Afburðanemendur þurfa verkefni við hæfi
„Höfum við ekki mörg á einhverjum tímapunkti í skólagöngu okkar velt fyrir okkur spurningum um furður veraldarinnar og langað til að leita svara við? Nú getum við hjálpað okkar nemendum til að öðlast svar við sínum spurningum með því að beina þeirra frjóa hugmyndaflugi í „Unga vísindamenn“, skrifar Viðar Ágústsson, kennari við Flensborg, í fyrsta Vikupósti ársins 2015 á vefsíðu FF.
Viðar gerir Landskeppnina Ungir Vísindamenn að umtalsefni en keppnin hefur verið haldin árlega frá árinu 1995. Nemendur geta að sögn Viðars unnið saman, einn til þrír, að hugmynd en tilkynna þarf þátttöku í Landskeppninni til HÍ nú í janúar. Hann hvetur kennara til að vekja athygli nemenda sinna á þessu tækifæri til að vinna úr hugmyndum sem þeir kunna að hafa og vilja kafa dýpra í.
Þá fjallar Viðar um margs konar keppnishald í ýmsum námsgreinum, svo sem BOXIÐ – þrautakeppni HR. Hann segir keppnishald af þessu tagi hafa það að markmiði að efla áhuga nemenda á viðkomandi fræðigrein og kennarar framhaldsskólanna séu í lykilhluverki við að vekja áhuga unga fólksins á þessum keppnum. „Markviss áróður fagkennarans getur skipt sköpum um að nemendur fáist til að taka þátt í þessum keppnum og þá uppgötva þeir að ekki einungis liggur námsgreinin vel fyrir þeim heldur getur hún verið farmiði á spennandi ferð til alþjóðlegrar keppni.“
Vikupóst FF er hægt að lesa hér.