Ágæti félagsmaður!

Fréttir|16. nóvember 2016

Þann 5. október síðastliðinn héldu kennarar heimsins upp á Alþjóðadag kennara í fimmtugasta skipti, en það var árið 1966 sem Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að tileinka kennurum daginn. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum tíma, en enn erum við þó á heimsvísu að fást við sömu vandamál og fyrir 50 árum. Enn hafa ekki öll börn aðgang að menntun, auði er verulega misskipt og fátækt er mikil. Sú sorglega staða blasir einnig allt of víða við að stúlkur eiga síður rétt til menntunar en drengir. Það er sameiginlegt verkefni allrar heimsbyggðarinnar að breyta þessu og liður í því er að Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fram áætlun um að útrýma öllu misrétti og tryggja öllum aðgang að gæðamenntun. Undir þá kröfu tekur Kennarasamband Íslands heils hugar.

Jafnrétti til náms
Á Íslandi erum við vel sett en við viljum þó gera betur. Jafnrétti og jafnræði til náms er ein af lykilstoðum góðra menntakerfa og það er fagnaðarefni að Ísland mælist fremst í flokki þjóða í könnunum OECD hvað þetta varðar. En við þurfum samt sem áður að gæta að okkur. Of margir vilja auka einkavæðingu í skólakerfinu sem hefur reynst illa hjá mörgum þjóðum og aukið mismunun meðal þegna þeirra. Til að tryggja jafnrétti og jafnræði í samfélaginu öllu er árangursríkasta leiðin að vera með miðstýrt opinbert menntakerfi sem tryggir öllum jafnan rétt til náms. Vitaskuld þarf slíkt kerfi að vera vel fjármagnað til að mæta öllum þeim skyldum sem skólakerfið þarf að uppfylla. Það þarf líka að tryggja kennurum á öllum skólastigum góð og samkeppnishæf laun og starfið þarf að vera aðlaðandi til að tryggja eðlilega endurnýjun stéttarinnar. Hafa yfirvöld verið að þróa skólann í þessa átt undanfarið? Svarið er nei. Þess í stað hafa stjórnmálamenn þrengt að starfsemi skóla, dregið úr sjálfstæði kennarastarfsins og hundsað þörf fyrir aukna fjárfestingu í menntun. Launum er haldið niðri og álag aukið. Ég skora á stjórnmálamenn þessa lands að gera átak í að efla skólakerfið og lyfta kennarastarfinu á hærri stall.

Laun, lífeyrisgreiðslur og vantraust
Undanfarin misseri hafa félagsmenn KÍ upplifað tals­verðan óróa vegna kjaramála. Félagsmenn Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum hafa til að mynda verið með lausa samninga í rúmt ár, sem er auðvitað ólíðandi. Tveir kjarasamningar hafa verið lagðir fyrir félagsmenn Félags grunnskólakennara sem báðir voru felldir. Þetta er alvarleg staða og fer forysta grunnskólakennara nú um landið til að ræða við félagsmenn sína. Ég vona að með því samtali náist að leggja drög að nýjum kjarasamningi.
Síðustu ár hefur Kennarasambandið unnið í nánu samstarfi við BSRB og BHM að tillögum um framtíðarskipan lífeyrismála hér á landi, eða allt frá því að starfshópur, sem skipaður var á grunni 9. greinar Stöðug­leikasáttmálans, skilaði tillögum um framtíðarskipan lífeyrismála í landinu. Þar er lagt til að komið verði á einu lífeyriskerfi sem byggi á aldurstengdri réttinda­ávinnslu og að iðgjald sé 15,5%. Kennarasambandið, BHM og BSRB lýstu því strax yfir að ekki gæti orðið af þessu nema fundin yrði leið til að brúa bilið frá núverandi kerfi yfir í nýtt kerfi. Meginkrafan er sú að enginn núverandi sjóðfélagi tapi réttindum.

Eftir mikla vinnu náðist samkomulag sem KÍ, BHM og BSRB töldu að uppfyllti það markmið. Í framhaldi fól forysta KÍ mér að skrifa undir samkomulag við fjármálaráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga um breytingar á fyrirkomulagi lífeyrismála opinberra starfsmanna. Í kjölfarið var lagt fyrir Alþingi frumvarp um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sem byggði á samkomulaginu. Fljótlega kom í ljós misræmi á milli þessara skjala, nánar tiltekið tryggði frumvarpið aðeins réttindi hluta sjóðsfélaga LSR, þvert á það sem samið hafði verið um. í kjölfarið beitti KÍ sér fyrir því að frumvarpið færi ekki í gegnum Alþingi. Það tókst og nú er forysta KÍ í þeirri stöðu að endurmeta afstöðu sína til málsins, en stefnt er að því að taka upp viðræður um það við nýja ríkisstjórn. Sú vinna verður ekki auðveld því verulegt vantraust hefur skapast milli aðila. Sama má segja um afstöðu forystu KÍ til vinnu með aðilum vinnumarkaðar í að breyta vinnubrögðum við kjarasamningagerð undir merkjum SALEK.

Það er með öllu ljóst að forysta KÍ mun stíga varlega til jarðar í þessum málum en um leið kappkosta að gera kjarasamninga við viðsemjendur okkar sem tryggja framtíð stéttarinnar og eðlilega endurnýjun hennar.  

Leiðari Þórðar Á. Hjaltested, formanns KÍ, birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2016. 

Þórður Á. Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands