Afsláttur á bensíni hjá Atlantsolíu
Fréttir|12. maí 2014
Atlantsolía veitir félagsmönnum KÍ 7 krónu afslátt á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum félagsins. Kennarasamband Íslands ásamt öllum aðildarfélögum hefur gert samning við Atlantsolíu um afsláttarkjör fyrir félagsmenn í KÍ. Félagsmönnum KÍ býðst nú 7 krónu afsláttur á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum félagsins. Staðbundin tilboð á AO stöðvum bætast ofan á boðinn afslátt
Á afmælisdegi dælulyklahafa veitir dælulykilinn 15 krónu afslátt. Sækja þarf um dælulykil eða uppfæra dælulykil á vefsíðu Atlantsolíu.