Ævintýralegt síðdegi í Tjarnarseli

Fréttir|6. september 2022

Þriðjudaginn 6. september 2022 stóð Faghópur um skapandi leikskólastarf fyrir ferð til Reykjanesbæjar að heimsækja leikskólann Tjarnarsel. Viðburðurinn var fyrsti skapandi leikskólastarfs viðburður skólaársins, en fyrirhugað er að halda að vanda nokkra slíka í vetur. Leikskólastjórnendur og leikskólakennarar í Tjarnarseli ásamt Helga og Ingibjörgu frá Fræðslusviði tóku á móti fjölmennum hópi leikskólakennara frá Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og alla leið frá Hvolsvelli. Veðrið lék við okkur og fengum við að hlusta á fræðslu um leikskólastarfið í sérlega glæsilegum garði þeirra.

Þriðjudaginn 6. september 2022 stóð Faghópur um skapandi leikskólastarf fyrir ferð til Reykjanesbæjar að heimsækja leikskólann Tjarnarsel. Viðburðurinn var fyrsti skapandi leikskólastarfs viðburður skólaársins, en fyrirhugað er að halda að vanda nokkra slíka í vetur.

Leikskólastjórnendur og leikskólakennarar í Tjarnarseli ásamt Helga og Ingibjörgu frá Fræðslusviði tóku á móti fjölmennum hópi leikskólakennara frá Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og alla leið frá Hvolsvelli. Veðrið lék við okkur og fengum við að hlusta á fræðslu um leikskólastarfið í sérlega glæsilegum garði þeirra. Fyrir nokkrum árum var leikskólagarðinum umbylt með þátttöku barna og foreldra. Þróað var náttúrulegt útisvæði og notað til þess sem mest af endurnýtanlegum og náttúrulegum efnivið, með sjálfbærni að leiðarljósi. Það hefur gengið mjög vel að halda garðinum við með þátttöku starfsfólks, barna og fjölskyldum þeirra. Allt samfélagið tekur í rauninni þátt, því allir koma glaðir í bragði á vinnudaga sem haldnir eru árlega. Hér má sjá myndband frá vinnudegi 2018. Gróðurrækt er mikil í Tjarnaseli og er búið að koma fyrir gróðurhúsi (Bambahús) í garðinum þar sem ræktaðar eru matjurtir. Hér má sjá myndband frá uppskeruhátíð sem haldin er að hverju hausti í leikskólanum. 

Tjarnarsel er ekki bara þekkt fyrir fallegt útisvæði, heldur hafa kennarar verið mjög öflugir í námskrárgerð. Í Tjarnarseli er unnið með aðferðina Orðaspjall sem er leið til að efla orðaforða, hlustunarskilning og máltjáningu barna. Þá hafa leikskólakennararnir hannað námsefnið Málörvunarstundir - Lengi býr að fyrstu gerð sem kom út í fyrra. Efnið er afrakstur þróunarvinnu um snemmtæka íhlutun í málþroska barna og er útkoman málörvunarspjöld sem skipt er í  aldursflokka. Í hverjum flokki eru 12 spjöld með markvissum málörvunarstundum. Markmið þeirra er að auka gæði málörvunar í leikskólum í gegnum leik, bóklestur og fjölbreytt námsefni. Hægt er að nálgast námsefnið hjá þeim í Tjarnarseli (malorvun@tjarnarsel.is). 

Eftir ánægjulega samverustund í Tjarnarseli fór hópurinn í gönguferð um Skrúðgarð Keflavíkur og heimsótti Aldingarð æskunnar sem Fanney Margrét verkefnastjóri er með mikla ástríðu fyrir og fær börnin í leikskólanum til þess að aðstoða við umhirðu og verndun garðsins. Þar munu í framtíðinni vaxa margskonar aldin sem munu gleðja komandi kynslóðir. 

Við lukum svo heimsókninni í veitingastaðnum Library bistro/bar, en þar fengum við einstaka þjónustu og aðstoð við að gera ferðina svona ánægjulega. 

Að sjálfsögðu tókum við ógrynni mynda sem gaman er að skoða. 

Við þökkum Árdísi Hrönn Jónsdóttur leikskólastjóra og hennar fólki kærlega fyrir góða og hlýlega móttöku.