Áfram stelpur!
Dagur kvenna er 24. október. Þennan dag árið 1975 lögðu konur niður störf og kom þá skýrt og greinilega í ljós að hlutur kvenna á vinnumarkaði var af þeirri stærðargráðu að þegar þær viku af sínum venjulega stað í einn dag, lamaðist atvinnulíf landsmanna.
Þegar litið er til baka þessi rúmlega 40 ár sést að sem betur fer hefur gríðarlega margt áunnist í baráttu okkar fyrir jafnrétti kynjanna á öllum sviðum. Ömmur og mömmur ruddu leiðina fyrir okkur sem yngri erum, konur sem skoruðu samfélagið á hólm og fóru þetta á hnefanum.
Við kennarar tilheyrum kvennastétt. Rúmlega 80% félagsmanna í KÍ eru konur. Meðal leikskólakennara er hlutfall kvenna hæst eða 96% og tæp 60% meðal framhaldsskólakennara og hefur farið vaxandi síðustu áratugi. Það er eins og karlar velji sér síður kennslu að ævistarfi en konur. Betur hefur gengið að fjölga konum innan hefðbundinna karlastétta en körlum í kvennastéttum. Það gæti átt sér margar orsakir en karlar sækja síður í lægra launuð störf og því miður eru kvennastéttir enn sem komið er metnar lægra til launa. Það er óásættanlegt með öllu og einnig það að að öll mótunarár barna og ungmenna séu það aðallega konur sem koma að umönnun og kennslu þeirra og þar með félagsmótun.
Og jafnrétti er ekki bara í orði, það verður líka að vera á borði. Það er ekki bara sömu laun fyrir sömu vinnu, það er miklu meira en það. Jafnrétti er líka glíman við staðalmyndir og viðhorf eða norm samfélagsins. Jafnréttisbaráttan á sér svo ótal marga anga, suma erum við minna meðvituð um en aðra. Vakningin #metoo, #höfumhátt, #freethenipple er sprottin frá róttækum ungum konum sem skora gamaldags gildi á hólm. Því það er meira en að segja það að slíta sig lausa frá því sem manni er innrætt frá blautu barnsbeini. En þegar einhver stígur fram og hefur hátt er það einhvern veginn svo augljóst hvað er rétt og hvað er rangt.
Það er vert að minnast allra þeirra frábæru karla sem hafa lagt okkur stelpunum lið og tekið slaginn með okkur. Þeim fer fjölgandi sem betur fer enda er þetta þeirra barátta líka. En í dag tala ég til kvenna í kennarastéttinni. Af því það er dagurinn okkar í dag. Í dag heiðra ég allar þær konur, lífs og liðnar, sem ruddu brautina fyrir okkur hinar. Í dag skulum við líka minnast þess að það erum við sem höldum á keflinu og það er okkar að koma dætrum okkar í mark. Til hamingju með daginn!
Guðríður Arnardóttir