Af launum og launakjörum kennara

Fréttir|1. nóvember 2021
Pistill

Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ og frambjóðandi til formanns KÍ, skrifar.

Íslenskir kennarar búa  við kerfislægan og ómálefnlegan launamun. Þeir hafa oft þurft að berjast fyrir bættum kjörum en búa samt sem áður ekki við góð kjör. Launagreiðendur búa jafnframt við freistnivanda sem getur leitt til stöðnunar eða átaka. Þetta hefur eðlilega leitt til þess að illa gengur að manna stéttir kennara og nú er svo komið að 25% starfsmanna leikskóla eru kennarar í stað lögbundinna 67%. Í grunnskólum vantar allt að 35% kennara á sumum landsvæðum og nýliðun í hópum framhaldsskólakennara hefur verið lítil sem engin síðustu ár. Í tónlistarskólum eru mjög svipaðar áskoranir og í framhaldsskólum þar sem meðalaldur er hár og nýliðun lítil.

Á myndinni hér til hliðar (hana má finna á vef KÍ undir talnaefni) sést hver launasetning íslenskra kennara er. Engir sérfræðingar njóta lægri launa. Á þessu eru ýmsar skýringar, allar vondar. Þetta þarf að breytast!

Í síðasta mánuði skilaði starfshópur sem ég átti sæti í skýrslu til forsætisráðherra um verðmætamat kvennastarfa í íslensku samfélagi. Í skýrslunni fjölluðum við um launamun kynjanna og þær aðgerðir sem unnið er að um heim allan til að draga úr honum.

Flestum er löngu orðið ljóst að slíkur launamunur er ekki aðeins mjög ranglátur og jafnvel ólöglegur heldur einnig skaðlegur samfélögum. Greina þarf hvaða þættir það eru sem einkenna kvennastörf og kunna að vera vanmetnir því löngu tímabært er að ráðast með krafti í vinnu við endurmat. Endurmat sem leiðir af sér aðgerðir sem útrýma launamun sem stafa af kynskiptum vinnumarkaði. Skýrslan gefur möguleika á að taka stórt skref fram á við með því að ráðast í aðgerðir sem snerta kynjaskiptingu vinnumarkaðarins. Það er vonandi að ný ríkisstjórn beri gæfa til að halda áfram á kröftugan hátt því verki sem hafið var í tíð þeirrar síðustu.

Hvað þarf að gera?

Ég tel að formaður Kennarasambands Íslands geti gegnt lykilhlutverki í viðbrögðum stéttarinnar við þessari stöðu þótt það komi í hlut félagsfólks og aðildarfélaganna að gera kjarasamninga. Ég held jafnvel að þetta sé eitthvert það mikilvægasta verkefni sem formaður getur tekið að sér og því langar mig að kynna mínar áherslur á þessu sviði stuttlega.

Á framboðsfundi í síðustu viku vitnaði ég í  bandarískan rithöfund sem sagði að það væri svona svipað að búast við að veröldin væri manni sanngjörn af því maður væri góð manneskja og að telja að bolinn myndi ekki stanga mann af því maður væri grænmetisæta. Þessi tilvitnun passar vel við minn fyrsta áherslupunkt:

1. Vond launasetning kennara er ekki verðskulduð. Kennarar þurfa ekki að standa sig betur í starfi

Svona málflutningur heyrist stundum. Jafnvel fólk sem tekur undir að launin séu of lág segir að eina leiðin til að hækka þau sé að verðlauna þá kennara sem bestir séu í starfi. Þetta er þvæla. Slök launasetning kennara á sér ýmsar skýringar sem hægt er að ræða og leggja mat á. Engin þeirra hefur með frammistöðu að gera.

2. Hefðbundnar leiðir til að hækka laun kennara hafa í för með sér mikinn fórnarkostnað

Kennarar eru svokölluð einkeypisstétt. Það þýðir að viðsemjandinn er aðeins einn. Tvennt einkennir slíkar stéttir. Í fyrsta lagi eru þetta stéttir sem gegna mikilvægustu hlutverkum hvers samfélags. Í öðru lagi eru þetta stéttir sem einna erfiðast eiga með að sækja kjarabætur ef mikilvægi þeirra endurspeglast ekki í launum. Launagreiðendur geta beinlínis haft hag af því að draga lappirnar við samningagerð og verkföll spara þeim útgjöld án þess að minnka tekjur. Af þessum sökum hafa launagreiðendur stundum haft tilhneigingu til að stýra málum inn í átök og reyna þá yfirleitt að þvo hendur sínar af ábyrgð á því. Dæmi eru um málflutning launagreiðenda þar sem kennurum er lýst sem stétt með „mikinn verkfallsvilja.“

Svona vinnubrögð eru því miður of tíð. Þau hafa líka í för með sér mikinn fórnarkostnað. Dæmi eru um verkföll kennara sem stóðu svo lengi að tæpt ár tók fyrir kennara að vinna upp launatapið með þeim hækkunum sem verkföllin skiluðu. Þá eru þess einnig dæmi að kennarar hafi hreinlega yfirgefið starfsvettvanginn, jafnvel fyrir fullt og allt, í kjölfar verkfalla. Kennarar vilja ekki verkföll, þeir vilja réttlæti. Verkföll eru neyðarúrræði og það er launagreiðenda að tryggja að ekki skapist slík neyð.

3. Samstaðan er okkar mesti styrkur

Árið 2016 var lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna breytt. Um leið var skrifað undir samkomulag á milli launagreiðenda og heildarsamtaka opinberra starfsmanna um að laun skyldu jöfnuð á milli opinbera vinnumarkaðarins og hins almenna. Allt þetta kjörtímabil hefur gögnum verið safnað og greiningar gerðar á launamun á milli markaða. Sú greining afhjúpar algerlega ómálefnalega launasetningu kennara. Sú ríkisstjórn sem brátt tekur við mun sæta pólitískri ábyrgð á efndum loforðs um jöfnun launa. Það kemur í hlut formanns Kennarasambands Íslands að sitja við það borð sem milliliður félagsfólks og aðildarfélaga við stjórnvöld. Þar við borðið eiga einnig sæti BHM og BSRB. Stjórnvöld munu ekki geta komið sér undan ábyrgð sinni án alvarlegra afleiðinga. Þær afleiðingar munu ekki aðeins snerta kennara. Öll samtök opinberra starfsmanna munu taka þátt í því.

Það skiptir öllu máli að formaður KÍ sé leiðandi þeirri vinnu og njóti ekki aðeins trausts eigin baklands heldur þvert á bandalög. Til að svo geti verið þarf málflutningur Kennarasambandsins í þessum efnum að vera traustur, málefnalegur og vel rökstuddur. Það á bæði við um inn á við og út á við.

Mikilvægi formanns KÍ

Baráttan um kjörin er um leið baráttan fyrir tilvist fagstéttar skólafólks. Það er óumflýjanlegt að á kjörtímabili nýs formanns KÍ verði annað hvort efndir eða uppgjör á loforðum stjórnvalda. Hvort heldur sem verður skiptir öllu að formaðurinn hafi skýra sýn á heildarmyndina og leggi sig fram um það að halda stéttinni upplýstri svo hún geti sjálf stýrt ferðinni um eigin kjör.

Þannig formaður ætla ég að vera nái ég kjöri.