Ágæta félagsfólk Kennarasambands Íslands

Fréttir|22. janúar 2026

Silja Kristjánsdóttir, grunnskólakennari og frambjóðandi til varaformanns KÍ, skrifar.

Nú er kosning til varaformanns KÍ hafin og 8 fínir valkostir í boði, reynslumikið skólafólk sem tilbúið er að stíga fram og vinna fyrir sambandið.

Það er ærið verkefni sem bíður nýjum formanni og varaformanni í Kennarasambandinu næstu 4 árin. Í sambandi sem er að slíta barnsskónum þarf að vinna ötullega að hagsmunum alls félagsfólks, bæði með því að vera talsmenn út á við og inn í skólasamfélagið og með því að styrkja aðildarfélögin í sínum verkefnum. Á sama tíma og sambandi á að veita framúrskarandi þjónustu þarf það sýna aðhald í rekstri og gera ríkar kröfur um gegnsæi í stjórnkerfinu.

Í þessum fjölbreyttu verkefnum verða formaður og varaformaður að vera samstíga, en þó óhræddir við að eiga gagnrýnin samtöl sín á milli og við alla hlutaðeigandi aðila.

Ég tel mig vel til þess fallna að sinna þessu hlutverki með nýkjörnum formanni, stjórn KÍ og starfsfólki. Fyrir utan það að hafa lært viðskiptalögfræði þar sem stjórnsýsla, vinnuréttur og samningatækni voru meðal námsgreina, hef ég áralanga reynslu sem trúnaðarmaður, stjórnarmaður og samninganefndamaður. Ég hef setið í nefndum, stýrt starfshópum og unnið sjálfstætt að verkefnum tengdum stéttarfélagsmálum. Ég á auðvelt með að vinna með fólki, er fljót að læra, er góð að hlusta og óhrædd við að láta skoðanir mínar í ljós. Ég hef sýnt það með verkum mínum að ég sinni starfi mínu í þágu heildarinnar, óháð mínum eigin hagsmunum. Ég er mannleg og veit af því og kann að biðjast afsökunar ef mér verða á mistök. Umfram allt brenn ég fyrir skólamál og vil hag skólafólks sem allra bestan.

Kæru kennarar og skólastjórnendur í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og framhaldsskólum út um allt land, nýtið kosningaréttinn, því það skiptir miklu máli hver leiðir Kennarasambandið næstu 4 árin.

Með ósk um stuðning,

Silja Kristjánsdóttir