Áfram fundað um helgina
Fréttir|21. mars 2014
Enn ber talsvert í milli í kjaraviðræðum Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum við ríkið. Fundað var í allan dag og verður viðræðum fram haldið um helgina en gert er ráð fyrir að samningafundur hefjist klukkan tíu í fyrramálið.
Samkvæmt yfirliti frá Elnu Katrínu Jónsdóttur á aðalfundi Félags framhaldsskólakennara nú síðdegis hefur mikill tími í viðræðunum farið í að takast á um launaþáttinn og launaþróun síðustu ára, en einnig í að ræða hvernig meta eigi starf framhaldsskólakennara út frá ákvæðum nýrra laga sem taka gildi á næsta ári. Mikil áhersla sé lögð á það af hálfu viðræðunefndar FF og FS að ná samningum sem fyrst og að við samningaborðið leyfi menn sér ekki að tefja málin.