Afsláttur félaga af námskeiðum EHÍ
Fréttir|26. janúar 2024

Félagsfólki FL, FSL, FG, SÍ, FF og FS býðst 20% afsláttur af tveimur námskeiðum á vormisseri hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Afsláttinn er hægt að nýta á námskeið í öllum flokkum, að undanskildum námskeiðum með erlendum sérfræðingum og námskeiðum sem tilheyra lengra námi.
Skráning fer fram á heimasíðu Endurmenntunar. Til að virkja afsláttinn þarf að skrá kóðann SAMSTARFEHI24 í reitinn „Athugasemdir“ þegar pöntun er gerð.
Hægt er að kynna sér námskeiðsframboðið hér.