Afmælisfagnaður og aðalfundur

Tuttugu ára afmælishátíð Faghóps um skapandi leikskólastarf var haldin í 11.júní sl. Starf Faghópsins hefur verið öflugt í gegnum árin. Á stofnfundinn mættu tíu konur en í dag eru 208 félagar í Faghópnum. Tilgangur félagsins er meðal annars að auka skilning á skapandi starfi fyrir börn, standa vörð um hið skapandi barn og beita sér fyrir því að grunnmenntun og starfsþróunarmöguleikar kennara í skapandi starfi verði efld. Aðalfundur félagsins var haldinn við sama tilefni og flutti Bergrún Íris Sævarsdóttir, teiknari og barnabókahöfundur, áhugavert erindi um tilurð bóka sinna og hvernig starf teiknara er.
Tuttugu ára afmælishátíð Faghóps um skapandi leikskólastarf var haldin í gær. Starf Faghópsins hefur verið öflugt í gegnum árin. Á stofnfundinn mættu tíu konur en í dag eru 208 félagar í Faghópnum. Tilgangur félagsins er meðal annars að auka skilning á skapandi starfi fyrir börn, standa vörð um hið skapandi barn og beita sér fyrir því að grunnmenntun og starfsþróunarmöguleikar kennara í skapandi starfi verði efld.
Aðalfundur félagsins var haldinn við sama tilefni og flutti Bergrún Íris Sævarsdóttir, teiknari og barnabókahöfundur, áhugavert erindi um tilurð bóka sinna og hvernig starf teiknara er.
Í tilefni afmælisins tóku þær Fjóla Þorvaldsdóttir formaður Faghópsins og Sigurhanna Sigurjónsdóttir gjaldkeri saman söguna og birtist hún hér:
Saga Faghóps um skapandi leikskólastarf
Faghópur leikskólakennara með sérmenntun á sviði listgreina var stofnaður í Reykjavík 3. apríl árið 2000. Á stofnfundinn mættu 10 konur. Á þessum fyrsta fundi Faghópsins kynnti Linda Björk Ólafsdóttir undirbúning að stofnun Faghópsins.
Linda Björk sagði frá því m.a. að áhugi væri á meðal leikskólakennara sem lokið hefðu sérnámi í listgreinum í framhaldsdeild Fósturskóla Íslands að stofna Faghóp líkt og aðrir hópar leikskólakennara höfðu gert sem sótt höfðu framhaldsnám í FÍ. Stofnaðir höfðu verið Faghópur leikskólasérkennara í júní 1996 og Faghópur leikskólastjóra árið 1998.
Fósturskóli Íslands hafði þá í tvígang útskrifað nemendur úr framhaldsnámi í listgreinakennslu í leikskólum. Nemendum í þessum útskriftarhópum þóttu listgreinar innan leikskólans eiga undir högg að sækja og stofnuðu því faghópinn til að snúa vörn í sókn.
Á fundinum talaði einnig Rannveig Traustadóttir formaður Faghóps leikskólasérkennara. Rannveig sagði frá undirbúningi og stofnun Faghópsins leiksólasérkennara. Hún sagði frá því hver helstu hlutverk Faghópa ættu að vera. Faghópar ættu að vera stuðningur við Félag leikskólakennara, miðla þekkingu til félagsmanna sinna, styrkja faglegt starf leikskóla, styðja og styrkja einstaklinga sem eiga aðild að faghópunum. Hún ræddi líka möguleika faghópa á erlendu samstarfi t.d. við frændur okkar á Norðurlöndunum.
Á stofnfundinum var kosin fyrsta stjórn Faghópsins: Linda Björk Ólafsdóttir formaður, Guðbjörg Jónsdóttir, Guðrún Elva Arngrímsdóttir, Björg Vigfúsína Kjartansdóttir og Soffía Þorsteinsdóttir meðstjórnendur.
Samþykktar voru fyrstu starfsreglur Faghópsins og í þeim voru m.a. tilgreind markmið hópsins að:
- auka skilning á mikilvægi listsköpunar fyrir börn
- standa vörð um skapandi barn
- styrkja félagsmenn sína í starfi
- auka tengsl við listamenn og stofnanir tengdar listum
- stuðla að/taka þátt í rannsóknum á listgreinum í leikskólum
- efla þekkingu og símenntun listgreinakennara
Í fyrstu voru Faghóparnir nátengdir Félagi leikskólakennara og formenn faghópanna voru boðaðir á félagsráðsfundi félagsins á haustin og á aðalfundi, þar höfðu formenn tillögurétt en ekki kosningarrétt. Síðar þegar FL var skipt upp urðu faghóparnir á eigin vegum, eða frá 2010.
Fyrstu starfsár Faghópsins fóru í að gera hópinn sýnilegan, fjölga félagsmönnum, móta starfið, búa til venjur. Stjórnin lagði áherslu á greinarskrif, að halda fyrirlestra, gera hópinn kunnugan í samfélaginu og meðal annarra listgreinahópa m.a. Bandalagi listamanna, Reggio Emilia hópnum sem þá var starfandi, Kennaraháskólanum og Myndlistaskólanum. Samstarf var myndað við aðra Faghópa innan félagsins til þess að berjast fyrir fjárframlagi til starfsins og viðurkenningu á starfsheiti fyrir listgreinakennara. Gott samstarf var myndað við Faghóp leikskólasérkennara.
Strax á upphafsárum Faghópsins fóru stjórnarmenn að benda stjórn FL á mikilvægi þess að fá samningsaðila félagsins til að samþykkja starfsheitið fagstjóri listgreina. Þarna var komið inn starfsheitið verkefnastjóri, en stjórninni fannst það ekki nægjanlega lýsandi fyrir leikskólakennara sem störfuðu við listgreinar. Auk þess sem verkefnastjórastaðan var alls ekki viðurkennd hjá öllum sveitarfélögum.
Á starfsári Faghópsins 2008-2009 ákvað Félag leikskólakennara að skipa nefnd til að ræða stöðu listgreinakennara/sérgreinakennara í leikskólum. Nefndin lauk störfum 15. júní 2009 og skilaði niðurstöðum til stjórnar FL sem fólust í því að setja fram kröfu um að tekið yrði upp starfsheitið sérgreinastjóri. Samninganefnd FL fjallaði um sérgreinastjórastöðuna við samningaborðið og var málinu vísað í samstarfsnefnd. Þessi áfangi taldist á þeim tíma nokkur sigur fyrir leikskólakennara sem eru með framhaldsnám í listgreinum.
Samþykkt var í febrúar 2009 að taka upp starfsheitið sérgreinastjóri í samningum FL við Samninganefnd sveitarfélaganna. „Sérgreinastjórastaðan er hugsuð sem ákveðin staða innan leikskólans til að skipuleggja og hafa umsjón með sérstökum áherslum i starfinu, námssviðum eða greinum samkvæmt markmiðum í skólanámskrá leikskóla“ sagði Soffía Þorsteinsdóttir formaður Faghópsins í grein sem hún skrifaði í Skólavörðuna á þessum tíma.
Á fyrsta starfsári Faghópsins varð sú breyting að Félag leikskólakennara gekk úr BSRB og fór í Kennarasambandi Íslands árið 2001. Með þeirri breytingu kom til aukinn fjárhagsstuðningur við fagfélög og átti þá Faghópurinn auðveldar með að sækja sér fjárstyrki til starfseminnar. Faghópurinn fór þá að standa fyrir viðburðum fyrir félagsmenn, fyrirlestrum og ráðstefnum, oft í samstarfi við önnur fagfélög eins og Faghóp leikskólasérkennara eða stofnanir eins og Menntavísindasvið, Myndlistaskóla Reykjavíkur og Listaháskólann. Í kjölfar þess var einnig ákveðið að fella niður félagsgjald í Faghópnum.
Menntun og starfsréttindi félagsmanna hefur alla tíð verið eitt af baráttumálum Faghópsins. Starfsár Faghópsins 2004-2005 fór m.a. í að skoða réttindi félagsmanna, þarna var Fósturskólinn að sameinast Kennaraháskóla Íslands og standa þurfti vörð um þau réttindi sem framhaldsnám framhaldsdeildar Fósturskólans gaf m.a. til áframhaldandi háskólanáms.
Faghópurinn hafði bent ítrekað á mikilvægi skapandi greina í námi verðandi leikskólakennara. Smátt og smátt var farið að draga úr kennslu skapandi greina á Menntavísindasviði og funduðu stjórnarmenn með forsvarsmönnum HÍ oft vegna þess. Haldið var m.a. málþing í samstarfi við skólamálanefnd FL í nóvember 2006 undir yfirskriftinni „Skapandi afl draumur eða veruleiki“. Hugmyndin að málþinginu spratt upp úr vaxandi áhyggjum meðlima faghópsins um minnkandi vægi listgreina í menntun leikskólakennara.
Starfsárið 2004-2005 fór að bera á mikilli óvirkni félagsmanna, svo óvirkir voru þeir að til greina kom að leggja Faghópinn niður. Ákveðið var að hafa stjórnarfundi opna og freista þess að félagsmenn mættu til að hafa áhrif á starfsemi hópsins. Einnig var gefinn út bæklingur til þess að kynna starfsemi Faghópsins. Á þessum tíma hafði félagsmönnum ekki fjölgað mikið, þeir voru einungis 10 enda hópurinn lokaður nema fyrir þeim sem hefðu lokið framhaldsnámi í listgreinum. Þegar liðin voru sjö ár frá stofnun Faghópsins hafði félögum fjölgað um 13 og töldu 23 félaga árið 2007. Þess vegna var m.a. ákveðið að breyta heiti Faghópsins árið 2009 í Faghópur listgreinakennara í leikskólum. Það átti að opna fyrir þátttöku fleiri en þeim sem útskrifaðir voru með listgreinanám frá Fósturskóla Íslands. Við það fjölgaði félagsmönnum aðeins hægt og hægt og voru orðnir 48 vorið 2011. Þá fór aftur af stað umræða um að skipta um heiti á Faghópnum vegna þess að virkni í hópnum var lítil og áhugi var á að bjóða fleirum að taka þátt í starfinu. Stjórn Faghópsins lagði því til að breyta nafni hópsins í „Faghópur um skapandi leikskólastarf“. og var það samþykkt á aðalfundi um vorið 2011. Um leið var starfsreglum Faghópsins breytt og hópurinn opnaður fyrir öllum sem áhuga hafa á skapandi starfi í leikskólum.
Markmiðum Faghópsins var um leið breytt lítillega, upphafleg markmiðum Faghópsins hafa að mestu haldið sér þessi 20 ár. Við breytingu á nafninu var tekið upp nýtt lógó Faghópsins, hannað af Daða Guðbjörnssyni listmálara.
Í kjölfar breytinganna á opnun Faghópsins og aukinnar kynningar á starfsemi hans m.a. með tilkomu heimasíðu fjölgaði í hópnum og félagsmenn urðu virkari. Farið var að bjóða upp á málþing á haustin, oft í samstarfi við Faghóp leikskólasérkennara, en einnig var Faghópurinn sjálfur með námskeið.
Vorið 2012 hélt Faghópurinn málþing um mikilvægi sköpunar og sköpunarkrafts í leikskólastarfi í Bratta, Menntavísindasviði HÍ. Yfirskrift málþingsins var: „Í kompaníi við sköpunarkraftinn“ Rætt var um möguleika og leiðir leikskólabarna til að þróa skapandi hæfileika sína í tengslum við listir.
Námskeiðsdagur Faghóps um skapandi leikskólastarf var haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í október 2013. Þátttakendur komu víða að frá höfuðborgarsvæðinu og frá dreifðum byggðum Vestfjarða.
Í ágúst 2014 var haldin námskeiðsdagurinn Út um grundir inn í sal í Skátahúsinu í Hafnarfirði. Námskeiðsdagurinn var opinn öllu starfsfólki leikskóla.
Faghópurinn hélt áfram góðu samstarfi við Faghóp leikskólasérkennara og var ákveðið að halda sameiginlegt málþing í febrúar 2015. Á málþinginu var fjallað um hvernig má stuðla að því að öll börn njóti margháttaðrar reynslu sem örvar hugmyndaflug þeirra og skapandi tjáningu.
Faghópurinn átti gott samstarf við Listaháskóla Íslands um námskeiðsdag með yfirskriftinni Leiðir að listum haustið 2018.
Einhver fjölmennasti aðalfundur Faghópsins var haldinn fyrir ári vorið 2019. Svo mikil var aðsóknin að færa þurfti fundinn í stærra húsnæði. Það var reyndar ekki stjórnin sem hafði þetta mikla aðdráttarafl heldur Harpa Kolbeinsdóttir deildarstjóri í Stekkjarási í Hafnarfirði. Harpa flutti fyrirlestur um útistöðvar, sem hún byggði á starfendarannsókn sem hún framkvæmdi og fjallaði um í M.Ed. ritgerðinni sinni.
Í fyrsta sinn á Íslandi stóð Faghópurinn fyrir menntabúðum í skapandi leikskólastarfi. Menntabúðirnar voru haldnar í leikskólanum Stekkjarási í október 2019. Menntabúðir (e. EduCamp) er starfsþróun á jafningjagrundvelli. Aðferðin byggir á óformlegri jafningjafræðslu sem stuðlar að aukinni umræðu á milli skólastiga sem og eflingu tengslanets kennara. Þátttakendur miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum. Hér á landi hafa flestar menntabúðir verið haldnar með þemanu upplýsingatækni í skólastarfi. Þá hafa það aðallega verið grunnskólakennarar sem haldið hafa utan um menntabúðirnar og verið þátttakendur í þeim. Það var því sérlega ánægjulegt að sjá að það er vissulega grundvöllur fyrir menntabúðum fyrir kennara á leikskólastiginu. Við höfum ákveðið að halda fleiri menntabúðir í framtíðinni.
Faghópurinn stóð ásamt öðrum fagfélögum innan KÍ að málþinginu Listin nær lengra en augað sér í ágúst 2019. Málþingið var mjög vel heppnað og mikill áhugi meðal fagfélaganna að vinna áfram saman.
Boðið var upp á tónlistarnámskeið fyrir leikskólakennara í Fagralundi í Kópavogi haustið 2019. Kennari var Hildur Guðný Þórhallsdóttir tónlistarkennari. Allt viðfangsefni námskeiðsins var afar hagnýtt.
Haustið 2013 bar Guðný Anna þáverandi formaður upp tillögu um að mánaðarlega yrði einhver dagskrá á vegum faghópsins m.a. að bjóða upp á kynningar á leikskólastarfi í samstarfi við ýmissa leikskóla á stór-Reykjavíkursvæðinu. Þessar kynningar yrðu fyrir alla en ekki einungis faghópinn og þeim yrði fylgt eftir með umsögn um viðkomandi leikskóla á heimasíðu faghópsins. Var það samþykkt og fyrstu viðburðir Faghópsins undir kjörorðinu Skapandi leikskólastarf hófust. Þennan vetur voru haldnir fimm viðburðir í leikskólum á Höfuðborgarsvæðinu. Viðburðirnir hafa fengið afar jákvæð við brögð og verið Faghópnum mikil lyftistöng. Alls hafa verið haldnir um 5 til 6 viðburðir á ári og allir jafn áhugaverðir og vel sóttir. Því miður þá gátum við ekki haldið 2 viðburði á þessu ári vegna COVID-19, en við höldum ótrauð áfram í haust.
Í kjölfar aukinnar virkni í Faghópnum fór félögum hratt fjölgandi. Veturinn 2014-2015 fór fjöldi félagsmanna úr 64 í 115 sem er 82,5% fjölgun og í dag vorið 2020 eru félagar orðnir 208, 206 konur og 2 karlar.
Á Námskeiðsdegi Faghópsins í september 2014 kom upp sú hugmynd að finna nýtt heiti yfir það sem oft hefur verið kallað "verðlaust efni" í leikskólum landsins. Kallað var eftir hugmyndum og skipuð dómnefnd. Nefndin fór yfir tilnefningar og komst að eftirfarandi niðurstöðu: Skapandi efni; efni sem við getum skapað úr, teljum við að það hafi skýra merkingu og sé öllum ljós. Það er samt sem áður ekkert því til fyrirstöðu að hver skóli gæti notað sitt „gælu heiti“ en yfirheitið væri það sem allir þekktu innan skólageirans. Það var Edda Valsdóttir sem kom fram með þessa tillögu og fékk hún verðlaun fyrir, boð á næstu stóru ráðstefnu Faghópsins.
Starfsárin 2015-2018 var lögð mikil vinna í að uppfylla ályktun sem samþykkt var á sjötta þingi KÍ. Þar fól þingið skólamálaráði KÍ og skólanefndum aðildarfélaga að finna leiðir til að efla og auka vægi list- og verkgreina í öllu menntakerfinu. Skipaður var sex manna stýrihópur og var Michelle Sonja Horne sérgreinastjóri fyrir hönd Faghópsins sem fulltrúi leikskólastigsins. Stýrihópurinn stóð m.a. fyrir fjölmennu málþingi „Nema hvað“ sem haldið var í mars 2018 í Nauthól.
Nýlega tókum við ákvörðun um að efla fréttaflutning frá vettvangi, við vorum hér áður að birta á heimasíðunni faglegar greinar frá félagsmönnum, en langt var liðið frá því að það hafði verið gert. Í febrúar birtum við fyrstu greinina eftir Pascale Cécile Darricau listgreinakennara í leikskólanum Jötunheimum á Selfossi. Greinin fjallar um hvernig listgreinakennari sem finnur sig svolítið einangraðan í starfi getur í samvinnu við börnin "látið boltann rúlla", en það var einmitt það sem Pascale gerði skólaárið 2017-2018. Fleiri greinar frá Pascale bíða birtingar.
Haustið 2008 fékk Faghópurinn sína fyrstu vefsíðu og tók Björg Vigfúsína Kjartansdóttir að sér ritstjórn hennar. Vorið 2009 tók svo Fjóla Þorvaldsdóttir að sér umsjón með vefsíðu og fréttabréfum faghópsins. Endurnýjuð vefsíða fór í loftið í nóvember 2014 og nú er aftur kominn tími á nýja vefsíðu.
Faghópurinn hefur leitast við að miðla skapandi starfi út frá ólíkum sjónarhornum, með það að markmiði að koma inn á grunnþætti menntunar í aðalnámskrá leikskóla. Það er vilji stjórnar að Faghópur um skapandi leikskólastarf eigi bjarta framtíð fyrir sér, félagsstarfið hefur verið frábært undanfarin ár og virkni félagsmanna og áhugi á að sækja viðburði mikill.