Af hverju átt þú að treysta mér fyrir þínu atkvæði?

Fréttir|9. desember 2021
Pistill

Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar og frambjóðandi til varaformanns Kennarasambands Íslands, skrifar.

Mitt markmið sem varaformaður KÍ er að vinna af krafti fyrir alla kennara, hvort sem þeir starfa við kennslu eða stjórnun. Ég mun hlusta af athygli á hugmyndir kennara og beita mér fyrir hagsmunum þeirra svo þeir geti notið sín í starfi. Ég mun standa undir því trausti sem mér verður sýnt, bæði í orðum og gjörðum, leiða starf skólamálaráðs og treysta samstarfsfólki í sínum verkum. Ég mun jafnframt leggja mig fram um að efla jákvæðan staðblæ hjá Kennarasambandinu þar sem gott er að vinna og þar sem gott er að leita ráða, vera til staðar fyrir kennara jafnt sem samstarfsfólk og leggja áherslu á jákvæð og uppbyggileg samskipti. Ég legg áherslu á að kennarar eigi ætíð fulltrúa við borðið þegar skólamál og málefni kennara eru rædd því við erum sérfræðingar í kennslu og námi. Leiðarljós mitt í starfi varaformanns er skýrt, að fylgja ákvörðunum þings og munu þær ákvarðanir varða leiðina í mínu starfi.

Ég kem ekki inn sem sá einstaklingur sem kann allt og veit allt en ég mun nýta mér þann mannauð sem starfar hjá Kennarasambandinu til að kynna mér þau málefni sem mig skortir þekkingu á.

Ég mun nýta mér alla þá þekkingu og reynslu sem hefur safnast upp á rúmum 28 ára samfelldum starfsferli í starfi mínu innan veggja leikskólans. Ég hef stýrt skólaþróun og innleiðingu á nýjum leiðum í skólastarfi og tel mig geta skilað góðu starfi í skólamálaráði KÍ.

Ég hef einnig víðtæka reynslu í félagsmálum, ég hef starfað fyrir Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla í um 20 ár sem sýnir að ég hef sannarlega áhuga og vilja til að starfa með hagsmuni kennara að leiðarljósi. Jafnframt hef ég reynslu af félagsstörfum fyrir tvö önnur félög sem bæði tengjast menntun.

Sem stjórnandi hef ég haft mikil samskipti við rekstraraðila skóla og kann vel það hlutverk. Sú reynsla mun nýtast í samskiptum við hagaðila og í stefnumótun til framtíðar.

Ég geri miklar kröfur til sjálfrar mín, ég vil ná árangri í starfi og hef ánægju af að takast á við ný verkefni sem reyna á þekkingu mína og færni. Ég er traust, framtakssöm, og tel mig lausnamiðaða, sanngjarna og samstarfsfúsa því ég á auðvelt með að vinna með ólíku fólki. Þetta eru eiginleikar sem styðja mig í starfi varaformanns. Síðast en ekki síst tel ég að jákvæðni og gleði smiti út frá sér og tel að slíkt viðhorf nái því besta fram hjá mér og öðrum.

Mínir áhersluþættir eru skýrir:

Að vinna af heilum hug að því að fylgja eftir ákvörðunum þings KÍ í apríl 2022. Það mun skýrast á þingi hverjar ákvarðanir þingheims verða.

Að ná samvinnu við rekstraraðila um að bæta starfsaðstæður kennara og þá um leið að bæta námsaðstæður nemenda. Ég veit líkt og allir kennarar að bæta þarf starfsaðstæður í skólum. Eitt stærsta verkefnið þar er að fækka nemendum sem hver kennari hefur umsjón með. Spurningin er ekki hvað þarf að gera heldur hvenær og hvernig. Það þarf tímasettar og raunhæfar áætlanir sem leiða til raunverulegra umbóta. Jafnframt þarf að kynna þær leiðir sem þegar eru til, hægt er að leita til Vinnueftirlits ríkisins eða til Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Bjargir til kennara þurfa einnig að vera til staðar, nemendahópurinn verður sífellt fjölbreyttari og þarf því að fá fjölbreyttari leiðir í námi og námsumhverfi auk þess sem mikilvægt er að fá fleiri fagstéttir til starfa í skólana.   

Að ná samvinnu við rekstraraðila um að efla stöður leiðsagnarkennara innan skóla svo kennarar geti fengið faglegan stuðning og eflt eigin starfsþróun. Ég tel að í hverjum skóla eigi að vera staða leiðsagnarkennara. Þeir treysta á eigin fagmennsku og reynslu og nýta hana samkennurum í hag. Það er ómetanlegt fyrir kennara, hvort sem þeir eru nýliðar eða komnir með ákveðna reynslu í starfi, að hafa aðgengi að samkennara sem þeir bera traust til því það styður þá bæði faglega og persónulega. Leiðsagnarkennarar sjá einnig um móttöku nema í kennslufræði og geta sinnt þjálfun nýrra starfsmanna.

Að ná góðri samvinnu við hagaðila kennara. Ég mun leggja mig alla fram um að ná góðu samstarfi við alla hagaðila kennara því ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi. Þó svo við viljum að eitthvað gerist, þá þarf ætíð samtal, samvinnu, sameiginlegan skilning og ákvarðanatöku milli hagaðila sem er undirstaða þess að góðir hlutir gerist.

Að gera starf kennara sýnilegra svo fleiri sæki í kennaranám og um leið að almenningur sjái hve magnað skólalífið er. Ég vil halda áfram að vekja athygli á því hve kennarastarfið er magnað. Margar herferðir til að fjölga kennurum hafa skilar góðum árangri þegar starf kennara hefur fengið sviðsljósið en sífellt þarf að halda á lofti mikilvægi starfs kennara.

Að hafa reglulega samtalstíma á netfundum eða í gegnum síma þar sem félagsmenn fá tækifæri til að tala beint við sitt forystufólk um skólamál. Ég vil að þú getir átt samtal við mig um skólamál. Samtal og hugstormun eru kveikja að því að góðir hlutir geti gerst.

Ég trúi því heils hugar að fjölbreytt þekking og reynsla í forystu Kennarasambandsins styrki það. Raddir kennara eru margar og ólíkar og mikilvægt er að þær heyrist. Ég kem með mína reynslu af leikskólastiginu á meðan nýkjörinn formaður kemur af grunnskólastiginu. Vertu óhrædd/ur við að fara út fyrir þitt aðildarfélag, fagnaðu fjölbreytileikanum og gefðu mér og Magnúsi Þór tækifæri til að leiða Kennarasamband Íslands saman. Ég er sannfærð um að við verðum gott teymi sem mun gæta hagsmuna allra kennara.

Ég hvet þig til að nýta þitt atkvæði því þú hefur áhrif á hvernig forysta Kennarasambands Íslands verður skipuð næstu fjögur árin.