Af hverju kennarastarfið?
Fréttir|29. desember 2025
Hér gefur að líta nokkrar ástæður þess að kennarar ákváðu að gerast kennarar.
Spurningin var lögð fyrir félagsfólk KÍ á fundi Skólamálaráðs fyrr á þessu ári. Það er óhætt að segja að þær eru fjölbreyttar og áhugaverðar.
Af hverju er ég kennari?
- Því það er skemmtilegasta starf í heimi
- Því starfið er svo fjölbreytt og það er enginn dagur eins
- Því eftir að ég hafði prófað kennarastarfið vil ég helst ekkert annað
- Því kennslan veitir mér lífsfyllingu
- því faglegt sjálfstæði fylgir starfinu
- Því mér fannst ég vera komin heim þegar ég byrjaði í Kennó
- Því starfið er bæði svo krefjandi og svo gefandi
- Því áskoranir eru skemmtilegar
- Vegna sveigjanleika starfsins
- Því það er svo gaman að vinna með börnum.
- Því ég fæ tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á næstu kynslóð og móta framtíðina
- Því starfið og umhverfið nærir og drífur mann áfram
- Því mér líður vel í vinnunni
- Vegna tilviljunar
- Því ég fæ leyfi til endalausrar sköpunar
- Því kennarastarfið er fjölbreytt leiðtogahlutverk
- Því ég fæ að kynnast nýju og nýju fólki
- Vegna tækifæranna til að þróast í starfi
- Því samkenndin og tilfinninga færnin sem við vinnum með í kennslunni gefur mér svo mikið
- Því samskiptin eru svo nærandi
- Vegna bliksins í augum nemenda þegar hann nær nýju markmiði eða hæfni