Áhersla lögð á að hrósa fyrir góða hegðun

Fréttir|31. desember 2019

Hvernig er dagurinn í amerískum grunnskóla og leikskóla?

Fjögurra manna fjölskylda dvelur tímabundið í Bandaríkjunum og lýsir fjölskyldan hér reynslu af því að hafa barn í leikskóla og grunnskóla. Kerfið er ólíkt hinu íslenska og börnin þurfa að laga sig að nýjum reglum.

Í byrjun ágúst fluttum við fjölskyldan tímabundið til Bandaríkjanna því Sóley, eiginkona mín, er í eins árs mastersnámi við Yale háskóla. Flutningunum fylgdi töluverður undirbúningur því það er ekki einfalt að flytja fjögurra manna fjölskyldu milli heimsálfa, hvað þá til þess lands sem hlýtur að teljast eitt helsta musteri skriffinnskunnar. Við vorum þó spennt að prófa að búa í Bandaríkjunum enda hefur landið og menning þess mikil áhrif á Íslendinga almennt.

Eitt helsta verkefnið var að finna skóla fyrir börnin. Áður en við gátum svo mikið sem skoðað hvað stæði til boða urðum við að prenta út heilsufarslista frá Connecticut ríki og fara með börnin í „lúsakembingu og ormahreinsun” á heilsugæsluna ásamt óteljandi sprautum og skoðunum. Heimilislæknir þurfti að votta alla skapaða hluti.
Því næst gátum við byrjað að skoða skóla. Steinunn er þriggja ára og var búin að vera tvö ár á Laufásborg en Óli er átta ára og var í Laugarnesskóla.

Í Bandaríkjunum er ekki sam­bæri­legt leikskólakerfi og á Íslandi. Hér er mjög algengt að annað foreldrið, yfirleitt móðir, sé heima með barninu þar til það kemst í kindergarten sem er 5 ára bekkur. Sums staðar er kominn pre-K fyrir fjögurra ára börn líka. Þessir 4- og 5-ára bekkir eru þá innan grunnskólanna en kosta þó nokkuð. Þar sem Steinunn er aðeins þriggja ára gafst okkur ekki kostur á þessu kerfi heldur urðum við að sækja um pre-school. Hún komst inn í skóla sem heitir EBJ (Edith B. Jackson Child Care program) en full skólavist þar kostar um það bil 230 þúsund krónur á mánuði og er ekki niðurgreidd að nokkru leyti þó við séum hér sem námsmenn. Við höfðum augljóslega ekki ráð á því, svo við skráðum hana í tvo daga í viku. Okkur fannst mjög mikilvægt að hún fengi menntun, félagsþjálfun og tungumálaörvun sem aðeins er hægt að fá í skólanum.

Fljótlega eftir að hún byrjaði sáum við að tveir dagar í viku væru ekki nóg og bættum þriðja deginum við með góðri hjálp fjölskyldunnar. Þessi upphæð hljómar stjarnfræðileg fyrir okkur Íslendinga sem erum svo lánsöm að eiga trygg leikskólapláss frá tveggja ára aldri fyrir brot af þessu verði, en raunin er jú sú að íslensku og bandarísku leikskólaplássin kosta það sama – munurinn er bara sá að á öðrum staðnum er allt þjóðfélagið að ala upp börnin í sameiningu en á hinum staðnum tíðkast meira að hver hugsi um sig.

Leggja sig í þriðja bekk

Skólinn er staðsettur inni á stúdentagörðunum sem við búum á og er í raun samansettur af fjórum venjulegum íbúðum sem er búið að innrétta sem leikskóladeildir. Steina er á elstu deildinni en hérna eru börn allt niður í þriggja mánaða gömul á yngstu deildinni. Skólastarfið er nokkuð hefðbundið nema hvað krakkarnir koma með eigin hádegismat og vatnsflösku. Þegar Steina kemur á morgnana hengir hún upp bakpokann sinn, setur hádegismatinn inn í ísskáp, fer inn á baðherbergi og þvær sér um hendur og fær svo að velja sér föndurkrók. Eftir morgunhressingu fara þau út að leika eða í göngutúr, en aflýsa þurfti allri útiveru á tímabili í september vegna mikils fjölda moskítóflugna í borginni. Eftir hádegismat er hvíld og öll börn verða að leggjast á bedda í klukkutíma. Steina var löngu hætt að leggja sig á daginn á íslenska leikskólanum svo þessi endurkoma lúranna hefur bakað fjölskyldunni svolítil vandræði þegar kemur að háttatíma og hún er ekkert þreytt.

Allir kennararnir og skólastjórinn eru konur en skólinn er vel mannaður og okkur telst svo til að það séu þrjú börn á hvern kennara. Auk þess eru foreldrar og eldri borgarar í sjálfboðastarfi í skólanum og koma af og til og verja tíma með börnunum, lesa fyrir þau og leika. Börnin sem eru með Steinu á leikskólanum myndu teljast sem forréttindabörn, enda alls ekki á færi allra að greiða skólagjöldin og mörg hver eru þau börn starfsfólks Yale-háskóla.
Steina talaði enga ensku áður en við fluttum hingað en hún er einstaklega líflegur og félagslyndur krakki svo hún fann alls konar leiðir til að tjá sig á annan hátt. Núna, þegar við erum búin að vera hérna í þrjá mánuði, kjaftar á henni hver tuska og tungumálin eru farin að renna svolítið saman heima fyrir – “thank you, Daddy” heyrist iðulega þessa dagana þegar ég færi henni niðurskorið epli eða kex eftir leikskóla.

Guli skólabíllinn sækir Óla

Það er nokkuð annað uppi á teningnum hvað Óla varðar, en hann er í 3. bekk í East Rock Community Magnet sem er almenningsskóli (public school). Almenningsskólar eru fjölskyldum að kostnaðarlausu en ólíkt íslenskum grunnskólum, þar sem starfað er eftir aðalnámsskrá, eru skólarnir næstum því jafn ólíkir og þeir eru margir. Skólarnir fá ekki jöfn framlög frá sveitarfélaginu heldur er fjármögnunin reiknuð á einhvern hátt sem hlutfall af fasteignasköttum svæðisins og þar af leiðandi fá skólar í dýrum hverfum töluvert meira fé en skólar í fátækari hverfum. Skólinn hans Óla vinnur gagngert gegn þessu misrétti og er svokallaður segulskóli (e. magnet school) sem þýðir að börn úr alls kyns mismunandi hverfum fá aðgang að honum og sum koma langt að. Þau eru sótt á morgnana með klassískum gulum skólabíl sem er eins og beint úr amerískri bíómynd. Þau sem þurfa að sitja lengst í bílnum eru einn og hálfan tíma á leiðinni í skólann, en Óli er á síðustu stoppistöðinni og þarf að vera mættur þar kl. 7:40. Skiljanlega er það nokkuð óstýrilátur hópur sem mætir honum á morgnana, troðfullur skólabíll og aðeins einn fullorðinn einstaklingur, þ.e. bílstjórinn. Skólinn byrjar svo klukkan átta og er búinn klukkan tvö.

Í skólanum er það sem heitir universal lunch program, sem þýðir að allir nemendur fá morgunverð og hádegisverð á hverjum degi sér að kostnaðarlausu. Matarpakkarnir eru svona eins og flugvélamatur nema hvað hann er meira unninn og óhollari. Dæmigerður morgunmatur er plastpoki með litlum kassa af “frosted flakes” og mjólk í fernu. Hádegismatur er svo gjarnan hamborgari, pizza eða grilluð ostasamloka. Hér er ekki óvenjulegt að krakkar séu með snakk og nammi í skólanum og það þykir ekkert athugavert við að þau komi með slíkt að heiman.

Öll börn í skólanum eiga að vera í skólabúningum sem er annað jöfnunarverkfæri. Skólabúningurinn er ekki sérhannaður fyrir skólann heldur má kaupa fatnaðinn hvar sem er, svo lengi sem hann samanstendur af dökkbláum eða hvítum pólóbol og dökkbláum eða ljósdrapplituðum khaki buxum. Kennara og stjórnendur skal alltaf ávarpa sem Hr. eða Frú Eftirnafn. Í skólanum er áhersla lögð á að hrósa og verðlauna fyrir góða hegðun en hegðunarvandamál eru töluverð miðað við það sem við þekkjum úr Laugarnesskóla og Óli kom nokkuð gáttaður heim eftir fyrstu dagana. Kennarinn gefur hegðunareinkunn í lok hvers dags og foreldrar kvitta fyrir í heimanámsmöppunni. Óli hefur fengið mikið hrós fyrir góða hegðun í skólanum og í lok október var hann valinn nemandi mánaðarins í bekknum og fékk fyrir það viðurkenningu.

Í heimanámi er lögð mikil áhersla á stærðfræði og lesskilning. Óli þarf að gera eina blaðsíðu af reikningsdæmum á dag ásamt því að lesa texta og gera ritunarverkefni. Skólinn býður upp á skólablað sem frístundaiðju eftir skóla. Blaðið heitir East Rock Record og þar fá krakkarnir leiðsögn frá blaðamennskunemum úr Yale. Þau læra þar krítíska hugsun, upplýsingaöflun og tjáningu.

Hér eru sumir hlutir allt öðruvísi en á Íslandi. Um daginn sagði Óli okkur til dæmis frá æfingu sem nemendurnir þurftu að gera sem er kölluð “lockdown” en þá eru börnin látin æfa sig í viðbrögðum við skotárás í skólanum. Kennarinn læsir þá skólastofunni og krakkarnir fara út í horn og hafa hljóð þar til hættan er liðin hjá. Þetta fannst honum mjög hræðilegt og okkur líka þegar við heyrðum af þessu. En það eru kostir og gallar við allt og einn kostanna við Bandaríkin er að þau eru sannarlega fjölmenningarland og hér er haldið upp á alla mismunandi hátíðardaga hinna ýmsu trúarbragða og menningarhópa með tilheyrandi frídögum.