og íslenskukennslu fyrir börn af erlendum uppruna á öllum skólastigum. Það þarf að auka endurmenntun, byggja upp tónlistarnám, verklegar greinar og nýrri greinar, t.d. forritum.


Borgin okkar - Reykjavík

Engin svör hafa borist.

Flokkur fólksins

Kolbrún Baldursdóttir, frambjóðandi í Reykjavík

1. Af hverju gafstu kost á þér
Ég gladdist mjög þegar Inga Sæland kom fram á sjónarsviðið og fann strax að hugmyndafræði hennar féll vel að minni, bæði sem persónu en einnig sem fagaðila. Ég hef öðlast víðtæka starfsreynslu og er vel kunnug borgarkerfinu. Ég er með langa reynslu sem sálfræðingur, hef átt viðtöl við hundruð barna og foreldra, eldri borgara og öryrkja. Skólann og skólamálin þekki ég vel. Ég var skólasálfræðingur um 10 ára skeið. Ég á líka til annars konar reynslu sem ég held að geti nýst mér fái ég tækifæri að spreyta mig sem borgarfulltrúi. Ég er fyrrverandi formaður Stéttarfélags Sálfræðinga og þekki vel til kjaramála. Seta mín sem formaður Barnaheilla á Íslandi til sex ára er einnig afar dýrmæt og gagnleg. Hvað allri menntun og reynslu líður tel ég mig hafa góðan skilning og gott innsæi í málefni fólks. Mér finnst ég því eiga fullt erindi í borgarmálin, hef brennandi hugsjón að hjálpa þeim sem höllustum fæti standa.

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur?
Helstu stefnumálin er að ráðast til atlögu við húsnæðisvandann sem er uppsafnaður. Húsnæðisskortur er m.a. vegna lóðarskortsstefnu borgarmeirihlutans og við viljum vinda ofan af stigvaxandi okri á verðlagningu á lóðum í borginni. Við viljum samvinnu við ríki og lífeyrissjóði til að koma á fót öflugu félagslegu húsnæðiskerfi. Um 1000 fjölskyldur eru á biðlista eftir félagslegri íbúð, 500 öryrkjar og um 200 eldri borgarar.
Margar fjölskyldur hafa hrakist úr borginni þar sem engin möguleiki er fyrir hendi, hvorki að leigja né fjárfesta í þaki yfir höfuðið. Himin há leiga er að sliga fjölda fólks og margir foreldrar eru á vergangi með börn sín. Þeir fá ýmist inni með börnin hjá vinum eða vandamönnum eða jafnvel í ósamþykktu iðnaðarhúsnæði. Því miður er Reykjavíkurorg að verða borg auðjöfra og ferðamanna.
Við viljum mæta námsþörfum allra barna með tilliti til færni þeirra og getu. Við teljum að í núverandi fyrirkomulagi hafi ekki fylgt nægjanlegt fjármagn til að Skóli án aðgreiningar virki fyrir öll börn.
Við viljum fá hagsmunafulltrúa fyrir aldraða til að hann geti kortlagt málefni aldraðra, byggt öfluga heildstæða stefnu og sjái til þess að húsnæði, heimahjúkrun, dægradvöl og heimaþjónusta sé fullnægjandi.
Stefna okkar í málefnum öryrkja og fatlaðs fólks er skýr. Þeim skal tryggt jafnræði á öllum sviðum samfélagsins. Aðgengi fyrir alla sbr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Við viljum gefa foreldrum val á að vera lengur heima hjá barni sínu með því að greiða foreldri sömu upphæð og borgarsjóður greiðir nú fyrir barnið hjá dagforeldri. Vísa að öðru leyti í stefnuskrá okkar.

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins.
Já

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum?
Í Flokki fólksins er fólk með margskonar reynslu og þekkingu. Við erum drifin áfram af hugsjón fyrir því að grunnþörfum allra borgarbúa verði mætt sem eru húsnæðismálin og að öllum börnum líði vel i skólanum. Ef þú átt hvergi heima eða ert að þvælast um með börnin þín, fá að vera HÉR í smá tíma og ÞAR í annan tíma er erfitt að njóta nokkurs. Börnin líða fyrir svona flæking, þau eiga erfiðara með að mynda og viðhalda tengslum.
Hvað varðar mig sem oddvita þá er ég viss um að borgarfulltrúi með mína reynslu getur haft áhrif því ég veit hvar skóinn kreppir hjá fólkinu í borginni, börnum og barnafjölskyldur með meðal- og lágar tekjur, eldri borgara sem eru fastir inn á Landspítala Háskólasjúkrahúsi því það er enginn til að sinna þeim í heimahúsum og öryrkjar sem bíða 500 eftir félagslegu húsnæði. 
Við teljum að valtað hafi verið yfir kennara, ekki einungis launalega séð en laun þeirra eru til skammar heldur einnig ómanneskjulegar kröfur sem gerðar eru til kennara og hafa verið gerðar síðustu árin, allt frá því Skóli á aðgreiningar kom til, falleg hugsun en er ekki að virka fyrir öll börn.

Horfast þarf í augu við þá staðreynd að styðja þarf við sérskóla og fjölga sérúrræðum fyrir börn með sérþarfir sem mun létta á kennurum. Eins og staðan er í dag er börnum steypt í saman mót og kennurum ætlað að gæta þessa að öll njóti sinna styrkleika og hlúa að veikleikum. Eins og staðan er í dag eru gerðar óheyrilegar kröfur til kennara í starfi sínu. Þeir geta ekki sinnt þörfum allra barna í núverandi fyrirkomulagi. Fjölga þarf sálfræðingum helst þannig að hver skóli hafi sinn sálfræðing sem starfar við hlið kennara og námsráðgjafa. Flokkur fólksins vill taka á þessu fyrir börnin og fyrir kennarana og annað starfsfólk skóla.
Þessi mál þekki ég vel sem skólasálfræðingur til margra ára og einnig menntaður kennari og hef ég kennt á öllum skólastigum
 

Framsóknarflokkur

Hjördís Guðný Guðmundsdóttir, kennari og frambjóðandi í Reykjavík

1. Af hverju gafstu kost á þér?
Ég gaf kost á mér eftir töluverða umhugsun og eftir að vinir og ættingjar höfðu ýtt þessari hugmynd að mér. Mér finnst margt gott í skólakerfinu okkar og finnst mér það vera því frábæra starfsfólki sem á gólfinu starfar fyrst og fremst að þakka. Þrátt fyrir oft á tíðum erfið starfsskilyrði og óraunhæfar væntingar þeirra sem með málaflokkinn fara. 

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur?
Ég vil bæta starfskjör og umhverfi leik- og grunnskólakennara og starfsfólks á þessum vinnustöðum. Bæði þeirra vegna og barnanna sem þar starfa einnig.
Hærri laun, færri börn á hvern kennara eða starfsmann og sveigjanlegri vinnudagur með styttri vinnuviku er mín höfuðáhersla. Það þarf að styrkja skólana okkar sem þann fjölskylduvæna vinnustað sem þeir geta verið. Þannig myndast að ég tel meiri stöðugleiki í mönnun og minni streita á haustin fyrir fjölskyldur um það sem koma skal.

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins 

Já svo sannarlega. Ástæða þess að ég valdi það að stiga fram í nafni Framsóknar er sú að þar innan borðs er nú hópur fólks sem deilir minni sýn á betra og bætt skólaumhverfi og hafa sömu áhyggjur og ég af minni aðsókn í kennaranámið og fjölgun kennara í styttri eða lengri veikindaleyfum. Ásamt því að vilja efla veg kennarans og að á hann sé hlustað í málefnum nemenda. Við vitum og viðurkennum kennara sem sérfræðinga og sem slíkir vita kennarar vel hvað þarf til að skóladagurinn eða skólaganga nemenda gangi vel fyrir sig. Það þarf einstaklinga i borgarstjórn sem hafa þessa þekkingu og innsýn í málaflokkinn. 

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum?
Sveitastjórnarfulltrúi getur haft mikil og góð áhrif. Hér þarf að berjast fyrir þverpólitískri samstöðu um bætt kjör og starfsaðstæður leik- og grunnskólakennara. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Það að fá fulltrúa inn í t.d borgarstjórn sem talar máli kennara og um þá og við af virðingu og þekkingu skilar okkur miklu inn í kjarabaráttuna. Hingað til hef ég ekki heyrt marga í forsvari taka sterka afstöðu með kennurum og tel ég kominn tíma til að svo verði.

Frelsisflokkurinn

Engin svör hafa borist.

 

Höfuðborgarlistinn

Björg Kristín Sigþórsdóttir, frambjóðandi í Reykjavík

Stjórnmál hafa alltaf verið mér hugleikinn alveg frá unglingsárum. Ég er íbúi í Reykjavík eins og ég og þú/þið. Ég finn að hér er rekstur borgarinnar á einhverju ferðalagi sem mér hugnast ekki. Bilið milli borgarstjóra, kjörinna fulltrúa og almennings hefur breikkað mikið og er embættismannakerfið orðið flókið og miðstýring orðin allt of mikil að mínu mati. Þessu vil ég breyta. Það er því miður ekki hlustað á íbúa og þá sem sinna þeim mikilvægu störfum fyrir íbúa eins og kennarar. Mér persónulega finnst vanta auðmýkt og skilning hjá núverandi ráðamönnum Ráðhússins og tel að vandinn sé gríðarlegur og mun meiri en hann lítur út fyrir að vera. Mig langar að leggja mitt af mörkum og breyta vinnubrögðum borgarinnar með nýju fólki sem veitir ríki aðhald, þá þurfa kjósendur og kennarar að standa með sjálfum sér og kjósa xH fyrir Höfuðborgarlistann. Það er ekki gott að þeir sem stjórna ríkinu að þeir stjórni borginni líka, þannig er hægt að koma í veg fyrir að ríki og borg séu að velta hlutum fram og til baka sín á milli. Með aðhaldi og bættum stjórnarháttum er útsvars og skattfé almennings . Við erum tilbúin að ganga í þessi verkefni fyrir fólkið og leggja niður dýr gæluverkefni sem viðhöfð eru hér í borginni.

Húsnæðismál
Nr. 1 Okkar stærsta velferðar lífsgæða og öryggismál eru húsnæðismálin. Því miður er sú þéttingastefna sem rekin er hér í borginni að fæla ungt fólk fjölskyldur og einstaklinga úr úr borginni vegna þess að byggt er á dýrustu þéttingareitum borgarinnar. Þessi stefna er ekki að þjónusta alla hópa samfélagsins og ætlum við að byggja 10.000 íbúðir á kjörtímabilinu og tryggja þannig nægt og fjölbreytilegt lóðaframboð. Það þýðir lækkun á íbúðaverði ásamt lægra leiguverði. En hér er verið að halda fólki í gíslingu á þessum markaði. Verðum með sérstakt úrræði fyrir ungt fólk fjölskyldur og fyrstu kaupendur þar sem við ætlum að byggja íbúðir á 22 til 30 milljónir á verðlagi dagsins í dag, 70 til 100 fm.

Almenningssamgöngur/samgöngur
Við ætlum að minnka strætisvagna þar sem við á gera þá skilvirkari og umhverfisvæna tafarlaust. Frítt í strætó fyrir námsmenn og að strætó gangi á 5 til 7 mínútna fresti á helstu leiðum til að byrja með. Byggja Sundabraut tafarlaust. Auka hringtengingar í kringum borgina.

Leikskólar
Við ætlum að bjóða foreldrum val um það að fá sérstakar heimgreiðslur eftir að fæðingarorlofi lýkur að tveggja ára aldri. Það eykur nánd foreldra og barns og styrkir fjölskyldubönd.

Umhverfismál     
Er risa málaflokkur hjá okkur. Við munum ekki festa svefn í ráðhúsinu fyrr en mengun er kominn undir viðmiðunarmörk hér í borginni. Þrífa borgina allt árið um kring ekki bara fyrir kosningar. Hreinsa grænu svæðin og munum við setja stofnbraut í sérstaka gjörgæslu: Lögð verði betri efni í stofnbrautir rykbundið reglulega og að notað verði umhverfisvænt salt á götur og ýtt undir notkun harðskeljadekkja með tilheyrandi fræðslu og ávinningi.Hreint vatn og vatnsbúskapur tryggt til framtíðar fyrir Reykvíkinga. Hreinar og öruggar strendur. Sorphirðumál verða tekin til gagngerrar endurskoðunar.

Menntamál

Við erum nýtt afl sem er að bjóða fram í borginni og sjáum að stjórnun menntamála er allt of miðstýrð. Við viljum nýta þann mannauð sem kennarar eru og að þeir ásamt skólastjórnendum stjórni skólunum.Skólastjórnendur hvers skóla skila af sér árangur síns skóla í lok hvers skólaárs og ætti það að vera keppikefli hvers skóla fyrir sig að sýna fram á framúrskarandi árangur. Það er síðan borgarinnar að huga að almennilegu viðhaldi og aðstöðu svo að við getum skapað hér glæsilegan skólabrag. Mannauður og nemendur eru jú það sem borgin á fyrst og fremst að skapa umgjörð utan um sem er til sóma fyrir okkar borg. Laun kennara verða að fylgja markaðnum annars mun stéttin deyja út. Þetta ætlum við að laga. Við viljum ekki sjá að sama fólk stjórni ríki og borg og viljum veita ríkinu aðhald fyrir hönd fólksins í Reykjavík.

Til að mögulegt sé að ná þessum markmiðum þurfum við nýtt fólk til að stjórna þessari borg og er ekki tengt inn í stjórnmál og embættismannakerfið og sjáum við að með þessari nýju nálgun gætum við veitt stjórnmálamönnum aðhald. Við hjá Höfuðborgarlistanum búum yfir miklum mannauð og okkar forystufólk er tilbúið að takast á við þau stóru verkefni sem framundan eru og teljum við að séu mikil tækifæri að ná langt en til þess þurfum við fólk sem sýnir auðmýkt skilning og hlustar á það sem kennarar leggja til og drífa í að klára þessi mál.
 

Íslenska þjóðfylkingin

Helgi Helgason, kennari og frambjóðandi í Reykjavík

1. Af hverju gafstu kost á þér?
Pólitíkin er hálfgerð baktería. Ég á mjög erfitt með að halda mig frá henni. Auðvitað gefur maður kost á sér vegna þess að maður vill hafa áhrif og berjast fyrir ákveðnum sjónarmiðum. 

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur?
Í skólamálum eru mínar helstu áherslur þær að gera starfsumhverfi kennara sem starfa hjá borginni betra. Í því felst til dæmis að hverfa frá viðveruskyldunni og sjá til þess að starfsaðstaða / vinnuaðstaða sé boðleg. Það er líka stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar að bekkjaskipta grunnskólum eftir getu. Við erum á því að skóli án aðgreiningar er misheppnuð tilraun. Svo er það gömul saga og ný að grunn- og leikskólakennarar þurfa að fá mannsæmandi laun og það er eitt af því sem ég myndi beita mér fyrir komist ég í aðstöðu til þess. Mig langar líka til að minnast á það að oft hef ég velt fyrir mér hvort það hafi verið til hins betra að grunnskólinn hafi verið færður til sveitarfélaganna. Ég ætla ekki að fara nánar út í það en viðurkenni að ég hef efasemdir um það.

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins.
Já, það hefur mér fundist. Frambjóðendur á lista Íslensku þjóðfylkingarinnar í Reykjavík eru mjög samhentir og liðsandi góður. Skólamálin hafa verið rædd í okkar hóp og óhætt að segja að allir eru með sömu hugmyndir og ég hef reifað hér að ofan. 

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum?
Sveitarstjórnarmaður getur beitt áhrifum sínum til þess að bæta skóladaginn hjá nemendum og kennurum. Til þess að nemendum líði vel þarf kennurum að líða vel og þar þarf að byrja. Góð laun og minna álag á grunnskólakennurum, og leikskólakennurum, er lykillinn að því að nemendum líði vel í náminu. Ef við þurfum að bæta við kennurum til að létta álaginu í skólakerfinu og þeim sem nú starfa í skólanum, þá munum við í Íslensku þjóðfylkingunni ekki hika við að ráðast í þær aðgerðir.

 

Karlalistinn

Engin svör hafa borist.

 

Kvennahreyfingin

Engin svör hafa borist.

 

Miðflokkurinn

Berglind Bergvinsdóttir, leik- og grunnskólakennari, frambjóðandi á Akureyri

1. Af hverju gafstu kost á þér?
Ég hef búið á Akureyri í 25 ár og hér líður mér einstaklega vel. Ég býð mig fram til að láta gott af mér leiða, hafa áhrif og leggja mitt af mörkunum til að gera gott samfélag enn betra. 

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur?
Ég brenn fyrir skólamálum í bænum þar sem góðir skólar og þjónusta við barnafólk eru lykillinn að góðum búsetuskilyrðum á Akureyri. Ég hef reynslu af leik- og grunnskólum bæjarins bæði sem foreldri þriggja dætra og sem leik- og grunnskólakennari. Við þurfum að passa upp á þann góða mannauð sem vinnur innan veggja skólanna. Ég tel að kominn sé tími til að setja skólamál í forgang, auka fjármagn inn í skólana og gera þeim kleift að vinna eftir aðalnámskrá eins og þeim raunverulega ber skylda til að gera.
Ég vil beita mér sérstaklega fyrir umbótum í leik- og grunnskólum með því að bæta aðstöðu og vinnuskilyrði bæði nemenda og kennara. Vinna þarf betur að skóla án aðgreiningar, veita meiri og skilvirkari stuðning sem nýtist bæði kennurum og nemendum. Efla þarf stoðkerfið með því að auka aðgang að sérfræðingum svo sem sálfræðingum, félagsráðgjöfum o.s.frv. Fækka þarf umsjónarnemendum á hvern kennara og huga betur að sérúrræðum fyrir þá nemendur sem þess þurfa s.s. nemendur með annað tungumál en íslensku, nemendur á einhverfurófi, nemendur með hegðunarraskanir svo dæmi séu nefnd.
Ég vil gjarnan sjá styttingu vinnuvikunnar hjá grunnskólakennurum endurspeglast í því að stytta vinnuvikuna yfir skólaárið í 40 klukkustundir. Einnig vil ég sjá vinnuviku leikskólakennara stytta niður í 36 klukkustundir á viku.
Fjölga þarf dagvistarúrræðum fyrir börn frá 9 mánaða aldri til tveggja ára aldurs.
Einnig vil ég að sérstaklega sé hugað að hollustuþáttum í skólum bæjarins þar sem innlend fersk matvæli verði alltaf fyrsta val við framleiðslu máltíða í mötuneytum skólanna.
Íþrótta og tómstundamál eru mér afar hugleikin sem og mikilvægi forvarna í barna og unglingastarf.

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins.

Já algjörlega, sjónarmið mín í menntamálum endurspeglast í stefnumálum Miðflokksins og mun ég beita mér af fullri alvöru að málefnum leik- og grunnskóla bæjarins ef Miðflokkurinn kemst til bæjarstjórnar. Frambjóðendur Miðflokksins eru afar samstíga hvað varðar áherslur í menntamálum.

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum?
Sveitarstjórnamaður getur haft mikil áhrif til góðs svo lengi sem áhugi og vilji er fyrir hendi að vinna að úrbótum í þeim málaflokki. Það sem til þarf er að láta verkin tala, forgangsraða rétt og þá er allt hægt! 

 

 Píratar

Rannveig Ernudóttir, frambjóðandi í Reykjavík

1. Af hverju gafstu kost á þér?
Ég gaf kost á mér af því að ég var beðin um það og síðar meir hvött til þess. Ég hafði ekki sérlega mikinn áhuga á því að fara útí pólitíkina, en var þó komin í starfið hjá Pírötum og búin að sinna þar starfi ritara framkvæmdaráðs og svo tók svo síðar við sem varaformaður og svo að lokum sem formaður framkvæmdaráðs Pírata. Ég hins vegar trúi á mín málefni og ákvað því á endanum að sjá hvort ég gæti kannski bara gert eitthvert gagn fyrir samfélagið. 
Ég bý yfir heilmikilli reynslu sem íbúi, foreldri, manneskja og starfmaður í samfélaginu. Ég er mjög upptekin af því að bæta samfélagið svo að hér geti allir haft tækifæri á að lifa mannsæmandi lífi. 

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur?
Ég brenn helst fyrir fjölskyldu- og skólamálum og svo málefnum eldri borgara. En ég starfa í dag sem virkniþjálfi í félagsstarfi eldri borgara sem og í félagsstarfi unglinga, bæði hjá Reykjavíkurborg. Ég er tómstunda- og félagsmálafræðingur og vinn náið með kennurum og öðrum uppeldisfræðingum. Ég á stóra fjölskyldu og er með börn á öllum skólastigum.
Ég er líka umhverfis- og samgöngunörd :) 

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins?
Já, svo sannarlega. Ég stýrði hópi sem setti saman mjög ítarlega og langa fjölskyldu- og skólastefnu fyrir kosningarnar núna og er ykkur velkomið að skoða hana. Margir komu að henni en við leituðum einnig út fyrir okkar eigin bergmálshelli við mótunina á henni og fengum m.a. Ingvar Hrannar til þess að skoða hana hjá okkur og gefa okkur ráðleggingar og gagnrýna stefuna. Við tókum mikið mark á því sem hann lagði fram og erum honum mjög þakklát fyrir það sem hann lagði fram. 

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum?
Stærsti vandinn sem við höfum rekist á er sá að launa- og kjaramál kennara (leik- og grunnskóla) eru í lamasessi og þarf að fara í hart til að koma þeim í lag. Það hafa verið vinnuhópar og nefndarhópar að vinna að því að reyna laga vinnuumhverfi og að ná til kennara. En staðan er bara sú að það skiptir engu máli hversu fínar tillögur koma fram, eða hversu áhugaverðar hugmyndir koma frá stjórnmálaflokkum um það hvernig skólaumhverfið eigi að vera, finnska leiðin, horfa til Bretlands eða spá í hvað Kanadamenn eru að gera, ekkert af þessu skiptir máli ef kennarar fást ekki til starfa og ef við fáum ekki nemendur í kennaranámið.
Því er lykilmál núna, að leysa úr launakrísunni.
Vandinn þar er sá að ríki og sveitarfélög, benda bara á hvert annað. En það er á sama tíma vitað að það er gríðarlegur skortur á fjármagni frá ríkinu til sveitarfélaganna í þessum málaflokki. Rekstur leik- og grunnskólanna er dýr og honum er haldið niðri með láglaunastefnu starfsfólks, bæði fagmenntaðra sem og annarra.
Þetta þarf að laga. Þetta verður verkefni næstu sveitarstjórnarmanna.
Að öðru leyti eigum við að treysta fagfólkinu okkar, kennurum og fleirum, til þess að geta sett saman og mótað stefnur skólanna, leyfa stjórnendum að fá aukið frelsi til að leggja ákveðnar línur. Við eigum ofboðslega flott fagfólk sem veit mun betur en stjórnmálamanneskjan, hvað er best fyrir menntun barnanna okkar. Sveitarstjórnarmanneskjan hefur það hlutverk að sjá til þess að stjórnsýslan á bak við skólana sé í lagi, að hún veiti starfsfólkinu og börnunum stuðning og veiti fjármagn í það sem óskað er eftir að gera.
Sveitarstjórnarmanneskjan er í þjónustuhlutverki innan stjórnsýslunnar!

 

Samfylking

Friðþjófur Helgi Karlsson, skólastjóri og frambjóðandi í Hafnarfirði

1. Af hverju gafstu kost á þér? Áhugi á að láta gott af sér leiða fyrir samfélagið réð því að ég gaf kost á mér.  

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur? Ég brenn fyrir málefnum barnafjölskyldna, húsnæðismálum, velferðar- og menntamálum sem og umhverfis- og samgöngumálum.   

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins? Já þau hafa fengið brautargengi. Mikill vilji til að gera vel í menntamálum er innan framboðsins.  

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum? Á lista Samfylkingarinnar hér í Hafnarfirði er margt fagfólk af öllum skólastigum sem hefur mikla þekkingu á menntamálum. Hópurinn er því vel til þess fallinn að hafa raunverulega áhrif á mótun menntastefnu sveitarfélagsins til framtíðar. Menntastefna Samfylkingarinnar byggir á rótgrónum gildum um jöfnuð, félagslegt réttlæti og mannréttindi. Skólarnir okkar eru ein af grunnstoðum samfélagsins, þar sem við tryggjum börnum og ungmennum jöfn tækifæri til menntunar og þroska, virkjum styrkleika þeirra og kveikjum hjá þeim áhuga til sköpunar og frumkvæðis. Þess vegna leggjum við áherslu á skóla sem byggja á lýðræði, mannréttindum og jafnrétti, skóla sem fagna fjölbreytileikanum og rúmar öll börn. Skóla sem eykur vægi list-, verk og tæknigreina og tryggir þannig fjölbreytt val í skólastarfi. 
Við teljum að skólarnir okkar verði best efldir innan frá með því að virkja þann mannauð og sköpunarkraft sem býr í starfsfólki og nemendum hvers skóla. Þess vegna viljum við efla faglegt sjálfstæði skólanna og auka svigrúm þeirra til að móta eigin stefnu. Við viljum tryggja gott faglegt umhverfi sem laðar að gott starfsfólk á öllum skólastigum og vinna að leiðum til að draga úr álagi á starfsfólk skóla. Við eigum að virða og treysta okkar góða fagfólki í skólunum. Og við viljum sýna það í verki með því að bæta bæði starfsaðstæður og launakjör. 

 

Sjálfstæðisflokkurinn

Dr. Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari og deildarstjóri framhaldsnáms við Tónskóla Sigursveins í Reykjavík er frambjóðandi í Reykjavík.

Af hverju gafstu kost á þér?

Ég hef starfað innan Sjálfstæðisflokksins og þegar leitað var til mín að gefa kost á mér í framboð til sveitarstjórnarkosninga í vor fannst mér það vera áskorun um að láta gott af mér leiða til hagsbóta fyrir Reykjavíkurborg þar sem ég er fædd og uppalin. Ég brenn fyrir hugsjónum Sjálfstæðisstefnunnar þar sem hagsmunir einstaklingsins og einstaklingsframtakið er í forgrunni ásamt frjálsri samkeppni á öllum sviðum. Ég er á móti forsjárhyggju og jöfnuði en styð jöfn tækifæri til einstaklinga til þess að skapa sér það líf sem þeir kjósa.

Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur?

Stefnumál mín og áherslur snúa einkum að tónlistarmenntun, menningu og listum þar sem ég hef sérþekkingu og 30 ára starfsreynslu innanlands og erlendis í þessum málaflokkum. Ég tel að breytinga sé þörf í tónlistarskólakerfinu, langir biðlistar tónlistarskólanna og ófullnægjandi tónlistarmenntun í grunnskólunum sýna að börn borgarinnar njóta ekki jafnræðis til tónlistarmenntunar óháð efnahag og búsetu. Enn fremur þarf að efla þátttöku barna í listviðburðum.

Einnig hef ég sterkar skoðanir á flestum málefnum sem snerta hagsmuni borgarbúa og byggi þær á þeirri reynslu að hafa búið um árabil í London og New York sem hefur gefið mér mikilvæga sýn á Reykjavík og þróun hennar til framtíðar. Það yrði of langt mál hér að telja upp alla þá málaflokka sem þarf að breyta til hagsbóta fyrir borgarbúa en þeir eru fjölmargir eins og allir Reykvíkingar vita sem hafa búið í borginni undanfarin 16 ár.

Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins?

Já, það er ánægjulegt að finna stuðning borgarstjórnarframboðs Sjálfstæðisflokksins við framgang málefna tónlistarmenntunar, menningar og lista í Reykjavík.

Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum?

Sveitarstjórnarfulltrúi getur beitt sér til þess að hafa áhrif í menntamálum með því að tala fyrir breytingum á núverandi kerfi í þeim málaflokki á rökstuddan hátt.

 

Sósíalistaflokkur Íslands

Ósk Dagsdóttir, grunnskólakennari og frambjóðandi í Reykjavík

1. Af hverju gafstu kost á þér?
Ég gaf kost á mér vegna þess að velferð barna skiptir mig mjög miklu máli og mér finnst vanta að forgangsraðað sé í þágu barna í íslenskum stjórnmálum. Börn og málefni barna mæta oft afgangi eða eru yfirhöfuð ekki rædd. Ef þau eru rædd er umræðan mikið út frá fullorðnum og gleymist að ræða um málefnið út frá þörfum barna og hlusta á raddir þeirra.
Þetta tjáði ég mig um í kynningu um framboðið og í grein um velferð barna.

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur?
Helstu stefnumálin mín eru að réttindi barna til öryggis, góðrar umönnunar, húsnæðis, næringarríks fæðis, þroska, menntunar og áhugamála séu virt. Ég vil að borgin beiti sér fyrir því að setja þessa dýrmætu og viðkvæmu einstaklinga í fyrsta sæti. Börn eiga ekki að þurfa að líða skort og þessu þarf að breyta. Húsnæðisvandi og láglaunastefna bitnar ekki síst á börnunum. Skólar og leikskólar þurfa að fá fjármagn og svigrúm til þess að þeir geti sinnt skyldu sinni þannig að að allir nemendur geti þroskast og nýtt hæfileika sína. Draga þarf úr álagi og auka fjölda fagmenntaðra á þessum stöðum til þess að hægt sé að mæta þörfum ólíkra nemenda.

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins?
Í framboðum , Hin Reykjavík og Hinn Kópavogur sem Sósíalistaflokkurinn standa að er lögð áhersla á að þeir hópar sem hafa staðið mikið fyrir utan pólítíska umræðu og ákvarðanir komist að og að málefni þeirra einstaklinga sem ekki búa við góð kjör verði sett í forgang. Börn eru um fimmtungur Íslendinga en eru hvorki með kjörgengi né kosningarétt. Þau þurfa á því að halda að við berjumst fyrir þau og tölum við þau. Í stefnu Sósíalistaflokksins fyrir sveitarstjórnir segir meðal annars:
• Að öryggi barna sé tryggt og að ákvarðanir séu teknar í samræmi við velferð þeirra.
• Að sveitarfélög vinni í þágu einstaklinga og fjölskyldna og hlúi sérstaklega að velferð þeirra sem eru í veikri aðstöðu og hafa færri úrræði í lífinu eins og öryrkjar, eldra fólk, innflytjendur og láglaunafólk.
• Að yngstu börnunum séu búnar aðstæður til þess að þroskast og dafna með fjölskyldu sinni og síðar með jafnöldrum og félögum.
• Að börnum og ungmennum sé tryggð menntun við hæfi og tryggt verði fjármagn til að skólinn og námsgögn nemenda séu gjaldfrjáls. Framfylgja þarf ítrustu kröfum um jafnrétti í skólastarfi, heilbrigði og velferð barna, læsi og sköpun og kröfur um lýðræði og mannréttindi þeirra virtar til fulls.
Þessi og önnur málefni sem flokkurinn berst fyrir skipta mig máli og eru flokknum mikilvæg. Það þarf að leysa vanda leikskóla og grunnskóla með því að hækka laun og minnka álag. Það eru engar aðrar leiðir . Nú eru til staðar lög, námskrár og menntastefnur sem vel er að staðið en það þarf að vera leið til að fylgja þeim eftir. Börnin eiga það skilið.

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum?
Nú eru leikskólar, grunnskólar og frístundaheimili rekin af sveitarfélögum. Auk þess styðja sveitarfélög við tónlistakennslu, íþróttir og annað nám sem fram fer að skóladegi loknum. Það er því ljóst að stór hluti af menntun er í umsjá sveitarfélaga.
Það skiptir því mjög miklu máli að þeir flokkar og einstaklingar sem koma inn í sveitarstjórn séu með skýra stefnu í menntamálum og séu tilbúnir til að forgangsraða þannig að menntamál gangi fyrir. Yngstu börnin þurfa mikið og gott atlæti og umhverfi þar sem þau geta þroskast í gegnum leik, samskipti og þátttöku. Eldri börnin þurfa tækifæri til þess að styrkja eigin hæfileika, vinna á skapandi og lýðræðislegan hátt, efla siðferðisvitund, læsi og sjálfbærni. Öll börn þurfa tækifæri til þess að tala eigið móðurmál og íslensku. Það þarf að vera rými fyrir alla og stuðningur fyrir alla.
Í lögum um grunnskóla og leikskóla er kveðið á um hlutverk þessara stofnana og sveitarstjórnir bera ábyrgð á að því sé sinnt vel. Það dugar ekkert minna.

 

Viðreisn

Vilborg Guðrún Sigurðardóttir, frambjóðandi í Reykjavík

1. Af hverju gafstu kost á þér?
Ég gaf kost á mér af því að ég hef þekkingu, reynslu og óbilandi ástríðu á menntamálum. Ég hef þörf fyrir því að láta gott af mér leiða og með því að taka boði um sæti á lista Viðreisnar sá ég tækifæri til þess að koma málefnum barna og kennara á framfæri á þessum vettvangi. Það er brýn þörf fyrir rödd kennara í sveitarstjórnarmálum.

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur?
Mín helstu stefnumál eru fyrst og fremst menntamál ásamt jafnréttismálum og velferðarmálum. Mínar áherslur í menntamálum eru að tryggja að fagfólk í leik- og grunnskólum hafi raunveruleg úrræði og svigrúm til þess að mæta þörfum barna og að skólar hafi sjálfstæði og fjármagn til skólaþróunar. Það þarf líka að hækka laun kennara verulega. Þingsályktunartillaga þingflokks Viðreisnar um bætt kjör kvennastétta er skýr ábending um það að Viðreisn er sá flokkur sem mun vinna að því að leiðrétta laun fjölmennra kvennastétta. 

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins?
Mín sjónarmið hafa svo sannarlega fengið brautagengi innan framboðsins. Það lá fyrir frá upphafi að menntamál yrðu eitt helsta áherslumál Viðreisnar í Reykjavík og tók ég stóran þátt í að mynda stefnu okkar innan málaflokksins. 

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum?
Sveitastjórnarmenn eru ráðandi um þróun og mótun grunn- og leikskólastigsins. Rekstrarumhverf grunn- og leikskóla ræðst af forgangsröðun sveitastjórna, bæði hvað varðar uppbyggingu leikskóla til að tryggja dagvistun frá 12 mánaða aldri og eins launum kennara til að tryggja að hæfasta starfsfólkið og að leik- og grunnskólar séu mannaðir. Það skiptir því öllu máli að tryggja jafnan aðgang og jöfn tækifæri í menntakerfinu okkar og þar eru sveitastjórnirnar ráðandi. Nauðsynlegt er að forgangsraða fjármunum til menntamála til að tryggja framúrskarandi menntakerfi með hag barnanna okkar allra að leiðarljósi.
 

Vinstrihreyfingin grænt framboð

Guðbjörg Magnúsdóttir, kennari og frambjóðandi í Reykjavík

1. Af hverju gafstu kost á þér?

Ég gaf kost á mér vegna þess að ég vildi fá tækifæri til þess að að koma mínum stefnum og það sem ég brenn fyrir á framfæri. Ég hef gríðarmikinn áhuga og metnað fyrir skólastarfi og menntamálum og ég vildi að rödd mín fengi að heyrast víðar heldur en eingöngu á kaffistofunni í skólanum og reyna kannski að bæta samfélagið sem við búum í. 

2. Hver eru helstu stefnumál þín og áherslur?

Ég brenn fyrir menntamál og allt sem því tengist, enda hef ég helgað þeim líf mitt. Að mínu viti er eitt brýnasta verkefni okkar að hækka laun kennara og gera þau samkeppnishæf, bæta aðbúnað í skólum bæði fyrir kennara og nemendur, bæta ímynd kennarans í samfélaginu og fá nýútskrifaða kennara til þess að koma í skólann og vinna en ekki missa þá annað. Þess fyrir utan tel ég nauðsynlegt að gera grunnskólana fjölskylduvæna á ný og koma sveigjanleikanum aftur á.

3. Hefur þér fundist sjónarmið þín í menntamálum fá brautargengi innan framboðsins?

Raddir kennara og skólafólks eru mjög áberandi innan Vinstri grænna. Á framboðslista VG má finna fjölda kennara. Fyrir utan mig þá er oddviti flokksins, Líf Magneudóttir, grunnskólakennari og sömu leiðis Þorsteinn V. Einarsson sem skipar þriðja sætið. Við erum þannig þrjú í efstu tíu sætunum sem erum kennarar. Menntamálin eru því mikið rædd og það má finna gríðarlega mikinn stuðning og skilning á skólamálum.

4. Hvaða áhrif til góðs getur sveitarstjórnarmaður haft í menntamálum?

Málefni grunnskólanna eru á hendi sveitarfélaganna og því getur sveitarstjórnarfólk haft mikil áhrif á skólamál, sérstaklega í góðu samstarfi við grunnskólakennara. Ég tel að nauðsynlegt sé að setja málefni skólanna aftur þar inn í stað þess að stjórnmálamenn setja verkefni inn í skólana. Nauðsynlegt er þó fyrir alla aðila að geta unnið saman og að skilningur og traust sé beggja megin við borðið. Þess vegna er svo mikilvægt að kennarar eigi rödd í borgarstjórn. Ég vil leggja mitt af mörkum að svo sé.