Afmæliskveðja til Félags sérkennara á Íslandi

Með áherslu á sérkennslu er gengist við því að enginn skóli, engin námsbók og ekkert námsskipulag henti öllum nemendum.
Í dag, 29. október, varð Félag sérkennara á Íslandi hálfrar aldar gamalt. Félagið stendur í miklum blóma undir öflugri stjórn enda stendur það á sterkum grunni.
Með áherslu á sérkennslu er gengist við því að enginn skóli, engin námsbók og ekkert námsskipulag henti öllum nemendum. Nemendur eru ólíkir og hafa margvíslegar þarfir, styrkleika og áhugasvið. Í skólasamfélagi þarf að vera til djúp þekking á fjölbreytileika mannlífsins og þrautreyndum ráðum til að hjálpa þeim sem kannski eru ekki alltaf þess umkomnir að geta hjálpað sér sjálf. Þannig eru sérkennarar leiðtogar í lærdómssamfélagi skólanna og í samvinnu við annað starfsfólk geta þeir gert skólann að þeim griðastað persónulegra sigra sem skóli á að vera. Mikilvægi sérkennslu í skólum fer vaxandi þrátt fyrir að stéttin standi víða um heim í mikilli varnarbaráttu fyrir tilvist sinni. Á það einnig við hér á landi.
Ég sendi sérkennurum hlýjar kveðjur í tilefni dagsins frá Kennarasambandi Íslands með þakklæti fyrir hálfa öld af ómetanlegum störfum í þágu nemenda, foreldra og samstarfsfólks.