Afbóka þarf orlofshús tímanlega og skriflega

Félagsmenn sem vilja afbóka sumarhús eða íbúðir á vegum Orlofssjóðs KÍ vegna COVID þurfa að gera það skriflega og innan ákveðins tímaramma.
Orlofssjóður KÍ (OKÍ) vill koma því á framfæri að vilji félagsmenn afbóka orlofseignir vegna þess sem ástands sem ríkir vegna COVID-19 þá er það í góðu lagi. Skilyrði er þó að ósk um afbókun berist skriflega á netfangið orlof@ki.is áður en leiga hefst.
Hyggist félagsmaður afbóka helgardvöl í orlofshúsi þarf hann að senda skriflega orðsendingu þess efnis, á orlof@ki.is, eigi síðar en klukkan 15 á föstudegi fyrir bókaða helgi.
Hafa skal í huga að afbókun sem berst eftir klukkan 16:00 mánudaga til fimmtudaga, og eða eftir klukkan 15 á föstudegi, telst afbókun frá og með næsta virka degi.
Hvað segja reglur OKÍ?
Tilkynna skal allar breytingar og afbókanir skriflega svo fljótt sem auðið er til Orlofssjóðs, netfang: orlof@ki.is. Ath.: Þó breyting sé í upphafi tilkynnt símleiðis, verður skrifleg beiðni að fylgja í kjölfarið. Leiga er aldrei endurgreidd ef tilkynning berst eftir að leigutímabil hefst.